bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Grillmeistarinn mælir með,,,
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=30266
Page 1 of 1

Author:  Kristjan [ Sat 21. Jun 2008 19:47 ]
Post subject:  Grillmeistarinn mælir með,,,

Svínarifjum

Image

Image

Uppskriftin fer hér á eftir. Ég notaði 6 svína síður að þessu sinni.

8 kg Svínarif
500 ml. Hunang
500 ml. Soja
dass af evoo (extra virgin olive oil)
1 sítróna (kreist og skorin í bita)
Sítrónubörkur af 1 stk. sítrónu
3 heilir hvítlaukar rifnir með rifjárni
2 stk. meðalstór fersk engifer rifin með rifjárni (MJÖG mikilvægt hráefni)
4 stk ferskir rauðir chili saxaðir (muna að hreinsa steinana út)
Dass af tómatsósu

Öllu blandað saman í skál og látið standa.
Svínarifin eru skorin í bita þannig að eitt eða tvö rif séu í hverjum bita.

Svínarifin eru sett í ofnskúffu og helmingnum af marineringunni hellt yfir (þurfið 2 ofnskúffur) Rifin eru þvínæst steikt í ofni á 200°C í 15 mín með blæstri og snúið í ofnskúffunni á meðan. Athugið að rifin eiga EKKI að eldast í gegn heldur eru þau tekin hálfelduð og lögð aftur í marineringuna og látin marinerast í 1 1/2 - 2 sólarhringa í kæli. Gott er að snúa rifjunum eftir 1 sólarhring.

Þetta er þvínæst grillað á útigrilli og borið fram með kartöflusalati eða grilluðum sveppum, lauk eða bara því sem hugurinn girnist, hvönn og njóla þess vegna, skiptir engu máli, þetta er svo fáránlega gott stöff!

Uppskriftin er fengin hjá Jóni bróður mínum.

Author:  arnibjorn [ Sat 21. Jun 2008 19:53 ]
Post subject: 

Úff.. ég sem að var svangur áður en ég las þennan þráð!! :o

Það er grill í kvöld 8)

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/