bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
yfirtaka - auðveld kaup - engin útborgun https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=30027 |
Page 1 of 2 |
Author: | Bjarki [ Sat 07. Jun 2008 19:55 ] |
Post subject: | yfirtaka - auðveld kaup - engin útborgun |
yfirtaka - auðveld kaup - engin útborgun Þetta sér maður ósjaldan þegar auglýstir eru bílar, mótorhjól, sleðar, fjórhjól, hjólhýsi og fleira. Þetta er náttúrlega alveg hrikaleg hamingja að geta bara tekið við hlutunum án þess einu sinna að opna veskið. En hafa menn heyrt af því að fólk sé að skila hlutum inn, þ.e. bara fara með þetta í lánafyrirtækin og leggja spilin á boðið......ég get ekki meira ![]() Ef heyrt af þessu en veit ekki hvort þetta sé rétt.... ef þetta er hægt þá er náttúrlega tóm vitleysa að vera að brenna hlutina. Tíðni bruna í ökutækjum finnst mér hafa aukist talsvert án þess þó að hafa fyrir því frekari heimildir. Kannski er bara um bullandi óheppni að ræða eða þá að öll þessi góða tækni í bílunum sé að klikka! Það geta vondir hlutir gerst, eftirspurn eftir glæsikerrum sem eyða hrikalega minnkar, hækkandi eldsneytisverð, verðbólga og svo ofaná allt tóku menn myntkörfulán með hrikalega hagstæðum vöxtum þegar gengisvísitalan var um 130...... |
Author: | íbbi_ [ Sat 07. Jun 2008 20:42 ] |
Post subject: | |
menn hafa kannski sumir heyrt af því að skila lyklunum.. þú hefur greinilega ekki kynt þér það vel? það er alavega mun hagtæðara að láta bílin brenna, þú skilar ekki lyklum svo auðveldlega af bíl, en sumir sem fengu kannski 4m kr hækkun á einu bílaláni fannst það kannski hagstæðara |
Author: | Spiderman [ Sat 07. Jun 2008 20:50 ] |
Post subject: | |
íbbi_ wrote: menn hafa kannski sumir heyrt af því að skila lyklunum.. þú hefur greinilega ekki kynt þér það vel? það er alavega mun hagtæðara að láta bílin brenna,
þú skilar ekki lyklum svo auðveldlega af bíl, en sumir sem fengu kannski 4m kr hækkun á einu bílaláni fannst það kannski hagstæðara Ég skil ekki hvað menn eru að flýja með því að brenna bílana sína. Tryggingafélögin borga bara raunverð bílsins og restin er bara hirt af lántaka eða ábyrgðarmanni. Er það þess virði að eiga á hættu að verða stungið inn fyrir það eitt að losna við bílinn sinn á raunvirði ![]() |
Author: | Vargur [ Sat 07. Jun 2008 20:51 ] |
Post subject: | |
Quote: Það geta vondir hlutir gerst, eftirspurn eftir glæsikerrum sem eyða hrikalega minnkar, hækkandi eldsneytisverð, verðbólga og svo ofaná allt tóku menn myntkörfulán með hrikalega hagstæðum vöxtum þegar gengisvísitalan var um 130......
Ég held að flestir séu að lenda í kröggum útaf svona hlutum. Lánafyrirtækin hreinlega tróðu lánum með háu veðsetningahlutfalli upp á fólk og svo þegar aðeins harðnar, lánin hækka, reksturinn verður dýrari og almenn heimilisútgjöld hækka þá verður einfaldlega ekki nóg í buddunni til að borga af lánum og erfitt að selja gripina vegna ástandsins. Ég kannast sjálfur við það hversu freistandi er að kaupa bíla og leiktæki á lánum en prísa mig sælan að hafa haldið aftur af mér og eiga bara skemmtilegan aðeins eldri bíl nánast skuldlausan og eldra mótorhjól skuldlaust. Ánægjan af leiktækjunum er mun meiri þegar þau eru ekki baggi á manni. ![]() |
Author: | íbbi_ [ Sat 07. Jun 2008 21:02 ] |
Post subject: | |
Spiderman wrote: íbbi_ wrote: menn hafa kannski sumir heyrt af því að skila lyklunum.. þú hefur greinilega ekki kynt þér það vel? það er alavega mun hagtæðara að láta bílin brenna, þú skilar ekki lyklum svo auðveldlega af bíl, en sumir sem fengu kannski 4m kr hækkun á einu bílaláni fannst það kannski hagstæðara Ég skil ekki hvað menn eru að flýja með því að brenna bílana sína. Tryggingafélögin borga bara raunverð bílsins og restin er bara hirt af lántaka eða ábyrgðarmanni. Er það þess virði að eiga á hættu að verða stungið inn fyrir það eitt að losna við bílinn sinn á raunvirði ![]() engu síður hagstæðara, þú færð allavega raunvirði bílsins þannig, eða fengir, ekki það að ég hafi verið að brenna eða skila bílum, en menn hafa varið vægast sagt illa út úr því að skila inn lyklunum |
Author: | fart [ Sat 07. Jun 2008 21:28 ] |
Post subject: | |
Hlýtur að vera hrikalegt að hafa séð sig knúin til að taka lán til að geta flottari bíl en maður hafði efni á. |
Author: | Alpina [ Sun 08. Jun 2008 01:19 ] |
Post subject: | |
fart wrote: Hlýtur að vera hrikalegt að hafa séð sig knúin til að taka lán til að geta flottari bíl en maður hafði efni á.
bingo |
Author: | sh4rk [ Sun 08. Jun 2008 02:21 ] |
Post subject: | |
Djöfull er ég hrikalega sáttur við að eiga mína 2 gömlu bimma allveg skuldlaust heldur en að vera með einhver lán á bakinu. Og það er nú hægt að kaupa ansi margt fyrir vextina á 3milljón kr bíl |
Author: | Danni [ Sun 08. Jun 2008 03:13 ] |
Post subject: | |
Ég bara skil ekki af hverju fólk ætti að vilja brenna góða bíla til að losna við lán. Mér finnst ekkert að því að taka lán fyrir bílum en finnst að maður eigi að ráða við afborganirnar að minnsta kosti. Að vísu er ég sjálfur búinn að ákveða að borga niður lánin mín á fullu og borga niður lánin og eiga þetta skuldlaust, enda farinn að sjá eftir að hafa farið lánaleiðina. En ég hef aldrei lent í þeirri stöðu að fá vanskil á lán eða dottið í hug að brenna bíl sem ég á til að losna við hann. Frekar sit ég uppi með hann og lánið og tek bara á mínum mistökum eins og maður enda var þetta allt undir mér komið til að byrja með. Það er kannski aumingjalegt að taka lán til að fá flottari hluti en maður hefur efni á, en það er ennþá aumingjalegra að brenna hlutina því maður hafði ekki einusinni efni á láninu! |
Author: | Kristjan [ Sun 08. Jun 2008 04:19 ] |
Post subject: | |
Bíða þangað til maður getur keypt sér það sem manni langar í, það er key. |
Author: | GudmundurGeir [ Sun 08. Jun 2008 15:09 ] |
Post subject: | |
Feginn að hafa aldrei látið freistast og tekið yfir láni á einhvejrum bíl ![]() Ég hef ekki skuldað í bíl þannig ég á Accentinn minn alveg sjálfur ![]() ![]() |
Author: | bebecar [ Sun 08. Jun 2008 16:38 ] |
Post subject: | |
íbbi_ wrote: Spiderman wrote: íbbi_ wrote: menn hafa kannski sumir heyrt af því að skila lyklunum.. þú hefur greinilega ekki kynt þér það vel? það er alavega mun hagtæðara að láta bílin brenna, þú skilar ekki lyklum svo auðveldlega af bíl, en sumir sem fengu kannski 4m kr hækkun á einu bílaláni fannst það kannski hagstæðara Ég skil ekki hvað menn eru að flýja með því að brenna bílana sína. Tryggingafélögin borga bara raunverð bílsins og restin er bara hirt af lántaka eða ábyrgðarmanni. Er það þess virði að eiga á hættu að verða stungið inn fyrir það eitt að losna við bílinn sinn á raunvirði ![]() engu síður hagstæðara, þú færð allavega raunvirði bílsins þannig, eða fengir, ekki það að ég hafi verið að brenna eða skila bílum, en menn hafa varið vægast sagt illa út úr því að skila inn lyklunum Það er náttúrulega glæpur að kveikja í bíl af ásettu ráði og örvæntingin má vera mikil til þess að menn láti sér detta slík vitleysa í hug. En svona fyrir þá sem ekki vita, hvað gerist eiginlega þegar lyklinum er skilað inn - hvernig fara menn ílla út úr því og hve ílla? |
Author: | totihs [ Sun 08. Jun 2008 16:57 ] |
Post subject: | |
bebecar wrote: En svona fyrir þá sem ekki vita, hvað gerist eiginlega þegar lyklinum er skilað inn - hvernig fara menn ílla út úr því og hve ílla?
Án þess að ég vita eitthvað um það gæti ég trúað að þetta virki þannig að bankinn taka bílinn á einhverju brandaverði. |
Author: | Bjarki [ Fri 13. Jun 2008 11:16 ] |
Post subject: | |
Vargur wrote: Lánafyrirtækin hreinlega tróðu lánum með háu veðsetningahlutfalli upp á fólk Það var auðvelt að komast í fjármagn og vextir voru hagstæðir, auðvitað buðu lánafyrirtækin þetta áfram til fólks. Ef heimsmarkaðsverð á eplum er hagstætt þá viljum við líka fá þau ódýr í búðunum. Kaupmenn eru samt ekkert að troða eplum upp á okkur.... íbbi_ wrote: þú skilar ekki lyklum svo auðveldlega af bíl, en sumir sem fengu kannski 4m kr hækkun á einu bílaláni fannst það kannski hagstæðara Menn fengu nú ekki þessa hækkun svona allt í einu þeir tóku ákvörðun um það að taka áhættu, þeir sem þetta gerðu hlýtur að hafa fundist það fýsilegur kostur. Mönnum þótti það sniðugt að taka bílalán til frekar skamms tíma í erlendri mynt, óverðtryggt á hagstæðum vöxtum og taka gjaldeyrisáhættu, gengisvísitalan var öllum ljós. Menn standa svo bara og falla með þeim ákvörðunum sem þeir taka, það á við um alla. Ég myndi kalla þetta mjög gott dæmi um áhættusækna fjármögnun! Ef þetta hefði tekist og þegar þetta var í lagi þá vöru sömu aðilar örugglega mjög ánægðir, gott og gilt.... kannski gengur þetta til baka, kannski var þetta allt útpælt hjá þeim sem tóku þessi lán, hver veit. Quote: en menn hafa varið vægast sagt illa út úr því að skila inn lyklunum
Þegar menn verða svangir þá gera þeir bara það sem þarf að gera. Það er fólk þarna úti sem situr uppi með jafnvel tvo bíla sem það getur ekki losað sig við og ná ekki endum saman og eiga varla fyrir mat. |
Author: | Giz [ Fri 13. Jun 2008 11:31 ] |
Post subject: | |
Quote: Þegar menn verða svangir þá gera þeir bara það sem þarf að gera. Það er fólk þarna úti sem situr uppi með jafnvel tvo bíla sem það getur ekki losað sig við og ná ekki endum saman og eiga varla fyrir mat.
Nú er ansi magnað að horfa á þetta utanfrá, hversu margir ætli séu í slíkri stöðu? Og hvert ætli stigið þar á undan sé? Ég hef til gamans verið að skoða íslensk blöð undanfarið og það er stundum ansi hlægilegt á hvaða verði sumir bílar eru auglýstir á, langt undir markaðsverði augljóslega og langt undir verði í DE oft á tíðum. G |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |