Ritskoðun á þráðum?
Afhverju er verið að loka þræðinum hans Hlynza? Þarna var allt í fullri kurteisi og bara verið að ræðahvort viðbrögð hafi verið eðlileg eða ekki.
Fyrir mína parta þá fannst mér full harkaleg viðbrögð frá arnib og oskard (arnib "Svona drasl á ekki heima undir "Áhugaverðir bimmar""(oskard "Og ekki koma með "Þessi bíll er bara góður og auk þess flottari en sumir BMW." á BMW spjalli þú græðir ekkert á því nema að fólk rífur
kjaft við þig. Ef þú hefur áhuga á svoleiðis villjum við ekki hafa
þig hérna á spjallinu okkar."))
það er rétt að þetta á ekki heima undir áhugaverðir bimmar en það átti sér sínar skýringar, en að kalla fjölskyldubílinn drasl er óþarfi og ef þráðurinn hefði verið færður áður en svarað var á off topic þá hefði þetta svar ekki átt nokkurn rétt á sér.
Mér finnst að menn verði að fara MJÖG varlega í að eyða út efni og stoppa þræði. Ég sé í sjálfu sér ekki ástæðu til þess nema einhverjar svívirðingar eða dónaskapur sé í gangi. Eins finnst mér full ástæða til að gefa ástæðu fyrir því afhverju aðgerða er þörf hverju sinni að mati stjórnanda.
Ég kannast við nokkra hér sem telja að innleggjum hjá sér hafi verið breytt eða eytt að ástæðulausu - nú hef ég ekki orðið fyrir þessu en ég tel hiklaust að slíkt samræmist engan vegin spjallsvæði sem þessu og ég lýsi eftir því hvað stjórnendur leggja til grundvallar breytingum á þráðum (öðrum en að færa þræði á réttan stað sem hefði verið rétta leiðin hjá arnib sem er einmitt umsjónarmaður á þessu spjalli).
Ég lýsi því hér eftir upplýsingum um hverjir eru stjórnendur og geta breytt innleggjum og á hvaða forsendum þeir mega það.
Hér er þráðurinn sem ég er að vísa í http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=2830