Var að lenda í frekar scary uppákomu áðan - hefði getað farið verulega illa.
Var að keyra heim á bláa eftir smá prufurúnt með nýjan lausagangsventil.
Er á gatnamótum Reykjanesbrautar og Vífilstaðavegar, ég er að koma frá
Smáralind og ætla að beygja til vinstri upp hjá Vífilsstöðum.
Bíð á ljósunum eftir beygjuljósi, nokkrir bílar búnir að fara í gagnstæða átt
og svo enginn bíll. Kemur grænt á beygju ég búinn að líta eftir bíl en ákvað
svona rétt áður en ég fer yfir akreinarnar á móti að kíkja aftur (byggingakrani
og eitthvað drasl þarna fyrir núna). Ég næ rétt að negla niður til að forða því
að fara fyrir Lexus jeppa sem kom á hrikalegri siglingu og fór yfir á rauðu.
Það munaði svo litlu að ég hefði farið fyrir hann og hann átti ekki breik í að
stoppa bílinn á þessari ferð - við erum að tala um 150-200km hraða.
Allavega, fauk í mig og ég hendist á eftir honum - hann er búinn að ná
bílunum sem voru á undan og ég næ honum á næstu gatnamótum og
blikka hann til að reyna að fá hann til að stoppa. Hann reynir að stinga mig
af en sér fljótlega að það er ekki að fara að gerast. Vippa mér framfyrir
hann og reyni að hægja á honum en hann fer til hliðar og framúr.
Ákvað að vera ekkert að taka neina svona sénsa og fylgi honum eftir í smá
fjarlægð. Hann rúntar aðeins um bæinn en stoppar loks við Hótel Nordica þar
sem ég messaði yfir honum. Þetta var gaur milli 25-30 og bíllinn var
Lexus RX300 með númerið PD-8XX.
Þetta er held ég það næsta sem ég hef komist því að drepast í umferðinni
hér á klakanum

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR

Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...