bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Skítug teppi - Hvað skal gera?
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=30112
Page 1 of 1

Author:  Geysir [ Wed 11. Jun 2008 18:45 ]
Post subject:  Skítug teppi - Hvað skal gera?

Nú er bíllinn hjá mér allsvaðalega skítugur að innann enda lítið búið að þrífa hann að innann síðan ég fékk hann um páskana og því langar mig að spyrja hvort þið hafið einhver góð húsráð upp í erminni til að ná leiðinlegum skítablettum úr teppum?

Og hvaða efni er best að nota á leður og teppi? (Efni sem fást hérna heima)

Author:  Mazi! [ Wed 11. Jun 2008 18:58 ]
Post subject: 

væri til í að fá ráð líka teppið og toppurinn í bílnum mínum er bara ógeð

Author:  Bjarkih [ Wed 11. Jun 2008 19:31 ]
Post subject: 

Ég nota alltaf eitthvað efni á spreybrúsa sem ég keypti í Würth þegar ég bjó úti í Svíþjóð, svínvirkar á teppin hjá mér. Er nokkuð viss um að það fáist hér. Þetta er froða sem maður nuddar svo bara úr þegar hún er farin að hjaðna.

Author:  oddur11 [ Thu 12. Jun 2008 00:21 ]
Post subject: 

eg nota bara sápuvatn og tannbursta og nudda vel

Author:  Kristjan [ Thu 12. Jun 2008 00:55 ]
Post subject: 

Teppahreinsivélar virka náttúrulega best, þar úðar maður sápunni og vatninu á og sýgur það svo strax aftur upp.... annars er maður bara að nudda skítnum eitthvað annað

Author:  Aron Fridrik [ Thu 12. Jun 2008 00:56 ]
Post subject: 

djúphreinsa hann bara með djúphreinisryksugu.. virkar best..

Author:  Mánisnær [ Thu 12. Jun 2008 01:05 ]
Post subject: 

Hvað kosta svoleiðis tól?

Var ekki eitthvað undratæki sem kallaðist RAINBOW?

Author:  Kristjan [ Thu 12. Jun 2008 01:32 ]
Post subject: 

Mánisnær wrote:
Hvað kosta svoleiðis tól?

Var ekki eitthvað undratæki sem kallaðist RAINBOW?

Ég hef nú ekki mikla trú á rainbow ryksugu í svona djobb en það er lang best að láta fagmenn bara gera þetta ef þú ert ekki viss, það kostar örugglega ekkert svo mikið meira en að leigja svona græju eða kaupa.

Author:  Mánisnær [ Thu 12. Jun 2008 01:53 ]
Post subject: 

Kristjan wrote:
Mánisnær wrote:
Hvað kosta svoleiðis tól?

Var ekki eitthvað undratæki sem kallaðist RAINBOW?

Ég hef nú ekki mikla trú á rainbow ryksugu í svona djobb en það er lang best að láta fagmenn bara gera þetta ef þú ert ekki viss, það kostar örugglega ekkert svo mikið meira en að leigja svona græju eða kaupa.

Neinei, ég mundi nú borga einhverjum fyrir að djúphreinsa bílinn minn ef þess þyfti í staðinn fyrir að blæða nokkrum bláum í vél sem er lítið sem ekkert notuð
En ég er búinn að vera að hugsa um að þrífa bíla á kvöldin og um helgar til að næla mér í smá auka aur, það væri gaman að geta boðið upp á djúphreinsun, þess vegna spurði ég.

Kv,

Author:  Kristjan [ Thu 12. Jun 2008 02:46 ]

Ég hugsa samt að minn bíll væri miklu hreinni ef í fyrsta lagi hann væri BMW og í öðru lagi ég ætti svona djúphreinsigræju. Það væri sweet.

En ef þú ert að fara nota þetta í atvinnuskyni þá myndi ég kaupa græjuna.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/