bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Er einhver sem getur deilt reynslu af innflutning frá USA?
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=29731
Page 1 of 1

Author:  bebecar [ Mon 26. May 2008 12:18 ]
Post subject:  Er einhver sem getur deilt reynslu af innflutning frá USA?

Þar sem dollarinn er afskaplega lágur gagnvart evru þá er ég eiginlega tilneyddur til að horfa líka til USA til innflutnings á næsta mótorhjóli.

Það munar um 40% á verði umreiknað yfir í evrur miðað við gengi dagsins í dag.

Spurningin er því hvernig þarf að standa að innflutningnum til þess að þetta borgi sig? Þetta yrði reyndar flutt til DK eða DE (ef það er miklu hagstæðara).

Þarf hjólið ekki að vera nálægt höfn, eða á að taka það með flugi? Ég er alveg grænn í þessu þannig að ég spyr bara (búin að nota leitina hér og sá ekkert í fljótu bragði).

Umrætt mótorhjól er í New Hampshire 03862 t.d.

Hvernig ætti maður að flytja þetta og hvað má maður reikna með að það kosti?

Author:  Thrullerinn [ Mon 26. May 2008 12:39 ]
Post subject: 

Fraktin er orðinn hel-dýr...

Það hafa mörg hjól verið flutt inn upp á síðkastið, mjög hagstætt er að
taka sig saman og fylla heilan gám af hjólum.

Það þarf væntanlega bara að setja hjólið á "bracktet" sem er annaðhvort
sérsmíðað eða bretti og sem hjólið er svo strappað á. (crating)

Author:  bebecar [ Mon 26. May 2008 12:45 ]
Post subject: 

Thrullerinn wrote:
Fraktin er orðinn hel-dýr...

Það hafa mörg hjól verið flutt inn upp á síðkastið, mjög hagstætt er að
taka sig saman og fylla heilan gám af hjólum.

Það þarf væntanlega bara að setja hjólið á "bracktet" sem er annaðhvort
sérsmíðað eða bretti og sem hjólið er svo strappað á. (crating)


Ég rakst á einhvern á spjalli hér í DK sem var að var að flytja hjól heim í gegnum einhvern Dana í USA á 3000 DKK. Það finnst mér fáránlega lítið. Líklegast eru það þó nokkur hjól saman í gám.

Author:  Giz [ Mon 26. May 2008 14:52 ]
Post subject: 

Og að sama skapi varðandi bílaflutning, það er væntanlega orðið fjandi dýrt að flytja bíl frá USA til meginlands Evrópu? Og kannski bara tómt vesen einnig?

G

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/