bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Dodge Magnum
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=29993
Page 1 of 2

Author:  Höfuðpaurinn [ Fri 06. Jun 2008 11:09 ]
Post subject:  Dodge Magnum

Sælir,

svona fyrst maður er alltaf að reyna að vera aktívari í þessari umræðu hérna, ákvað ég að skella inn smá þræði um fínasta gripinn minn.

Umrættur gripur er ættaður frá því stórmerkilega landi U S and A, ef ég man rétt er hann þó fæddur í Kanada og var gefið þetta stórmerkilega nafn Dodge Magnum.

Ég hef nú ekkert fiktað í vélinni á honum, því jú þetta er nú bara cruizer útgáfan, en ég lappaði aðeins upp á útlitið og læt bara myndirnar um að segja þá sögu. Vara ykkur þó við að ég er enginn myndasmiður og þessi litur er töluvert betri með eigin augum.

Svona leit hann út þegar ég keypti hann
Image

hérna er hann svo kominn heim og fékk hann aðeins betri skó líka
Image

svo var honum aðeins skeint og urðu ljósin smekklegri fyrir vikið
Image

og fyrst maður fór að skeina honum, var alveg upplagt að snýta honum líka
Image

horið var svo mikið að ég þurfti að snýta honum oft og mörgum sinnum til að losna við það allt
Image

svo fór hann í augnaðgerð líka
Image
Image

og svo nokkrar svona til að gefa þessu heilstæðari svip
Image
Image
Image

hvernig lýst ykkur á?

kv,
Höfuðpaurinn

ps. rétt er að benda á að gripurinn er falur, pm for info.

Author:  srr [ Fri 06. Jun 2008 11:34 ]
Post subject: 

Flottir bílar....

...nema hvað ég vorkenni þér að kaupa dekk á þetta :wink:

Author:  Höfuðpaurinn [ Fri 06. Jun 2008 12:02 ]
Post subject: 

srr wrote:
Flottir bílar....

...nema hvað ég vorkenni þér að kaupa dekk á þetta :wink:


haha, jújú, þau eru ekki alveg þau ódýrustu, en þetta sem er undir honum er nánast nýtt, þannig að það er langt í slíkan höfuðverk.

Author:  ///M [ Fri 06. Jun 2008 12:03 ]
Post subject: 

Ég bara verð að segja að þetta er með því ljótara sem maður sér á götunum :oops:

Author:  saemi [ Fri 06. Jun 2008 13:05 ]
Post subject: 

Ekki minn stíll.

En hverjum finnst sinn fugl fagur :D

Author:  bjahja [ Fri 06. Jun 2008 13:21 ]
Post subject: 

Flottur krúser 8)

Author:  Dogma [ Fri 06. Jun 2008 14:21 ]
Post subject: 

geðveikur 8)

Author:  skaripuki [ Fri 06. Jun 2008 15:37 ]
Post subject: 

hrikalega flottur,, mætti honum um daginn og hringsnérist alveg á eftir honum hausinn á mér 8)

Author:  doddi1 [ Fri 06. Jun 2008 16:04 ]
Post subject: 

ég er að samþykkja þessar breytingar...

mjög flottur hjá þér 8)

Author:  Höfuðpaurinn [ Fri 06. Jun 2008 16:19 ]
Post subject: 

ég þakka hólið, og fer ég nú ekki að væla þó að þetta heilli ekki alla, því jú smekkur manna er misjafn.

en helvíti þykir mér skondið hvað menn eru miklu duglegri að svara hér en í þræðinum sem ég reyndi svona að halda við þegar ég var að klappa beamernum.

Author:  Alpina [ Fri 06. Jun 2008 18:54 ]
Post subject: 

BARA kúl,,, 8) 8)

Author:  íbbi_ [ Fri 06. Jun 2008 19:45 ]
Post subject: 

það er alveg gaman af þessum amerísku teppum, ég á charger , ótrúlegt hvað það er glápt á þetta í umferðini,

hvaða mótor er í þessum?

Author:  Axel Jóhann [ Fri 06. Jun 2008 19:47 ]
Post subject: 

Þetta eru bara svalir bílar og þetta voru breytingar til hins betra hjá þér. 8)

Author:  Hlynzi [ Fri 06. Jun 2008 21:56 ]
Post subject: 

Fínar breytingar.
Þessir bílar eru virkilega öfgakenndir, stórar felgur og littlar rúður, samt cool factor í þessu.

Author:  20"Tommi [ Sat 07. Jun 2008 09:54 ]
Post subject: 

Vont var það ..
skánaði aðeins eftir breytingar...
Mustang er það eina Ameriku dót sem sleppur...Og þetta fucking pip þegar að maður opnar hurðarnar á þessu gérir mann geðveikan...

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/