bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
smá ferðalag um ísland á alpina, nokkrar myndir https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=30169 |
Page 1 of 1 |
Author: | íbbi_ [ Mon 16. Jun 2008 06:55 ] |
Post subject: | smá ferðalag um ísland á alpina, nokkrar myndir |
þrátt fyrir á árnabirni finnist ég vera auli.. fyrir að hafa ekki nennt á bíladaga ![]() úr varð að suðurlandið var þrætt og reynt að skoða sem flest af því sem útlendingarnir eru að koma hingað til að skoða, afrakstur laugadagsins var m.a seljalandsfoss,skógarfoss og svo fór ég yfir sandana og yfir í skaftafell og tók góða göngu upp að jöklinum, eftir það var haldið áfram austur á bóginn, með einhevrjum stoppum til að skoða það sem fyrir varð.. en satt að segja þá gleymdi ég mér nú svo innilega undir stýri á þessum vegspotta að ég endaði á óútskýranlegum tíma á höfn í hornafirði búinn með rúmlega hálfan tank á 134km ![]() stoppaði þó við í jökulsárlóni, í dag keyrði ég svo neðan við vatnajökul og hélt svo smá í norður átt, og skoðaði eitt og annað og endaði svo á gullfoss og geysir, og skoðaði reyndar kerið svo á leiðini heim, veit að það hefur enginn áhuga á þessu hérna en so be it ![]() nokkrar pics ![]() seljalandsfoss, lítill en mjög fallegur ![]() einn sona semi ![]() 35prófíll+möl er frekar vonslaust, þannig að ég brummaði bara eftir tjaldsvæðinu ![]() skógarfoss, 60m hár og mjög fallegur, maður getur labbað upp fyrir hann og fylgt gilinu, þar eru margir fallegir fossar, þarna bakvið á að vera fjársjóður, þegar það var reynt að ná honum slitnaði handfangið af og er nú hurðahúnn á kirkjuni, ![]() ferðafélaginn ![]() kominn upp, magnað útsýni, ![]() ![]() þessi stigi.. hreinsaði aðeins úr nösunum á manni ![]() svo var það jökulinn.. vakti mikla kátínu meðal nokkra þjóðverja þegar ég mætti á haugskítugri alpinu innan um jeppana ![]() það gustaði nú frekar köldu þarna ofan af.. ![]() svo tók lónið við.. það var frekar tómt í þetta skiptið, en alltaf fallegt ![]() ![]() myndin nær því nú frekar illa.. en bíllinn er alveg fóðraður af pöddum að framan ![]() svo var slegið upp tjaldi á höfn og opnaður öllari í lok dagsins, þá kom sér vel að vera með TV/NAVI og gat maður komið sér vel fyrir aftan í og glápt á það sem stöð1 bauð uppá yfir bjórnum.. ![]() á bakaleiðini hafði nú lónið tekið aðeins við sér.. ![]() þessi skaut hausnum úr kafi til að spurja hvort bíllinn fengist á yfirtöku ![]() svo virðist myndavélin hafa gleymst.. enda valdi ég vitlausa leið og endaði á einhverjum vegslóða ekki fyrir fólksbíl og þurfti að dóla á 5, á því sem virtist vera heil eilífð.. en á endanum þá endaði maður á gullfossi.. hann klikkar ekki ![]() ![]() ![]() ég að reyna ná einhevrju artí skoti.. held ég ætti að halda mig við eitthvað annað ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() búnað standa sig VEL ![]() maður var svo blautur eftir gullfoss að það steingleymdist að taka myndir af geysi.. satt að segja fann ég mér nú bara góðan hver og stóð í gufuni þangað til manni var orðið hlýtt.... ein við kerið ![]() vona að það hafi einhver gaman af því að skoða þetta |
Author: | Mazi! [ Mon 16. Jun 2008 07:07 ] |
Post subject: | |
Alvuru ferðlag ![]() ![]() |
Author: | Alpina [ Mon 16. Jun 2008 07:15 ] |
Post subject: | |
þetta er eins og í gamla daga ,, gist i tjaldi og alles ![]() ![]() |
Author: | íbbi_ [ Mon 16. Jun 2008 07:15 ] |
Post subject: | |
þessi eini malarvegur sem ég lenti á var alveg óvart ![]() annars var brilltiant að ferðast á bílnum. þreytti mann mjög lítið, og mjög fljótur á milli áfangastaða ![]() djöfull er samt orðið blóðugt að kaupa bensín.. 33k í bensín á 2 dögum |
Author: | bebecar [ Mon 16. Jun 2008 07:41 ] |
Post subject: | |
Ég hafði allavega gaman af þessu.... Hef farið nokkra svona túra og þetta verður örugglega það fyrsta sem ég geri þegar ég kem heim! Mikil fegurð! |
Author: | jens [ Mon 16. Jun 2008 07:59 ] |
Post subject: | |
Skemmtileg ferðasaga. |
Author: | bimmer [ Mon 16. Jun 2008 08:27 ] |
Post subject: | |
Skil alveg af hverju þú valdir þetta fram yfir Árna Björn ![]() |
Author: | Zeus [ Mon 16. Jun 2008 11:12 ] |
Post subject: | |
Fínasta ferð hjá þér. Ég verð að taka svona roadtrip í sumar. Sleppti líka Bíladaga í ár. Spurning með 19'' felgurnar á M3? |
Author: | Helgi M [ Mon 16. Jun 2008 12:23 ] |
Post subject: | |
Gaman að lesa og einnig rétt að það ættu fleiri að ferðast hér innanlands frekar en utan ![]() Ég ætlaði að taka eins ferð sem ég hefði þá verið í núna, fór til AK á föst og fékk svo gríðarlegan verk í bakið um nóttina að ég fór á sjúkrahúsið þar sem ég var dópaður upp og gert eitthver test, en endaði með að vinur minn keyrði mig og burrann heim daginn eftir, annars værum við líklega á Egilsstöðum núna ![]() Einnig víst við erum í þessum umræðum þá vil ég benda fólki á þrælsniðugan mæli sem fæst í vefverslun elko, þetta er alkóhólsmælir sem ég keypti fyrir ferðina vegna þess að þar sem að það er sukkað oft í svona ferðum þá vill maður ekki vera að keyra af stað daginn eftir með eitthvað í sér, og þessi mælir sýndi og sannaði að þetta er worth it!!! |
Author: | hlynurst [ Mon 16. Jun 2008 12:38 ] |
Post subject: | |
Fór einmitt hringinn í fyrra með vikustoppi í Mjóafirði. Ótrúlega skemmtilegt að ferðast um landið og eitthvað sem allir ættu að prufa. ![]() |
Author: | Kristjan [ Mon 16. Jun 2008 12:44 ] |
Post subject: | |
Ég keyrði þessa leið svona 25 sinnum síðasta sumar ásamt því að fara hringinn 4 sinnum. þetta verður aldrei þreytt. Mér finnst gott hjá þér að hafa farið þessa ferð en ég hefði persónulega valið aðra helgi hehe, það er ekkert mál að sniðganga þetta hyski sem kemur í bæinn, maður fer bara heim til sín áður en djammið byrjar og best er að vera í heimahúsi fjarri bænum hehe |
Author: | JIS [ Mon 16. Jun 2008 13:30 ] |
Post subject: | |
flottar myndir, hvernig myndavél/linsu ertu með? Þetta er eina jákvæða fréttin af bílaáhugamanni um helgina. Ættir að selja þessa sögu til Fréttablaðsins ![]() Síðan þarf ekki að spyrja að því að þú vogaðir þér ALDREI uppí 91km/klst á leiðinni ![]() |
Author: | íbbi_ [ Mon 16. Jun 2008 14:30 ] |
Post subject: | |
takk fyrir það ![]() það hafði nú mikið með það að gera að ég slepti bíladögum að ég feilaði á íbúð, þannig að ég hefði þurft að vera á tjaldsvæðinu, og m.a við fréttir þá var konan ekki nógu gömul á tjaældsvæðið, og ég sjálfur ekki heldur m.a við sumar fréttir, ég er nú ekki með neina voða fanzý vél, en sona semi, heitir kodak zd710, og er sona digital vél með áfastri linsu, en samt alvöru linsu, þrælsniðug með bluetooth/e-mail þannig að ég get sent myndirnar jafn óðum og ég tek þær. það væri brilliant að taka ásbyrgi/dettifoss næst, í mininguni eru það sérlega fallegir staðir |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |