bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Uppskrift af einhverju matarkyns https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=28345 |
Page 1 of 3 |
Author: | Axel Jóhann [ Thu 27. Mar 2008 02:02 ] |
Post subject: | Uppskrift af einhverju matarkyns |
Sælinú, ég er að drepast úr hungri hérna enn ég veit ekkert hvað ég á að fá mér, þannig mér datt í hug að fólk hérna hlyti að vita um einhverjar sniðugar samlokur eða svona litla rétti til að útbúa sér. Kv. Axel Jóhann sem er alltaf svangur. ![]() |
Author: | Marino [ Thu 27. Mar 2008 02:10 ] |
Post subject: | |
fékk mér einmitt geggjað samloku áðan með spælt egg, steiktir sveppir og lauk, smá kál, kotasælu, koteilssósa, mæjónes og brauðið létt ristað lostæti! |
Author: | Axel Jóhann [ Thu 27. Mar 2008 02:18 ] |
Post subject: | |
Þetta hljómar einstaklega girnilegt fyrir utan kálið og kotasæluna. Ég ætla rétt að vona að það verði komnar fleiri hugmyndir fyrir annað kvöld svo maður geti kokkað eitthvað DELICIOUS! ![]() |
Author: | Mazi! [ Thu 27. Mar 2008 02:19 ] |
Post subject: | |
ég fékk mér eina áðann með Ost, skinku, pizzasósu og pizza kriddi ![]() ![]() |
Author: | burgerking [ Thu 27. Mar 2008 02:51 ] |
Post subject: | |
Kalkúnaskinka, ostur (steikir skinkuna og lætur ostinn bráðna ofaná henni) E-h kál sem þér finnst gott (eða sleppa því ef þer finnst það ekki ![]() Beikon Sinnepssósa á aðra sneiðina Rjómaostur með sv pipar á hina Oregano krydd (létt rista brauðið á pönnunni) og jafnvel steikja smá sveppi/lauk til að setja á líka þá ertu kominn með eina sveitta góða samloku ;D |
Author: | Aron Andrew [ Thu 27. Mar 2008 08:18 ] |
Post subject: | |
Er ekki sjoppa í eyjum eða? ![]() Ostborgari og franskar? |
Author: | gunnar [ Thu 27. Mar 2008 08:22 ] |
Post subject: | |
Svo er líka mikið af uppskriftum á netinu bara, google is your friend ![]() |
Author: | Einsii [ Thu 27. Mar 2008 09:14 ] |
Post subject: | |
http://hvaderimatinn.is/ bjargar svona málum ísí... |
Author: | finnbogi [ Thu 27. Mar 2008 11:12 ] |
Post subject: | |
Aron Andrew wrote: Er ekki sjoppa í eyjum eða?
![]() Ostborgari og franskar? ég segi Toppurinn BARA góðir burgers og samlokur þar ![]() ![]() borða oftast þar þegar ég er í eyjum ![]() |
Author: | bjornvil [ Thu 27. Mar 2008 11:12 ] |
Post subject: | |
Eggjanúðlur með kjúkling Snilldarréttur sem slær alltaf í gegn á mínu heimili, mjög einfalt og tekur max 15 mínútur. 1 pakki núðlur núðlur (Blue Dragon) 1 dós niðursoðin wok grænmetisblanda (Blue Dragon) 400-500g kjúklingur (Ég nota alltaf foreldaða kjúklingastrimla, mjög þægilegt) 3-4 egg Slatti af ostrusósu (Blue Dragon) Soyasósa Engifer, malað Byrjar á því að henda núðlunum í stóran pott með sjóðandi vatni, sýður þær eftir leiðbeiningum á pakkanum. Þvínæst hitarðu olíu í Wokpönnu (eiginlega nauðsynlegt að vera með Wokpönnu) og hendir kjúklingnum á þegar olían er orðin vel heit og hitar hann vel, skellir svo smá slatta af soyasósu yfir, leyfa því að malla í smástund. Á meðan tekurðu Wok grænmetisblönduna, hellir henni í sigti og skolar með köldu vatni, hún fer svo saman við kjúklinginn. Hrærir vel saman og kryddar svo með engifer. Svo hendirðu þessu öllu saman í einhverja skál og geymir. Nú ættu núðlurnar að vera tilbúnar. Þá notaru sömu Wok pönnuna, og hrærir 3-4 egg (ég set 4) í svona scramble. Svo seturðu núðlurnar saman við eggin og blandar vel saman. Þvínæst fer kjúklingurinn og grænmetið saman við núðlurnar ásamt slatta af ostrusósu (má ekki sleppa henni!), magnið fer í rauninni eftir hve blautan þú vilt hafa réttinn. Gott er að hafa með þessu hrísgrjón (döhh(hrisgrjon fyrir þá sem skilja ekki ritskoðunina hérna)) og Blue Dragon sweet chili dipping sauce. Þetta er alveg lygilega gott og ætti að vera nóg fyrir fjóra, eða einn í 2-3 daga. ![]() EDIT Okei... afhverju í fjandanum er hrisgrjon ritskoðað sem hrísgrjón hérna??? ![]() ![]() |
Author: | Djofullinn [ Thu 27. Mar 2008 11:42 ] |
Post subject: | |
looooooooooooool ![]() Fáðu þér nokkur flón með þessu |
Author: | bjornvil [ Thu 27. Mar 2008 11:48 ] |
Post subject: | |
Djofullinn wrote: looooooooooooool
![]() Fáðu þér nokkur flón með þessu Nákvæmlega, en núna er hægt að skrifa hommi eins og mann lystir ![]() |
Author: | moog [ Thu 27. Mar 2008 11:49 ] |
Post subject: | |
Djöfull er maður orðinn svangur af því að lesa þetta ![]() |
Author: | maxel [ Thu 27. Mar 2008 11:52 ] |
Post subject: | |
ristað brauð- smá aromat- tómatsósa- spælt egg - season all fæ mér þetta þegar ég er latur |
Author: | arnibjorn [ Thu 27. Mar 2008 11:56 ] |
Post subject: | |
Subway, quiznos, dominons, hrói höttur, aktu taktu, pulsa á select/n1, mcd, kfc, devitos, salatbarinn, bæjarins bestu, seranos.... Hver nennir að búa til matinn sinn sjálfur ![]() |
Page 1 of 3 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |