bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Samgönguráðherra er orðinn klikkaður https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=28831 |
Page 1 of 2 |
Author: | adler [ Wed 16. Apr 2008 11:47 ] |
Post subject: | Samgönguráðherra er orðinn klikkaður |
Enn einn skatturinn á bifreiða eigendur. Þetta er nú fullmikið sagt og er frekar hæpin rök fyrir þessum skatti : Quote: Þá segir að ætla megi að hluti óskoðaðra ökutækja í umferðinni sé í lélegu ástandi og geti skapað hættu.
Auðvitað er alveg í lagi að það séu einhver ákvæði og sektir við trassa skap en fyrr má nú rota en dauðrota. Ástæða þess mjög oft að fólk fer ekki með bíla í skoðun á réttum tíma er oft sú að fólk á bara ekki fyrir skattinum og skoðunargjaldinu. Þetta mun fjölga númerslausum bílum útum allann bæ sem verða svo hirtir af Vöku með tilheyrandi leiðindum og kostnaði. Þetta er að verða algjörlega vitfyrt fávita eyja þar sem mest menntaða og jafnframt heimskasta fólkið stjórnar okkur hinum,því að menntun og gáfur fara ekki endilega saman . http://visir.is/article/20080416/FRETTI ... 4841563656 |
Author: | Einarsss [ Wed 16. Apr 2008 11:54 ] |
Post subject: | |
Mér finnst þetta fínt! Þoli ekki að sjá óskoðaða bíla ... ágætis spark í rassinn fyrir þá sem eru að trasa að fara í skoðun. Það er ástæða fyrir að bílar þurfi að fara í skoðun ... m.a að láta fagaðila yfirfara öryggisbúnað bifreiðarinar. |
Author: | saemi [ Wed 16. Apr 2008 11:55 ] |
Post subject: | |
Ég er algjörlega sammála þeim ummælum sem þú vísar í. Auðvitað er fullt af þessum ökutækjum sem aka um með gamla skoðun eða endurskoðunarmiða í ástandi sem er ekki með þeim hætti að bíllinn sé fullkomlega öruggur í umferðinni! Ef fólk á ekki pening til að fara með ökutækið sitt í skoðun og borga bifreiðagjöldin, þá hefur það ekki efni á að reka bíl. Fólk hefur séns, það má koma 2 mánuðum seinna með bílinn í skoðun en númerið segir til um þannig að það er nú strax eftirgjöf þar. Ég sé ekkert að þessu frumvarpi, finnst það allt í lagi. |
Author: | Angelic0- [ Wed 16. Apr 2008 11:56 ] |
Post subject: | |
einarsss wrote: Mér finnst þetta fínt!
Þoli ekki að sjá óskoðaða bíla ... ágætis spark í rassinn fyrir þá sem eru að trasa að fara í skoðun. Það er ástæða fyrir að bílar þurfi að fara í skoðun ... m.a að láta fagaðila yfirfara öryggisbúnað bifreiðarinar. Mér finnst persónulega að þeir flestir fari ekki nógu gaumgæfilega í þau atriði sem að skipta höfuð máli, bremsur, hjólalegur, drifskaftsupphengjur, og svona dót sem að getur valdið hættu ef að það bilar ! Svo eru þeir að setja út á atriði sem að skapa minni hættu einsog filmur, ljós og svona pillerí... og senda menn út með grænan... stundum appelsínugulan ![]() |
Author: | fart [ Wed 16. Apr 2008 11:57 ] |
Post subject: | |
t.d. fara margir ekki í skoðun að því að þeir hafa ekki efni á tryggingunum... Sammála Sæma, if you cant take the heat - get out of the kitchen. |
Author: | xzach [ Wed 16. Apr 2008 11:57 ] |
Post subject: | |
. . . Ef þér langar ekki að láta skoða bílinn á réttum tíma. Legðu þá inn númerinn. Er alveg búinn að sjá nógu mikið af ruslahaugum keyrandi um göturnar óskoðaðir. |
Author: | Danni [ Wed 16. Apr 2008 12:02 ] |
Post subject: | |
Er til eitthvað umferðarslys skráð sem er að sökum óskoðaðs ökutækis? Og hvað ætti þetta þá að miðast við? Akkurat mánuðinn sem er á númeraplötunni eða eftir þessa 2 mánuði umfram? |
Author: | saemi [ Wed 16. Apr 2008 12:06 ] |
Post subject: | |
Danni wrote: Er til eitthvað umferðarslys skráð sem er að sökum óskoðaðs ökutækis?
Og hvað ætti þetta þá að miðast við? Akkurat mánuðinn sem er á númeraplötunni eða eftir þessa 2 mánuði umfram? Það var umræða um þetta fyrir stuttu í blöðunum. Þar var óskoðaður Jeppi sem stútaði öðrum bíl, losnaði af grindinni og straujaði inn í hinn. Þannig að já... það eru til svona dæmi. Hitt er útfærsluatriði... ég á nú von á að maður hafi allavega þessa 2 mánuði upp á að hlaupa. |
Author: | BirkirB [ Wed 16. Apr 2008 12:23 ] |
Post subject: | |
Og eftir þetta slys með jeppann var eitthvað hert á eftirliti með boddýfestingum...lennti í því með e28... Mér finnst ekkert að þessu...ef það er eitthvað mikið að bílnum sem fær endurskoðun er bara að taka númerin af og laga eða henda haugnum... En ég skil samt ekki alveg tilganginn með þessu, því númerin yrðu hvort sem er klippt af bílnum ef hann væri ekki lagaður...eina sem þetta gerir er að fá fólk til að drífa í því að laga bílinn og peningar til ríkisins?? sem er reyndar alveg fínt held ég |
Author: | slapi [ Wed 16. Apr 2008 12:27 ] |
Post subject: | |
Ég fékk einmitt Boðun í skoðun um daginn útaf trassaskap og þá var hætt að sekta fyrir það að fá boðun í skoðun. Kom alveg :s svipur á mig þegar konan á skoðunarstöðinni sagði að það væri hætt. Fannst það verulega asnalegt , en þetta er kúl. |
Author: | kelirina [ Wed 16. Apr 2008 12:29 ] |
Post subject: | |
Veit um tvö banaslys þar sem aðilar létu lífið vegna þess að bifreiðin sem þeir voru í fékk skoðun en í raun og veru átti hún að fá akstursbann. Svo eru nú margir sem viljandi koma á tveggja ára fresti með bílana sína í skoðun. til að spara sér pening. |
Author: | Jónas [ Wed 16. Apr 2008 14:33 ] |
Post subject: | |
Flott! Ég þoli ekki að sjá druslur með 06 miða útum allan bæ með ónýtt púst, vírslitinn dekk(Hef sett miða á allnokkrar og bent á þetta). Og það var eitt af banaslysunum í fyrra og þá var talað um að ástand á bílnum hefði verið eitt af hlutnum sem að olli dauðanum! Herða þetta. Senda sekt heim til bílaeiganda eftir c.a. 2 mánuði framyfir lögbundna skoðun... segjum c.a. 20þúsund. Ef þú getur ekki borgað 5000kr í skoðun og 50.000 kr í tryggingar áttu ekki að eiga bíl. Simple. |
Author: | mattiorn [ Wed 16. Apr 2008 14:57 ] |
Post subject: | |
Rosalega vorkenni ég þá fólkinu sem býr í Grímsey ![]() ![]() ![]() ![]() Ekki mikið verið að spá í þessu þar ![]() |
Author: | Aron Andrew [ Wed 16. Apr 2008 15:10 ] |
Post subject: | |
mattiorn wrote: Rosalega vorkenni ég þá fólkinu sem býr í Grímsey
![]() ![]() ![]() ![]() Ekki mikið verið að spá í þessu þar ![]() Það kom alltaf skoðunargaur út til Grímseyjar og fór yfir allt, en eins og sést á myndinni þá hefur enginn mætt síðan 2001 eða 2002... |
Author: | UnnarÓ [ Wed 16. Apr 2008 15:12 ] |
Post subject: | |
Mér finnst þetta fínt. Ég er farinn að taka eftir alltof mikið að óskoðum bílum á götunni, það er nú ekkert mikið mál að drullast með bílinn sinn einu sinni á ári í skoðun.. ![]() |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |