Þegar ég var að þrýfa á Selfossi á Olís planinu í fyrradag kom maður á stórum jeppa, hvítum og keyrði yfir allar motturnar mínar nema eina sem að lágu í hrúgu við hlið bílsins míns. Hann var að fara að setja loft á dekkin sín.
Ég minntist á þetta við hann og hann spurði hvort að þær væru skemmdar en það sást ekkert almenninlega þá því þær voru rennbautar og einhvernveginn athugaði ég þær ekki nógu vel þá.
Núna er ég búinn að þrýfa þær og sé að það eru í þeim djúp, ljót hjólför,rákir og þær eru teygðar.
Hefði hugsað mér að hafa samband við umræddann mann sem að keyrði yfir motturnar og allavega benda honum á þetta og reyna að komast til botns í þessu máli. Er ekki að tala um nein leiðindi. Kannski er ég bara smámunasamur að vera að pæla í þessu en finnst bara pirrandi að vera með skemmdar mottur.
Umræddur jeppi var hvítur , merktur "refsararnir" eða "refsarinn" og hann var stífbónaður og maðurinn sem ók var á milli tvítugs og þrítugs.
Persónulegar upplýsingar um manninn svosem sími er vel þegið í pm.
Annars endilega segið ykkar álit. Finnst ykkur að ég ætti að fara fram á það að hann borgaði skaðabætur eða finnst ykkur að ég ætti bara að kaupa nýjar mottur og láta þar við sitja ?









