Page 1 of 3

Hvernig ganga vetrarprojectin?

PostPosted: Wed 16. Apr 2008 20:28
by Einarsss
Fann ekki einhvern þráð um hverjir væru með project í gangi sem var búinn til í haust/vetur.

Er þetta að verða komið hjá ykkur? einhver vandræði sem valda töfum um ókomnaframtíð?

Hjá mér er projectið komið úr skúrnum og út á götu. Er með hita vandræði eftir að hitaelement fór hjá mér.

Er þó búinn að panta allt nýtt í miðstöð eða þeas hita element/core, heater valve, mótstöðu og blower mótor. Þetta er á leiðinni til landsins og mun ég skella þessu í fljótlega, einnig keypti ég nýjan vatnslás ef að sá gamli stendur á sér og er að valda því að bíllinn hitar sig eftir átök og í lausagangi.... þá er næstum allt í kælikerfinu nýtt, viftukúpling, vatnsdæla, hosur, hitaelement fyrir miðstöð, vatnslás ... bara eftir að skipta út vatnskassanum... sem verður gert síðar.

Stefni ennþá á drift keppnina á bíladögum þannig að ég hef nægan tíma til að fiffa þessi smá vandræði. :D

PostPosted: Wed 16. Apr 2008 20:35
by Benzari

PostPosted: Wed 16. Apr 2008 20:35
by arnibjorn
Mitt verkefni var alveg 100% tilbúið og komið útá götuna og ég byrjaður að spóla! 8)

Eeeeen það virkaði bara í tvær vikur eða svo.

Stefni samt á að vera kominn út að keyra í næstu viku :)

PostPosted: Wed 16. Apr 2008 20:35
by Steini B
Tjaaa.....

Ég er hálfnaður með að skipta um dempara og gorma, thats it.... :lol:
En það er reyndar allt að fara að að gerast á næstunni... :)

PostPosted: Wed 16. Apr 2008 20:37
by ValliFudd
Mitt project heitir ekki vetrarproject heldur vetraproject og mun taka nokkra vetur :lol:

PostPosted: Wed 16. Apr 2008 20:40
by gunnar
Mitt stuff er bara allt á leiðinni :cry:

Verð samt vonandi tilbúinn í sumar.

PostPosted: Wed 16. Apr 2008 20:41
by maxel
Illa

PostPosted: Wed 16. Apr 2008 20:47
by Jón Ragnar
Er ekki með project :cry:

PostPosted: Wed 16. Apr 2008 21:04
by arnibjorn
Jón Ragnar wrote:Er ekki með project :cry:


Hættu að væla og keyptu þér eitthvað skemmtilegt dót.

Þú ættir að hafa efni á því, Herra yfirmaður akstursdeildar! 8) :lol:

PostPosted: Wed 16. Apr 2008 21:07
by maxel
Æi strákar... er ekki viðhaldið á BMW alveg nógu mikið project fyrir ykkur?

PostPosted: Wed 16. Apr 2008 21:24
by Einarsss
haha viðhald? hef ekki lent í því ennþá því ég upgreida altaf allt í bílnum mínum áður en það bilar

PostPosted: Wed 16. Apr 2008 21:30
by Jón Ragnar
arnibjorn wrote:
Jón Ragnar wrote:Er ekki með project :cry:


Hættu að væla og keyptu þér eitthvað skemmtilegt dót.

Þú ættir að hafa efni á því, Herra yfirmaður akstursdeildar! 8) :lol:



HAHA :lol:


er að reyna að finna eitthvað skemmtilegt.

Komast yfir E30 or some :lol:

PostPosted: Wed 16. Apr 2008 21:36
by Stefan325i
Er að setja saman E30 2.5 turbo,

Er að taka vélina upp en er að bíða eftir varahlutum, fer í fjöðrun og mótorbita á morgum..

Stefni á að vera kominn út að keyra í maí

Note to self---- ekki vera að klára korter fyrir bíladaga... :?

PostPosted: Wed 16. Apr 2008 21:46
by Daníel
Var að fá í hús Bilstein PSS9 sem er á leið í þristinn hjá mér. Einnig á ég á hann nýtt bretti sem á eftir að mála, þarf að laga þetta óheppilega tjakk-slys sem hann lenti í einhverntíma í fyrndinni, svo bakkaði vinnufélagi minn á þetta sama bretti í vetur svo það er tvöföld ástæða til að skipta út! :P

Annað er ekki planað fyrir þetta sumar.

PostPosted: Wed 16. Apr 2008 22:23
by BMW_Owner
ég VONA að það styttist í 757 en M5 er að gera mér soldið erfitt fyrir :lol:
en já ég stefni á bíladaga 8)