bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Þegar þið bónið kerrurnar
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=30082
Page 1 of 2

Author:  Mánisnær [ Tue 10. Jun 2008 15:21 ]
Post subject:  Þegar þið bónið kerrurnar

Beriði bónið á í hringi?

Afhverju er það gert? Er eitthvað verra að bóna bara einhvernveginn, sikk sakk?

Author:  Maggi B [ Tue 10. Jun 2008 15:25 ]
Post subject: 

Skiptir nákvæmlega engu þegar þú ert með góð efni og örtrefjaklúta,
þetta er bara gamalt myth frá tvist og mjallarbóns tímabilinu.

Author:  Hlynzi [ Tue 10. Jun 2008 17:56 ]
Post subject: 

Aðallega er nú bara auðveldast að bera það á í hringi, það skiptir engu máli samt.

T.d. ef menn ætla að kústa bílana sína mæli ég með að þeir séu alltaf kústaðir í sömu átt, væri snilld að fá svona "brushed" áferð í lakkið.

Author:  Dogma [ Tue 10. Jun 2008 18:01 ]
Post subject: 

er þetta ekki gert í hringi svo að bónið hitni og fari eihvernvegin betur á

Author:  Elnino [ Tue 10. Jun 2008 18:28 ]
Post subject: 

Ég bóna aldrei í hringi, bara lárétt. Veit ekki af hverju en sjást ekki örrispurnar minna þá ? heldur en þegar bónað er í hringi? (ef einhverjar skyldu koma)

Author:  Arnarf [ Tue 10. Jun 2008 18:49 ]
Post subject: 

Elnino wrote:
Ég bóna aldrei í hringi, bara lárétt. Veit ekki af hverju en sjást ekki örrispurnar minna þá ? heldur en þegar bónað er í hringi? (ef einhverjar skyldu koma)



Hárrétt,

Þá sjást þær bara frá einu horni í staðin fyrir 360°

Author:  íbbi_ [ Tue 10. Jun 2008 18:55 ]
Post subject: 

bóna aldrei í hringi, hætti því þegar ég sá munin á svörtum bíl sem var bónaður í hringi, og svo ekki í hringi

Author:  SteiniDJ [ Tue 10. Jun 2008 19:28 ]
Post subject: 

Þegar þið bónið lárétt, dragið þig þá klútinn (eða hvað það er sem þið notið) lárétt þar til bónið i honum er búið? Eða nuddið þið þetta mikið?

Author:  camaro F1 [ Tue 10. Jun 2008 19:28 ]
Post subject:  Re: Þegar þið bónið kerrurnar

Bónval ...... Súðavogi 32


erum með 20% afslátt á útvöldum vörum í tilefni að Bíladögum 2008...

svo er Einszett startpakkinn á kynningarverði.... 9990-

svo er auðvitað 15% afsláttur fyrir kraftsmeðlimi, gegn framvísun skilríkja....

koma og kíkja.....

Image

Author:  Geirinn [ Tue 10. Jun 2008 19:34 ]
Post subject: 

Fer ekki að verða komið nóg af þessu auglýsingaspammi ?

Ég held að flestir séu með fullri meðvitund um að Bónval sé fyrirtæki sem selur það sem það selur.

Þú kannski færð "auglýsingapláss" á næstu BMWKraftsskírteinum ? :lol:

Author:  jon mar [ Tue 10. Jun 2008 19:37 ]
Post subject: 

Geirinn wrote:
Fer ekki að verða komið nóg af þessu auglýsingaspammi ?

Ég held að flestir séu með fullri meðvitund um að Bónval sé fyrirtæki sem selur það sem það selur.

Þú kannski færð "auglýsingapláss" á næstu BMWKraftsskírteinum ? :lol:


Djöfull er ég sammála þér :lol:

Author:  raxions [ Wed 11. Jun 2008 03:03 ]
Post subject: 

íbbi_ wrote:
bóna aldrei í hringi, hætti því þegar ég sá munin á svörtum bíl sem var bónaður í hringi, og svo ekki í hringi



Tek algjörlega undir þetta. Reyndi að bóna minn svarta með hringhreyfingu, en hann var bara skýjaður á eftir, svo að ég þurfti nánast að bóna hann aftur til að fá hann almennilega til að spegla :?

Author:  Einarsss [ Wed 11. Jun 2008 09:05 ]
Post subject: 

raxions wrote:
íbbi_ wrote:
bóna aldrei í hringi, hætti því þegar ég sá munin á svörtum bíl sem var bónaður í hringi, og svo ekki í hringi



Tek algjörlega undir þetta. Reyndi að bóna minn svarta með hringhreyfingu, en hann var bara skýjaður á eftir, svo að ég þurfti nánast að bóna hann aftur til að fá hann almennilega til að spegla :?



Ekki orðið var við þetta á mínum svarta með meguiars

Ég reyndar bóna í hringi og fer svo aftur yfir í öfuga átt ... ss bóna fyrst réttsælis og svo rangsælis ... finnst bónið endast töluvert betur þannig. Sá þetta gert í einhverju video frá meguiars og þeir töluðu um að bón húðin myndi lokast betur´.

Author:  Mazi! [ Wed 11. Jun 2008 18:22 ]
Post subject: 

ég bóna alltaf í hringi og nota meguairs eða hvað það heitir, sé engin för

Author:  Danni [ Wed 11. Jun 2008 19:18 ]
Post subject: 

Ég var að bóna áðan með Mothers. Bar það á með Meguiars svamp einsog fæst í B&L. Þurrkaði af með microfiber klút. Prófaði að bóna með hringlaga hreyfingum og bara í beinni línu líka. Mér finnst þægilegra að bóna með hringlaga hreyfingum og það var akkurat enginn munur á áferðinni.

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/