bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Alþrif á Besta Verði bæjarins!
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=30182
Page 1 of 2

Author:  Alþrif [ Tue 17. Jun 2008 14:42 ]
Post subject:  Alþrif á Besta Verði bæjarins!

Erum tveir að taka að okkur að þrífa bíla á kvöldin og um helgar, fáguð og vönduð vinnubrögð í boði.
Við notum eingöngu hágæða vörur, s.s. Meguiars, Mothers og Einszett.
Þvottahanskar (gegnir sama hlutverki og svampurinn) bónpúðar, vaskaskinn og klútar sem notað er, er allt gert úr örtrefjaþráðum
til þess að minka líkur á örrispum.

Alþrif: Bifreið er tjöruþvegin, sápuð, þurrkuð og bónuð. Felgur þrifnar, bónaðar og borið er gljái á dekk.
Mælaborð og hurðarspjöld þrifin, gúmmímottur þrifnar, rúður hreinsaðar og bíll ryksugaður.

4.500 kr - Fólksbíll ( Bifreið er sótt og skilað frítt með þessum pakka )
6.000 kr - Jeppi ( Bifreið er sótt og skilað frítt með þessum pakka )

Bón og þvottur: Bifreið er tjöruþvegin, sápuð og bónuð. Felgur þrifnar, bónaðar og borið er gljái á dekk.

3.000 kr - Fólksbíll ( 3.500 kr ef bifreiðin er sótt og skilað )
4.500 kr - Jeppi ( 5.000 kr ef bifreiðin er sótt og skilað )

Þvottur: : Bifreið er tjöruþvegin, sápuð, borið er á quick detailer til þess að kalla fram glans, felgur þrifnar og borið er gljái á dekk.

2.500 kr - Fólksbíll ( 3.000 kr ef bifreiðin er sótt og skilað )
3.000 kr - Jeppi ( 3.500 kr ef bifreiðin er sótt og skilað )

ATH. Það fylgir alltaf með pakkanum að bifreið er sótt og skilað frítt fyrir meðlimi BMW Krafts.

Annars er aðstaðan stór, mjög góð og stendur við Eldshöfða.

Hægt er að panta tíma á bon.og.tvottur@gmail.com í gegnum PM eða í síma 866-2785, nafnið er Kristján.

Author:  Alpina [ Tue 17. Jun 2008 16:05 ]
Post subject: 

Þetta er ........ aðeins of ódýrt,, :shock: :shock:

erum við að tala um þessi verð eða ??

Author:  totihs [ Tue 17. Jun 2008 16:07 ]
Post subject: 

Sækiru bílinn til mín í vogana ? :lol:


Nei annars fínt verð.

Author:  Alpina [ Tue 17. Jun 2008 16:07 ]
Post subject: 

totihs wrote:
Sækiru bílinn til mín í vogana ? :lol:


Nei annars fínt verð.


Hef ekki séð það lægra 8)

Author:  Alpina [ Tue 17. Jun 2008 16:08 ]
Post subject: 

totihs wrote:
Sækiru bílinn til mín í vogana ? :lol:


.


fossvog .. grafarvog ..skeiðarvog ,, ???? :P :roll: :roll: :roll:

Author:  totihs [ Tue 17. Jun 2008 16:42 ]
Post subject: 

ekki alveg svo gott :D

Author:  Aron M5 [ Tue 17. Jun 2008 20:17 ]
Post subject: 

það verður lika að vera vel gert svo þetta se gott verð :wink: og það vitum við ekki hvort er

Author:  Alpina [ Tue 17. Jun 2008 20:21 ]
Post subject: 

aron m5 wrote:
það verður lika að vera vel gert svo þetta se gott verð :wink: og það vitum við ekki hvort er


Nei.. en viðkomandi er eflaust að reyna sitt besta,

Author:  Aron M5 [ Tue 17. Jun 2008 20:23 ]
Post subject: 

Efa það ekki

Author:  Mánisnær [ Tue 17. Jun 2008 21:04 ]
Post subject: 

Skutlum og sækjum innan höfuðborgarsvæðis.

þetta er flott verð, en það sem er enn flottara er að kraftsmeðlimir fá alþrif á 4.000kr.

Author:  Freyr Gauti [ Tue 17. Jun 2008 21:17 ]
Post subject: 

Alpina wrote:
totihs wrote:
Sækiru bílinn til mín í vogana ? :lol:


Nei annars fínt verð.


Hef ekki séð það lægra 8)


Allavega ekki síðustu 2-3 ár.

Author:  Alþrif [ Wed 18. Jun 2008 08:34 ]
Post subject: 

totihs wrote:
Sækiru bílinn til mín í vogana ? :lol:


Nei annars fínt verð.


Gerum það nú ekki almennt en þar sem þetta er ekki langt í burtu er alveg hægt að ræða það en þá myndiru borga venjulegt verð væntanlega en ekki fá Kraftsmeðlimaafslátt og greiða því 4500 kr en ekki 4000 kr

Endilega hafi fólk samband á þann er greint frá að ofanverðu.

Author:  shadow [ Wed 18. Jun 2008 10:49 ]
Post subject: 

Hljómar vel...

ég skal fórna mínum bíl í að vera guinea pig til að prófa þetta :lol:

Author:  Geirinn [ Thu 19. Jun 2008 10:15 ]
Post subject: 

Ég mæli ekki með að þið séuð að gefa vinnuna ykkar svona.

Flestir hafa ekkert á móti því að fá ódýr þrif... en það er óþarfi að gefa þetta.

Quote:
Gerum það nú ekki almennt en þar sem þetta er ekki langt í burtu er alveg hægt að ræða það en þá myndiru borga venjulegt verð væntanlega en ekki fá Kraftsmeðlimaafslátt og greiða því 4500 kr en ekki 4000 kr


Þetta er eitthvað grín!

Author:  Alþrif [ Thu 19. Jun 2008 10:43 ]
Post subject:  ...

Þetta er eitthvað grín![/quote]

Ekkert grín

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/