bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Slit vega - flutningabílar vs. nagladekk?
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=29296
Page 1 of 2

Author:  bebecar [ Tue 06. May 2008 15:00 ]
Post subject:  Slit vega - flutningabílar vs. nagladekk?

Hver vinnur samkvæmt ykkar skilningi á þessu (skemmir meira)

Slit vegna vörubíls með 80% hleðslu getur verið á við umferð 9000 bíla. Nagladekk hinsvegar.....

Quote:
Þá segir í svarinu að ef horft sé til slits nagladekkja á bundnum slitlögum megi ætla að það geti verið um fjórum sinnum meira miðað við hvert dekk flutningabílsins. Það geti þó verið háð ýmsum forsendum, svo sem þyngd nagla, gerð slitlags o.fl.

http://visir.is/article/20080506/FRETTIR01/21962514

Author:  FinnurKarls [ Tue 06. May 2008 15:07 ]
Post subject: 

brútal

Author:  ///M [ Tue 06. May 2008 15:09 ]
Post subject: 

Jájá megi ætla, mögulega, kannski, að það séu einhverjar líkur :lol:

Author:  Zyklus [ Tue 06. May 2008 15:11 ]
Post subject: 

Og svo vilja menn lækka álögur á eldsneyti en hverjir græða mest á því?
Jú, vörubílstjórar. En þeir slíta jafnframt vegunum mest.
Ef eitthvað er þá ætti að hafa sérstakar álögur á flutningabíla, því það er ekkert nema sanngjarnt að þeir sem slíta vegunum mest borgi líka í samræmi við það.
Ég held að skattborgarar þessa lands hafi engan áhuga á að niðurgreiða flutninga vörubíla.

Author:  bebecar [ Tue 06. May 2008 15:57 ]
Post subject: 

///M wrote:
Jájá megi ætla, mögulega, kannski, að það séu einhverjar líkur :lol:

Ég held að það sé ekki megin atriðið, heldur það eitt að nagladekk slíti á við vörubíls dekk, hvað þá ef "ætla megi" að það sé fjórum sinnum meira.

Er ekki kominn tími til að leggja þessi fornaldar dekk af eða í það minnsta leyfa þeim sem nota þau að greiða fyrir tjónið?

Það þarf að hafa eitt í huga í sambandi við vörubílana að vandamálið væri ekki svona mikið ef vegirnir hefðu verið gerðir þannig úr garði í upphafi að þeir bæru vörubíla umferð í einhverju mæli.

Nagladekkin hinsvegar - þau skemma hvort sem vegurinn ber þungaflutninga eða ekki.

Author:  bimmer [ Tue 06. May 2008 16:03 ]
Post subject: 

Zyklus wrote:
Ég held að skattborgarar þessa lands hafi engan áhuga á að niðurgreiða flutninga vörubíla.

Við endum á að borga þetta hvort sem það er í niðurgreiðslum eða
með hærra vöruverði (sem yrði afleiðingin ef álögurnar færu á flutningsaðilana).

Author:  bebecar [ Tue 06. May 2008 16:27 ]
Post subject: 

bimmer wrote:
Zyklus wrote:
Ég held að skattborgarar þessa lands hafi engan áhuga á að niðurgreiða flutninga vörubíla.

Við endum á að borga þetta hvort sem það er í niðurgreiðslum eða
með hærra vöruverði (sem yrði afleiðingin ef álögurnar færu á flutningsaðilana).

Hárrétt - en það gæti þó kannski orðið til þess að einhverjir myndu velja sjóflutninga í staðinn. Annars trúir maður varla öðru en að það gæti borgað sig að senda meira með flugi við núverandi kringumstæður - t.d. plássfreka en létta fragt (salat og poppkorn :lol: )

Author:  basten [ Tue 06. May 2008 16:33 ]
Post subject: 

Ég keyri nokkuð mikið á milli Rvk og Sauðárkróks og á vegna þess 3 dekkjaganga á felgum undir bílinn minn. Einn gangurinn er sumardekk, annar ónegld vetrardekk og sá þriðji negld vetrardekk.

Eins og sl. vetur var þá hefði verið ómögulegt fyrir mig að vera eingöngu með ónegld vetrardekk. Hálkan á vegum úti á landi getur verið alveg svakaleg og ég myndi aldrei í slíkum tilfellum aka á veginum með fjölskylduna með mér verandi á ónegldum vetrardekkjum.

Mér finnst ekki hægt að banna nagladekkin yfirhöfuð, allavega ekki á landsbyggðinni. Svo er auðvitað erfitt að ætla að banna þau innanbæjar á höfuðborgarsvæðinu þar sem þar yrði um klára mismunun að ræða, auk þess sem fólk gæti alltaf sagst vera á leið út á land.

Mörg þessara nýju dekkja; loftbólu, harðkorna, skelja o.s.frv. eru ágæt til síns brúks en þau koma aldrei í staðinn fyrir nagladekkin.

Fyrir mína parta þá gæti ég alveg hugsað mér að greiða eitthvað aukalega fyrir það að aka um á nagladekkjum, þar sem ég met öryggi fjölskyldu minnar ekki til fjár, en er þó ekki bjartsýnn á það að margir séu til í aukna skattheimtu.

Author:  bebecar [ Tue 06. May 2008 16:57 ]
Post subject: 

Þetta eru einmitt þau rök sem oftast heyrast og þau eru góð og gild.

Hinsvegar þá getur varla verið hollt að anda að sér gatnarykinu allan veturinn vegna örfárra daga (sem maður gæti kannski látið það vera að vera á ferðinni) þegar nagladekk nýtast.

Það frystir nú víðar í heiminum en á Íslandi og flestir láta sér vetrardekkin nægja.

Í ofanálag er hemlunarvegalengd negldra dekkja mun lengri í auðu og þar með er örygginu stefnt í voða þar.

Það mætti borga sérstaklega fyrir naglana - það ætti að koma þeim sem af þeim sem ekki þurfa á þeim að halda (sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu).

Innanbæjar er mest um eignatjón að ræða þegar árekstrar verða í hálku. Úti á landi er auðvitað stórhættulegt að fara út af veg enda mörg alvarleg slysin sem hafa orðið í hálku í einhverjum firðinum.

Mér finnst samt rosalega hæpið að plúsarnir við að sleppa nagladekkjum vegi ekki upp á móti mínusnum.

PS, ég hef líka keyrt talsvert úti á landi vegna vinnu og það var alltaf á ónelgdu því vinnubílarnir voru allir þannig (stundum var maður nú með hjartað í brókunum - en það hefði verið þannig líka á nelgdum!). Hvorki ég né samstarfsmenn mínir lenntu í vandræðum nema kannski vegna snjófergis en þá voru auðvitað fleiri fastir.

Author:  basten [ Tue 06. May 2008 17:02 ]
Post subject: 

bebecar wrote:
PS, ég hef líka keyrt talsvert úti á landi vegna vinnu og það var alltaf á ónelgdu því vinnubílarnir voru allir þannig (stundum var maður nú með hjartað í brókunum - en það hefði verið þannig líka á nelgdum!). Hvorki ég né samstarfsmenn mínir lenntu í vandræðum nema kannski vegna snjófergis en þá voru auðvitað fleiri fastir.

Það er samt ekkert sem kemur í stað nagladekkja þegar hálkuglæra liggur yfir veginum. Stundum eru vegirnir þannig að það er varla stætt á þeim sökum hálku. Ég hef allavega fundið stórkostlegan mun á því að vera á negldum eða ónegldum vetrardekkjum í hálku.
Naglarnir gera náttúrulega ekki meira gagn í fannfergi, en oft er nýbúið að skafa vegina og þá er maður að aka á nýpressuðum snjó sem er flugháll.

Author:  bebecar [ Tue 06. May 2008 17:22 ]
Post subject: 

basten wrote:

Alveg sammála því - en ég held samt að t.d. kostnaðurinn við tjón á vegum og heilsutjón vegna mengunar vegi mun þyngra.

Author:  ///M [ Tue 06. May 2008 17:39 ]

held nú að tjón á vegum vegi ekki meira en manslíf :lol: en ég gæti mögulega verið að reikna þetta eitthvað vitlaust

Author:  bebecar [ Tue 06. May 2008 17:52 ]

Eða ekki skilið það sem var skrifað :wink:

Það eru til einhverjar rannsóknir á hjarta og lungnasjúkdómum sem raknir eru til svifryks mengunar - þyrfti nú ekki mörg krabbameins tilfelli af þessum sökum til þess að vega upp á móti banaslysum þar sem nánast allir á höfuðborgarsvæðinu verða fyrir svifrykinu.

Hvað voru það eiginlega margir dagar t.d. í vetur þar sem mengun fór yfir hættumörk?

Við þetta bætist tjónið á vegum - og svo auðvitað þau skipti sem öryggið er minna t.d. þegar nagladekk eru notuð í auðu færi.

Author:  Zyklus [ Tue 06. May 2008 19:50 ]
Post subject: 

bimmer wrote:
Zyklus wrote:
Ég held að skattborgarar þessa lands hafi engan áhuga á að niðurgreiða flutninga vörubíla.

Við endum á að borga þetta hvort sem það er í niðurgreiðslum eða
með hærra vöruverði (sem yrði afleiðingin ef álögurnar færu á flutningsaðilana).

Það að vöruverð myndi hækka eru samt ekki rök gegn því að hætta að niðurgreiða landflutninga.
Með því að láta þá sem eyðileggja vegina mest og kosta samfélagið þar af leiðandi mest borga þá er verið að færa kostnaðinn á rétta aðila í stað þess að dreifa honum á þá sem hafa ekkert með hann að gera.
Þegar flutningar eru niðurgreiddir endurspeglar vöruverðið ekki raunverulegan kostnað. Hins vegar þegar hætt væri að niðurgreiða flutninga þá myndi vöruverðið betur endurspegla raunverulegan kostnað. Þá er verið að færa réttan kostnað á rétta aðila. Sem er auðvitað hagkvæmast fyrir heildina.

Author:  Bjarkih [ Tue 06. May 2008 20:21 ]
Post subject: 

Það er alltaf verið að tala um að vörubílar eyðileggi vegina mest, og þá fer maður að velta því fyrir sér af hverju vegir erlendis virðast ekki skemmast neitt þó þar sé margföld umferð þungaflutningabíla :hmm:

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/