Já ég er semsagt að fara út á föstudaginn 09.05 með vinnunni. Förum í helgarferð út til Lommel, Belgíu. Svo tek ég tvær vikur í sumarfrí og ætla að ferðast innan Evrópu. Flýg til Amsterdam tek rútu til Lommel á föstudeginum. Verð svo þrjár nætur á DHL Eurocup móti sem er haldið í Lommel bænum. Svo fer ég og einn annar um borð í lest á mánudeginum! Við erum eiginleg að fara á Nasista slóðir. Ég var búinn að sjá nokkra þræði undanfarið um ferðir manna. Þannig að endilega koma með uppástungur eða athugasemdir! Ath. fyrsta skiptið til Þýskalands, Hollands, Belgíu, Austurríki, Slóveníu og Póllands.
Einfalt Plan:
Keflavík - Amsterdam - Lommel
Austurríki
Salzburg (Kehlsteinhaus, Eagle's Nest)
Salzburg borgin sjálf.
Vín
Ungverjaland
Budapest - Debrecen heimsækja bróðir minn.
Slóvenía
Pólland
Auschwitz skoða safnið.
Svo Þýskaland:
Áhugaverðar borgir!
Pennemunde
Dresden
Munster
Berlin
Frankfurt
Nurnberg
P.S. Mikill áhugi á WWII hjá okkur vinunum en myndi hiklaust stoppa á áhugaverðum stað sem tengist bílaáhuganum. Ég veit að þetta er ekki langur tími en það er betra að hafa nógu mikið en of lítið. Manni langar nú að sjá allan heiminn einu sinni



