bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Banaslys
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=28580
Page 1 of 1

Author:  Einarsss [ Sat 05. Apr 2008 17:35 ]
Post subject:  Banaslys

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/04/05/banaslys_i_hafnarfirdi/

"Banaslys varð í Hafnarfirði laust eftir hádegi í dag. Bifreið féll ofan á karlmann sem var undir henni að gera við hana, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu."

úff... mitt versti ótti þegar ég er undir bílnum að brasa eitthvað.. góð áminning að tryggja öryggið og hafa allt 110% áður en maður fer undir bíl.

Author:  xtract- [ Sat 05. Apr 2008 17:47 ]
Post subject: 

hræðilegt, nákvæmlega.. alltaf eitthvað sem getur farið úrskeiðis :(

Author:  gunnar [ Sat 05. Apr 2008 17:49 ]
Post subject:  Re: Banaslys

einarsss wrote:
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/04/05/banaslys_i_hafnarfirdi/

"Banaslys varð í Hafnarfirði laust eftir hádegi í dag. Bifreið féll ofan á karlmann sem var undir henni að gera við hana, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu."

úff... mitt versti ótti þegar ég er undir bílnum að brasa eitthvað.. góð áminning að tryggja öryggið og hafa allt 110% áður en maður fer undir bíl.


Sama hér, ég er iðulega með búkka undir bílnum og tjakkinn tilbúinn líka, þ.e.a.s ég slaka tjakknum aldrei alla leið niður ef búkkarnir skyldu nú gefa sig.

Pabbi tekur það einmitt ekki í mál að ég sé með lokaða hurð inn í bílskúr heima, þ.e.a.s ef eitthvað kemur fyrir mig þá get ég kallað á hann strax.

Borgar sig að fara varlega í svona :cry:

Author:  Danni [ Sat 05. Apr 2008 17:50 ]
Post subject: 

Úff sorglegt :(

Þetta er einmitt mín mesta martröð einnig þegar ég er að þvælast undir bílum. Tryggi alltaf að bíllinn er stabíll og að tjakkurinn sígur ekki, og ef ég er að fara langt undir bílinn set ég búkka undir.


Ég samhryggist fjölskyldu og vinum þessa mans.

Author:  Dóri- [ Sat 05. Apr 2008 18:38 ]
Post subject: 

Þetta var víst bílvél sem féll ofaná manninn með þeim afleiðingum að hann lést.

Einhver villa hjá mbl.

Author:  Alpina [ Sat 05. Apr 2008 18:52 ]
Post subject: 

vont og óþarft umræðuefni :?

Author:  ///M [ Sat 05. Apr 2008 18:54 ]
Post subject: 

Alpina wrote:
vont og óþarft umræðuefni :?


Held að þetta sé nú frekar þarft umræðuefni. Margir hérna á spjallinu að vinna í bílunum sínum og ekki alltaf með öryggi í fyrirrúmi.

Hef sé menn undir bílum sem eru tjakkaðir upp með einhverjum rúmfatalagerstjökkum á malarplani :?

Author:  gstuning [ Sat 05. Apr 2008 18:59 ]
Post subject: 

Ég hugsa um þetta í hvert einasta skipti sem maður fer undir bíl,
solid búkkar eru möst og að testa stöðuleikann áður enn undir er vaðið.

Author:  fart [ Sat 05. Apr 2008 19:19 ]
Post subject: 

Skelfilegt slys.

Mér líður alltaf illa þegar ég er að vinna undir bílnum, jafnvel þó að hann sé á búkkum og allt solid.

Author:  Aron M5 [ Sat 05. Apr 2008 19:34 ]
Post subject: 

þetta var maður frænku minnar

Góður kall og hress

61 árs

Author:  saemi [ Sat 05. Apr 2008 19:43 ]
Post subject: 

þetta er ömurlegt. Ég fékk sting í hjartað þegar ég las þetta.

Ég var einmitt í dag að horfa á stráka með bíl tjakkaðan upp rétt fyrir utan hjá mér. Var mikið að spá í að fara og lána þeim búkka. Ef þeir hefðu verið undir bílnum hefði ég gert það. Svo kom ég inn og sá þetta :?

Það er eins gott að passa sig. Ekkert nema búkkar sem duga.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/