bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Nýjasta "lögregluofbeldið" https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=30057 |
Page 1 of 3 |
Author: | maxel [ Mon 09. Jun 2008 12:50 ] |
Post subject: | Nýjasta "lögregluofbeldið" |
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/0 ... _handtoku/ http://www.visir.is/article/20080609/FR ... /322917894 Drullist bara til að hlýða lögreglunni... |
Author: | bjahja [ Mon 09. Jun 2008 12:56 ] |
Post subject: | |
Ég neita því að fólk fari að kvarta yfir einhverju svona Quote: Maðurinn, sem handtekinn var, hafi verið búin að ganga um og berja fólk og ógna því áður en lögregla var kölluð á vettvang. Þá hafi hann ekki hlýtt fyrirmælum lögreglu er hún kom á staðinn og sýnt skýran vilja til að berja á lögreglunni.
Ég held að það sjái allir hvernig gaur þetta var og hvað var í gangi. |
Author: | Thrullerinn [ Mon 09. Jun 2008 12:59 ] |
Post subject: | |
Bara ágætis mál að meisa hann. "Maðurinn var handtekinn klukkan 04:45 á mánudagsmorgun og sleppt úr haldi klukkan 20:50 sama dag. Hann hafði þá sofið úr sér og verið yfirheyrður. Á sama tíma ræddi lögregla við vitni. Hafa tvær kærur gegn manninum borist til lögreglu. " |
Author: | Einarsss [ Mon 09. Jun 2008 13:03 ] |
Post subject: | |
Rétt viðbrögð hjá lögreglu þarna ... maðurinn neitar að gefast upp og ætlaði að labba í burtu. Miðað við hann hafi gengið um og lamið eitthvað fólk þarna fyrr þá finnst mér ekkert að þessu. |
Author: | saemi [ Mon 09. Jun 2008 13:07 ] |
Post subject: | |
Ekkert að þessu. Maðurinn fékk skýr fyrirmæli um að leggjast á jörðina oftar en einu sinni og fór ekki eftir þeim. Hann fékk líka viðvörun um að gas væri á leiðinni. Það er eins og almenningur haldi að þeim beri ekkert að fylgja fyrirmælum lögreglu. Að það sé réttur okkar til að ræða við lögregluna út í eitt og standa uppi í hárinu á henni. Íslendingar eru agalausir og kunna ekki að fylgja fyrirmælum. Það er bara sorglegt. Ekki skrýtið hvernig umferðarmenningin hér á landi er. |
Author: | Einarsss [ Mon 09. Jun 2008 13:12 ] |
Post subject: | |
saemi wrote: Ekkert að þessu.
Maðurinn fékk skýr fyrirmæli um að leggjast á jörðina oftar en einu sinni og fór ekki eftir þeim. Hann fékk líka viðvörun um að gas væri á leiðinni. Það er eins og almenningur haldi að þeim beri ekkert að fylgja fyrirmælum lögreglu. Að það sé réttur okkar til að ræða við lögregluna út í eitt og standa uppi í hárinu á henni. Íslendingar eru agalausir og kunna ekki að fylgja fyrirmælum. Það er bara sorglegt. Ekki skrýtið hvernig umferðarmenningin hér á landi er. Hvaða umferðarmenning? ´ Ísland er eina landið sem ég hef keyrt í þar sem ég þarf að fara framúr bílum hægra meginn... Ekki skrýtið að útlendingar eru skíthræddir í umferðinni hérna |
Author: | drolezi [ Mon 09. Jun 2008 13:13 ] |
Post subject: | |
bjahja wrote: Ég neita því að fólk fari að kvarta yfir einhverju svona Það er nú alltaf eitthvað af liði sem er til í að kvarta yfir svona. Ég ætla ekki að tjá mig um andlega burði þess fólks... Quote: Ég var að misbjóða sjálfri mér með því að horfa á myndbandið frá Patreksfirði þegar lögreglan gasaði mann sem hafði verið með ólæti. Hann neitar að leggjast á jörðina og gengur frá lögreglumönnunum. Þá sprauta þeir á hann. Ég á ekki eitt einasta orð. Hvers lags þjóðfélag er þetta að verða? Það er ekki nýtt að drukkið fólk sé með ólæti en hingað til hefur ekki þurft að sprauta eitri í augu þess til að ná að handtaka það. Ég sé enga ofbeldistilburði í garð lögreglunnar frá þessum manni. Það er enginn yfirvofandi árás í gangi og maðurinn gengur frá löggunni. Svo þjösnast þeir á honum þrír þar sem hann liggur hjálparvana á jörðinni. Fyrirgefið á meðan ég garga mig hása. Og á eftir fylgdu 20 tímar í fangelsi. Ekkert réttlætir svona aðgerðir. Fjandinn hafi það. Og lögreglustjórinn á Patreksfirði réttlætir ofbeldið og sér ekkert athugavert við þennan gjörning valdstjórnarinnar. Þetta er pjúra fasismi og ekkert annað. 69.is wrote: Löggan meisar alveg pollrólegan gæja, sem trompast við það
Og ef menn vilja hoppa í djúpu klepralaugina þá býður húsmæðramenningin upp á eftirfarandi: http://er.is/messageboard/messageboard.aspx?advid=9944646&advtype=52 http://er.is/messageboard/messageboard.aspx?advid=9944085&advtype=52 http://er.is/messageboard/messageboard.aspx?advid=9940496&advtype=52 Og svo tekst þessu pakki að troða sínum skoðunum á aðra sem ekki vita betur, sem fara niður í bæ og úthúða svo MÉR. Taaaaaaakk... |
Author: | arnibjorn [ Mon 09. Jun 2008 13:17 ] |
Post subject: | |
Ekkert að þessu, hefði bara mátt taka harðar á honum ef eitthvað. |
Author: | gstuning [ Mon 09. Jun 2008 13:17 ] |
Post subject: | |
Auðvitað kemur svona þegar fólk starir dauðum augum á myndbandið. það sýnir ekki hvað á undann fór. Mætti halda að sumt fólk geti ekki hugsað sjálfstætt. Ef það er satt að hann var að lemja eitthvað fólk þarna og lögreglan mætt á svæðið til að fjarlægja hann þá er þetta alveg í 100% lagi það sem fór þarna. Og hann er nú ekki beint hjálparvana, það hreinlega ÞARF 3 lögreglumenn til að halda manninum til haga. |
Author: | Stanky [ Mon 09. Jun 2008 13:49 ] |
Post subject: | |
Sem betur fer veit löggan oftast hvað hún er að gera með svona "fantabrögðum". |
Author: | IngóJP [ Mon 09. Jun 2008 14:51 ] |
Post subject: | |
Að horfa á þetta video finnst mér algjör óþarfi að meisa hann. En vitandi að maðurinn var búinn að vera berjandi mann og annan gerir þetta að allt öðru máli. En afhverju tóku þeir ekki á manninum fyrst eðlilega? Get ekki sagt ekki var ég á staðnum. Kannski var búið að reyna það en sökun hvernig maðurinn hagar sér er ég ekki að sjá að það hafi verið gert. Ef horft á hvernig maðurinn hagar sér eftir meisið. En hvað þýðir fyrir okkur að vera röfla hérna. Svo er spurningin sem ég get ekki svarað þar sem ég hef ekki hlotið þjálfun sem lögreglumaður. Get ég ekki sagt hvort það hafi verið betra að gera manninn óvígan með því að meisa hann eða reyna eðlilega handtöku. Það er hægt að horfa á þetta með svo mörgum hliðum. |
Author: | bjahja [ Mon 09. Jun 2008 15:01 ] |
Post subject: | |
Mér finnst þetta samt best Quote: Hann er búinn að byðja þriðja lögregglumanninn um að fara frá sér
Átti löggan bara að fara ![]() Mega góð stafsetning líka |
Author: | Misdo [ Mon 09. Jun 2008 15:07 ] |
Post subject: | |
meina ef þetta fifl var að berja aðra áður enn þetta gerðist getur hann bara haldið kjafti og biðja lögguna um að fara frá sér o á myndbandinu heyrir maður einhvern aual segja látið hann vera núna ![]() |
Author: | Kristjan [ Mon 09. Jun 2008 17:05 ] |
Post subject: | |
Gott hjá löggunni, þeir stóðu sig vel í þessu. |
Author: | Angelic0- [ Mon 09. Jun 2008 18:10 ] |
Post subject: | |
Röng vinnubrögð, hefðu átt að gera atlögu til þess að handtaka manninn áður en að þeir notuðu piparúðann... Hafi maðurinn brotið að sér.... skil ég alveg að þeir hafi handtekið hann... en þetta eru vafalaust röng vinnubrögð ![]() |
Page 1 of 3 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |