Page 1 of 1

Vantar fólk í gæslu á innanbæjarleið

PostPosted: Wed 07. May 2008 21:15
by siggir
Sælir kæru limir,

Um aðra helgi, föstudaginn 16. og laugardaginn 17. maí, verður fyrsta umferð Íslandsmótsins í rallakstri haldin. Við erum að reyna að fá leyfi fyrir innanbæjarleið í Hafnarfirði á föstudagskvöldinu (16. maí) en til að það gangi þarf að minnsta kosti 25 manns í gæslu ! Þeir sem hafa áhuga á að hjálpa til geta sent fullt nafn, kennitölu og símanúmer á netfangið doddi@varahlutir.is eða til mín með ep.

Leiðin verður einhvernvegin svona:

Image
Kænan er við höfnina í Hafnarfirði þar sem Orkan er með bensínstöð.

Sjálfboðavinna sem þessi er besta leiðin til að kynnast mótorsporti frá fyrstu hendi. Þetta er ekki flókin vinna; ég var t.d. í gæslu á driftkeppninni í hitteðfyrra og mér leið eins og áhorfanda nema ég fékk að standa nær.

Hafið endilega samband. Við þurfum 25-30 manns til að fá leyfi frá lögreglu.

Re: Vantar fólk í gæslu á innanbæjarleið

PostPosted: Wed 07. May 2008 21:18
by Kwóti
siggir wrote:Sælir kæru limir,

Um aðra helgi verður fyrsta umferð Íslandsmótsins í rallakstri haldin.


hvaða helgi ?

Re: Vantar fólk í gæslu á innanbæjarleið

PostPosted: Wed 07. May 2008 21:24
by siggir
Kwóti wrote:
siggir wrote:Sælir kæru limir,

Um aðra helgi verður fyrsta umferð Íslandsmótsins í rallakstri haldin.


hvaða helgi ?


Ekki næstu heldur þar á eftir. Þetta er semsagt föstudagurinn 16. maí ;)