bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Inspection II ....
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=29791
Page 1 of 2

Author:  trigger [ Wed 28. May 2008 15:30 ]
Post subject:  Inspection II ....

.... er eðlilegur hluti þess að vera BMW-eigandi að vera með hnút í maganum þegar styttist í að maður sæki bílinn sinn úr Inspection II ?

Author:  IceDev [ Wed 28. May 2008 15:33 ]
Post subject: 

Aldrei færi ég með bílinnn minn í Inspection II. Of dýrt m.v hvað sé gert

Author:  Einarsss [ Wed 28. May 2008 15:35 ]
Post subject: 

IceDev wrote:
Aldrei færi ég með bílinnn minn í Inspection II. Of dýrt m.v hvað sé gert


fer nú eftir aldri og virði bílsins og hvort þjónustusagan hafi áhrif á söluverð bílsins.

Ég slapp ágætlega út úr Inspection II í 123k .... kostaði mig 60 þúsund

Author:  trigger [ Wed 28. May 2008 15:38 ]
Post subject: 

60 þús! Ha það er nú bara brandari :P

Author:  Einarsss [ Wed 28. May 2008 15:43 ]
Post subject: 

enda góður bíll sem hefur verið vel viðhaldið ... hann er btw til sölu ;)

Author:  gunnar [ Wed 28. May 2008 16:16 ]
Post subject: 

Mér væri alla vega ekki rótt ef ég væri eigandi á E38 750 í Inspection II alla vega :lol:

Author:  Arnarf [ Wed 28. May 2008 16:19 ]
Post subject: 

Eða spenntur við að fá bílinn góðan til baka :)

Author:  elli [ Wed 28. May 2008 16:24 ]
Post subject:  Re: Inspection II ....

trigger wrote:
.... er eðlilegur hluti þess að vera BMW-eigandi að vera með hnút í maganum þegar styttist í að maður sæki bílinn sinn úr Inspection II ?

Ég hef verið að leita að atriðum sem eru framkvæmd í inspection I og II á M73 bílum.
Hafið þið fundið slíkan lista?

Author:  gunnar [ Wed 28. May 2008 16:24 ]
Post subject: 

Arnarf wrote:
Eða spenntur við að fá bílinn góðan til baka :)


Það þýðir víst nú lítið ef bíllinn er góður en buddan tóm! :lol: :lol:

Author:  trigger [ Wed 28. May 2008 16:42 ]
Post subject:  Re: Inspection II ....

elli wrote:
Ég hef verið að leita að atriðum sem eru framkvæmd í inspection I og II á M73 bílum.
Hafið þið fundið slíkan lista?


Ég rakst á þessa lýsingu en hún er dálítið almenns eðlis.

Hmmm, var að fá upplýsingar frá B&L um að þeir myndu hafa hann yfir nótt hjá sér, það getur ekki boðað gott :twisted:

Author:  trigger [ Wed 28. May 2008 16:43 ]
Post subject: 

gunnar wrote:
Mér væri alla vega ekki rótt ef ég væri eigandi á E38 750 í Inspection II alla vega :lol:


... og svo ætla þeir að láta mann engjast í allt kvöld og fram á morgundaginn.... sjit ég þarf að fara í Ríkið!

Author:  gunnar [ Wed 28. May 2008 16:54 ]
Post subject: 

trigger wrote:
gunnar wrote:
Mér væri alla vega ekki rótt ef ég væri eigandi á E38 750 í Inspection II alla vega :lol:


... og svo ætla þeir að láta mann engjast í allt kvöld og fram á morgundaginn.... sjit ég þarf að fara í Ríkið!


Já ætli það sé ekki best að vera örlítið í annari tánni svona þegar þú færð reikningin. Hvort sem hann er á einni eða fleirum blaðsíðum :lol: :lol:

Author:  arnibjorn [ Wed 28. May 2008 16:56 ]
Post subject: 

trigger wrote:
gunnar wrote:
Mér væri alla vega ekki rótt ef ég væri eigandi á E38 750 í Inspection II alla vega :lol:


... og svo ætla þeir að láta mann engjast í allt kvöld og fram á morgundaginn.... sjit ég þarf að fara í Ríkið!


Drífðu þig meðan þú átt pening! :lol:

Author:  trigger [ Wed 28. May 2008 16:56 ]
Post subject: 

gunnar wrote:
Já ætli það sé ekki best að vera örlítið í annari tánni svona þegar þú færð reikningin. Hvort sem hann er á einni eða fleirum blaðsíðum :lol: :lol:


Já ... gæti flækt málið að þurfa þá að vera með driver með sér á staðinn... en ætli maður fái ekki reikninginn bara heim í bögglapósti ( eins og einn ónefndur félagi minn fékk sakaskrána sína senda ...).

Ég veðja á .... kvartmilljón!

Author:  gunnar [ Wed 28. May 2008 17:01 ]
Post subject: 

Já það er ekkert annað..

Maður vonar það besta en býst við hinu versta... :? :shock:

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/