bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
[OT] Ísbjörn https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=29919 |
Page 1 of 8 |
Author: | Stanky [ Tue 03. Jun 2008 16:20 ] |
Post subject: | [OT] Ísbjörn |
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/0 ... vitabjorn/ Enn og aftur skítur lögreglan í skó. Djöfull eru þeir búnir að fylla mörg pör. Þetta er ómennska. Bananalýðveldið Ísland. Þessir sveitadurgar hafa haft gaman af því að geta loks mundað byssurnar með flottu kíkjunum.... geta þeir ekki skotið hvorn annan eða áldósir? Það er einsog það sé önnur menning úti á landi en í siðmenningunni í Reykjavík. |
Author: | Geirinn [ Tue 03. Jun 2008 16:22 ] |
Post subject: | |
Ég er ekki meðlimur Green Peace en mér finnst þetta vera að drepa "afþvíbara". |
Author: | bjahja [ Tue 03. Jun 2008 16:22 ] |
Post subject: | |
Þetta er fáránlegt, björninn var víst farinn að ógna fólki...........en samt skutu þeir hann af því hann var að fara uppí fjall og þeir voru hræddir um að týna honum. Fáránlegt. |
Author: | Steinieini [ Tue 03. Jun 2008 16:23 ] |
Post subject: | |
...... |
Author: | Stanky [ Tue 03. Jun 2008 16:30 ] |
Post subject: | |
Hefði verið gott international stunt að fá headlines úti "Iceland saves a dying species - POLAR BEAR KNÚTUR" Svona til að vega upp á móti hvaldrápunum ![]() |
Author: | Stanky [ Tue 03. Jun 2008 16:41 ] |
Post subject: | |
Hahahahaha - Baggalútur góðir ![]() Þú komst yfir hafið á heiðskírum degi á hreina Íslands jörð úr nístingsköldum norðurvegi að nema Skagafjörð. Þú stikaðir frjáls um fjallanna sali um fagra Íslands grund; velkominn gekkstu um grösuga dali – gleymdir þér um stund. Þú örmagna, máttfarinn, lagðist í laut á ljúfri Íslands fold uns kyrrðin dreif þig í draumanna skaut í dúnmjúkri gróðurmold. Þar sáu þig tortryggnir blauðgeðja bændur – þeir byggja Íslands lönd. Vitstola hringdu í vopnfæra frændur sem vildu þig þegar í bönd. Þeir umkringdu þig, sem þekktir ei hlekki en þvældist um íslenskt hlað. Þeir skelfast frelsið sem skilja það ekki – og skjóta í hjartastað. |
Author: | E55FFFan [ Tue 03. Jun 2008 16:49 ] |
Post subject: | Re: [OT] Ísbjörn |
hálfvitar |
Author: | IngóJP [ Tue 03. Jun 2008 16:49 ] |
Post subject: | |
Þetta þykir mér alveg fáranlegt. Hefði ekki verið nær að svæfa dýrið bara. Eða búum við ekki yfir þessum deyfi pílum sem allar aðrar þjóðir virðast eiga |
Author: | arnibjorn [ Tue 03. Jun 2008 16:52 ] |
Post subject: | |
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/20 ... a_veginum/ Quote: Egill segist hafa komið á staðinn en þá var búið að fella ísbjörninn. Hann segir það rangt að ekki sé til deyfilyf í landinu, líkt og umhverfisráðherra, Þórunn Sveinbjarnardóttir, sagði í samtali við mbl.is. „Ég er meira að segja með deyfilyf í bílnum hjá mér og það er til deyfibyssa hjá dýralækninum á Egilsstöðum. Ef hún hefði verið send með flugi þá hefði byssan verið komin á staðinn eftir klukkustund," segir Egill í samtali við mbl.is.
Egill segir að ekki hafi verið vandasamt að útbúa gildru þar sem hægt hefði verið að lokka dýrið inn í. Þrátt fyrir að hann hafi ekki verið með byssuna með sér þá hefði verið hægt að setja deyfilyfið í æti enda ísbjörninn að öllum líkindum svangur. Algjör óþarfi að skjóta dýrið finnst mér |
Author: | Brútus [ Tue 03. Jun 2008 17:03 ] |
Post subject: | |
Ef að hann hefði ráðist á einhvern þá hefðu allir vælt yfir því að hann hefði ekki verið skotinn. Það var bara verið að koma í veg fyrir slys á fólki eða smit. Rétt move, og svo viti þið ekkert hvort að hann hefði borðið eitthvað með sér hingað til lands. |
Author: | Kristjan [ Tue 03. Jun 2008 17:13 ] |
Post subject: | |
Mér fannst þeir full fljótir á sér að drepa dýrið, en þetta er jú hættulegt rándýr sem hefði ekki verið sniðugt að missa í þokuna. |
Author: | Eggert [ Tue 03. Jun 2008 17:35 ] |
Post subject: | |
Já, mér finnst alveg fáránlegt að það hafi ekki einu sinni verið reynt að halda honum á lífi. Það þarf ekki að vera til bók um hvernig eigi að handsama glorsoltinn og máttvana björn, eins og ráðherrann virtist halda. Hefði ekki verið nóg að byrja á að hrúga einhverju kjöti þarna með deyfilyfjum fyrir greyið, og henda honum svo í einhverja vel valda hestakerru (steeeeeinsofandi) meðan það er hringt í dýragarða erlendis til að forvitnast um hvernig sé best að bregðast við og höndla málið. Ég er búinn að vera pirraður yfir þessu í allan dag. Sorgardagur... ![]() |
Author: | Kull [ Tue 03. Jun 2008 17:45 ] |
Post subject: | |
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/20 ... naesta_hv/ Quote: Aðstæður kröfðust þess að dýrið yrði fellt.
Aðgerð sem þessi er afar flókin og krefst þess að til verksins sé notuð þyrla og sérþjálfað starfsfólk. Ef svæfing heppnast þarf að flytja dýrið í neti frá þeim stað þar sem það liggur og í sérhannað búr. Flutningstími má ekki vera langur vegna þess að áhrif svæfingar fjara út og að auki geta flutningar reynst dýrinu lífshættulegir. Hvorki tækni- né sérfræðiþekking á slíkri aðgerð er fyrir hendi hér á landi. Mikið til í þessu, hægara sagt en gert að svæfa svona dýr og flytja án áhættu. Lítið annað að gera eins og staðan var en að fella dýrið, ekki hefði verið gott að týna því í þokunni og frétta næst af einhverjum látnum fjallagarpinum eða álíka. Samt frekar lélegt að það sé ekki til nein áætlun um hvað eigi að gera í svona málum, það er klárlega eitthvað sem umhverfisráðuneytið þarf að laga og verður vonandi gert sem fyrst. |
Author: | Steinieini [ Tue 03. Jun 2008 17:54 ] |
Post subject: | |
![]() |
Author: | E55FFFan [ Tue 03. Jun 2008 17:59 ] |
Post subject: | |
Steinieini wrote: ![]() það þurfti alveg 5 menn til þess að fella einn ísbjörn niður, hálfvitar sem fá aldrei færi |
Page 1 of 8 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |