bjahja wrote:
Ég neita því að fólk fari að kvarta yfir einhverju svona
Það er nú alltaf eitthvað af liði sem er til í að kvarta yfir svona. Ég ætla ekki að tjá mig um andlega burði þess fólks...
Quote:
Ég var að misbjóða sjálfri mér með því að horfa á myndbandið frá Patreksfirði þegar lögreglan gasaði mann sem hafði verið með ólæti. Hann neitar að leggjast á jörðina og gengur frá lögreglumönnunum. Þá sprauta þeir á hann.
Ég á ekki eitt einasta orð. Hvers lags þjóðfélag er þetta að verða? Það er ekki nýtt að drukkið fólk sé með ólæti en hingað til hefur ekki þurft að sprauta eitri í augu þess til að ná að handtaka það.
Ég sé enga ofbeldistilburði í garð lögreglunnar frá þessum manni. Það er enginn yfirvofandi árás í gangi og maðurinn gengur frá löggunni.
Svo þjösnast þeir á honum þrír þar sem hann liggur hjálparvana á jörðinni.
Fyrirgefið á meðan ég garga mig hása.
Og á eftir fylgdu 20 tímar í fangelsi.
Ekkert réttlætir svona aðgerðir. Fjandinn hafi það.
Og lögreglustjórinn á Patreksfirði réttlætir ofbeldið og sér ekkert athugavert við þennan gjörning valdstjórnarinnar.
Þetta er pjúra fasismi og ekkert annað.
69.is wrote:
Löggan meisar alveg pollrólegan gæja, sem trompast við það
Og ef menn vilja hoppa í djúpu klepralaugina þá býður húsmæðramenningin upp á eftirfarandi:
http://er.is/messageboard/messageboard.aspx?advid=9944646&advtype=52
http://er.is/messageboard/messageboard.aspx?advid=9944085&advtype=52
http://er.is/messageboard/messageboard.aspx?advid=9940496&advtype=52
Og svo tekst þessu pakki að troða sínum skoðunum á aðra sem ekki vita betur, sem fara niður í bæ og úthúða svo MÉR. Taaaaaaakk...