bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Sturla stofnar Lýðræðisflokkinn
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=29996
Page 1 of 2

Author:  basten [ Fri 06. Jun 2008 13:06 ]
Post subject:  Sturla stofnar Lýðræðisflokkinn

Held þetta sé með því sorglegra sem ég hef séð.

http://www.visir.is/article/20080606/FR ... /579422784

Fólk heldur greinilega að það sé bara nóg að geta rifið kjaft til þess að komast á Alþingi. Mikið til af fólki sem bendir á hvað er að, en sama fólk á oft erfitt með að koma með góðar lausnir. Sturla heldur ábyggilega að það kosti ekki neitt að reka íslenska ríkið og því sé hægt að lækka skatta og álögur endalaust á hitt og þetta.

Spái því að þessi flokkur muni hugsanlega renna saman við annað framboð sem floppaði og innan tíðar verði Ómar Ragnarsson, Margrét Sverrisdóttir og Jakob Frímann komin í Lýðræðisflokkinn.
Glæsileg samsuða það.

Author:  bjahja [ Fri 06. Jun 2008 13:20 ]
Post subject: 

Vá ég trúi ekki að einhver sem hefur heyrt þennan mann tala eigi eftir að kjósa þennan flokk :lol:

Author:  jens [ Fri 06. Jun 2008 13:40 ]
Post subject: 

Ætla ekki að tjá mig um personuna en finnst vera kominn tími fyrir að stjórnmálmenn fái aðhald og farið verði í mál eins og húsnæðismál, verðtryggingu á lánum og fleiri hagsmunamál fyrir okkur sem erum að basla við að koma þaki yfir höfuðið og mennta sjálfan sig og börnin sín. Ég fagna því að menn taki málin í sýnar hendur og vona svo bara að það verði eitthvað vit í því sem þessi nýstofnaði flokkur tekur sér fyrir hendur.

Author:  ///M [ Fri 06. Jun 2008 13:42 ]
Post subject: 

:lol: maður sér ekki eftir því að vera yfirgefa þessa eyju

Author:  fart [ Fri 06. Jun 2008 13:53 ]
Post subject: 

///M wrote:
:lol: maður sér ekki eftir því að vera yfirgefa þessa eyju


Hvert á að fara?

Author:  ///M [ Fri 06. Jun 2008 14:02 ]
Post subject: 

fart wrote:
///M wrote:
:lol: maður sér ekki eftir því að vera yfirgefa þessa eyju


Hvert á að fara?


Er að flytja til London að vinna í branchinu okkar þar :)

Author:  fart [ Fri 06. Jun 2008 14:04 ]
Post subject: 

///M wrote:
fart wrote:
///M wrote:
:lol: maður sér ekki eftir því að vera yfirgefa þessa eyju


Hvert á að fara?


Er að flytja til London að vinna í branchinu okkar þar :)


Nice.. 5 tíma akstur á slaufuna. 8)

Author:  ///M [ Fri 06. Jun 2008 14:17 ]
Post subject: 

fart wrote:
///M wrote:
fart wrote:
///M wrote:
:lol: maður sér ekki eftir því að vera yfirgefa þessa eyju


Hvert á að fara?


Er að flytja til London að vinna í branchinu okkar þar :)


Nice.. 5 tíma akstur á slaufuna. 8)


Já.. maður sér til hvað maður nær að halda lengi aftur af sér að fá sér eitthvað dót :lol:

Author:  Lilja [ Fri 06. Jun 2008 16:33 ]
Post subject: 

*kjánahrollur dauðans*

Ég get ekki ímyndað mér að þessi flokkur fái stóran bita af atkvæðakökunni.

Author:  birkire [ Fri 06. Jun 2008 21:32 ]
Post subject: 

Ekki mikill aðdáandi þessa manns, en ég vill heldur sjá hann á þingi en Árna Johnsen.

Author:  Alpina [ Fri 06. Jun 2008 21:36 ]
Post subject: 

///M wrote:
:lol: maður sér ekki eftir því að vera yfirgefa þessa eyju


farið hefur fé betra :lol: :lol: :lol:

Author:  Hlynzi [ Fri 06. Jun 2008 21:53 ]
Post subject: 

Hann Sturla hefur samt ákveðinn drifkraft og margar skoðanir sem eru mjög réttar og margt til í því sem hann segir, þótt hann sé nú ekki góður í ræðum.

Ég veit ekki hvort einhver muni kjósa þennan flokk, en núverandi stjórnvöld gera lítið í sinni vinnu.

Author:  Lilja [ Fri 06. Jun 2008 23:06 ]
Post subject: 

Hlynzi wrote:
Hann Sturla hefur samt ákveðinn drifkraft og margar skoðanir sem eru mjög réttar og margt til í því sem hann segir, þótt hann sé nú ekki góður í ræðum.

Ég veit ekki hvort einhver muni kjósa þennan flokk, en núverandi stjórnvöld gera lítið í sinni vinnu.


Hvernig færðu það út?

Author:  IngóJP [ Fri 06. Jun 2008 23:35 ]
Post subject: 

Frekar hart að segja að núverandi stjórnvöld geri lítið. Þau gera mjög mikið þó svo ekki allir séu sammála þeirra gerðum og ákvörðunum.

Author:  totihs [ Sat 07. Jun 2008 00:35 ]
Post subject: 

Er þetta ekki bara eitthvað statement? Mennirnir búast varla við því að komast inn á þing.

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/