bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
fara með E65 í þvottastöð N1 https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=28198 |
Page 1 of 2 |
Author: | bjornf [ Wed 19. Mar 2008 08:53 ] |
Post subject: | fara með E65 í þvottastöð N1 |
já þetta fannst mér mjög grátlegt, ég var staddur í þjónusturými N1 í grafarvogi, og er að þurka restina af bóninu af bílnum mínum, þá tek ég eftir að næsti bíll inní þvottastöðina er BMW 745Li E65 Steingrár, ég gékk að eigandanum spurði hann ætlaru virkilega að setja þennann glæsivagn þarna inn? veistu hver áhrifin verða, hann sagði eru það ekki bara kústarnir útá plani sem gera littlu rispurnar, ég sagði nei, svo spyr ég átt þú bílinn? svarið var nei bróðir minn, svo sagði ég honum að ég ætti auðvitað ekkert að skipta mér að, bara ég væri mikill bmw maður og mér finndist þetta sorglegt ![]() |
Author: | srr [ Wed 19. Mar 2008 11:24 ] |
Post subject: | |
Hefði einmitt haldið að eigendur svona bíla færu annað hvort með þá á bón og þvottastöðvar til að láta sjæna þá fyrir sig.... ...eða nostruðu við þá sjálfir. Svona er fólk misjafnt ![]() |
Author: | íbbi_ [ Wed 19. Mar 2008 11:26 ] |
Post subject: | |
ég fer alltaf með bílana mína í snertilausa þvottastöð hjá löðri.. hefu reynst vel, fór svo með 350z í snertilausa hjá N1, og hún var hreinlega ekki snertilaus og fláði skinnið af 350z ![]() |
Author: | FinnurKarls [ Thu 20. Mar 2008 15:24 ] |
Post subject: | |
true mér finnst að það mætti aðeins auka þekkinguna hjá fólki hérna á íslandi, annar hver maður sem kústar bílinn sinn og þegar maður kaupir notaðann bíl þá geturðu alveg bókað að það er búið að kústa hann nokkrum sinnum ![]() ![]() ![]() |
Author: | Benzari [ Thu 20. Mar 2008 15:38 ] |
Post subject: | |
Þessi þvottakerfi á snertilausu stöðvunum gera lítið meira en að skola rykið af bílnum, þarf að sprauta tjöruhreinsi á bílinn og leyfa honum að "vinna" í 2-3 mínútur ef farartækið er með saltdrulluna uppá glugga. ![]() Annars eru þessar stöðvar fínar ef fólk hefur ekki aðstöðu, kunnáttu eða nennir ekki að þrífa bílinn sinn. |
Author: | GummiH [ Thu 20. Mar 2008 16:45 ] |
Post subject: | |
Ég og Angelic0- sáum líka einhvern plebba á 545i að kústa hann á þvottaplani í keflavík... bara grátlegt ! |
Author: | Xavant [ Thu 20. Mar 2008 16:51 ] |
Post subject: | |
Maður er alltaf að sjá þetta útum allt. frekar óþolandi stundum |
Author: | Hlynzi [ Thu 20. Mar 2008 18:52 ] |
Post subject: | |
Já, best er að sjá fólk sem er nýbúið að kaupa svarta bíla með vatnslakki, nýja að kústa þá ofaní tjöruhreinsinn. Ég fer aldrei með bíla í þvottastöðvar, það einfaldlega bæði rispar þá, eða þvær þá ekkert almennilega (hef reyndar ekki prófað þessa snertilausu) Þægilegast samt að tjöruhreinsa á löðri og spúla með háþrýstidælunni og svampa svo. Fer oft að svampa bílinn á bensínstöðvum, og nota kústinn bara til að spúla af bílnum, og læt það nú eftir mér að kústa rúðurnar því þær þola eitthvað. |
Author: | Vargur [ Thu 20. Mar 2008 20:13 ] |
Post subject: | |
Ég hef vanaleg farið með mína bíla á þvottastöðvarnar og ekkert fundið að þær rispi bílinn. Einn veturinn var ég með Landcruiser sem þurfti að sprauta húdd og framenda á vegna tjóns, allan veturinn þvoði ég bílinn reglulega á þvottastöð og varð ekki var við að lakkið færi illa á því. Á sumrin þvæ ég með kústi en ekki ef kústarnir eru fullir af drullu. Ég get ekki séð að lakkið á bílunum mínum hafi farið illa á þessum þrifum og sé eiginlega ekki munin á því og að nudda sandinum inn í lakkið með svampi. |
Author: | fart [ Thu 20. Mar 2008 20:34 ] |
Post subject: | |
Menn þrífa almennt ekki bílana sína þar sem ég bý heldur keyra þeim í gegnum svona kústastöð, meira að segja sumar bónstöðvarnar gera það ![]() Ég er reyndar ekki alsveg sannfærður um að það séu kústarnir sem eru að skemma, heldur það að bílarnir eru haugskítugir og kústarnir settir á það, sama gæti gerst við að svampa eða tuska mjög skítugan bíl án þess að nota nóg vatn og sápu. |
Author: | ValliFudd [ Thu 20. Mar 2008 20:40 ] |
Post subject: | |
Svo er náttúrulega til fólk eins og einn félagi sem ég heyrði sögu af.. Kokkur var að bera inn mat í hús þar sem átti að vera veisla.. Hann ætlaði að skella kössunum á gólfið í bílskúrnum en þá kallaði eigandi hússins til hans. "Skelltu þessu bara ofan á bílinn, ég læt bara sprauta hann ef hann rispast" ![]() Það var by the way brand spanking nýr 750 e38 ![]() |
Author: | bjahja [ Thu 20. Mar 2008 20:41 ] |
Post subject: | |
reyndar þá skemma svona almenningskústar MEGA mikið af því fólk einmitt setur þá beint í drullu eða leggur þá jafnvel á jörðina=fullt af sandi og viðbjóði í þeim. En ég hef alveg lesið að gæða kústar fari ekki verr með lakkið en svampur. |
Author: | Einarsss [ Thu 20. Mar 2008 21:00 ] |
Post subject: | |
bara nota meguiars hanskann á þetta og skella honum í þvottavél eftir 2-3 þvotta. En ég missi altaf andlitið þegar ég sé fólk með splunkunýja bíla á þvottaplaninu hjá t.d shell.. bara slæmt. Annars er fínt að fara á löður og djúsa bílinn í tjöruhreinsi og skola svo með háþrýstidælunni og keyra heim og þvo svo almennilega |
Author: | kelirina [ Thu 20. Mar 2008 22:55 ] |
Post subject: | |
Vargur wrote: Ég hef vanaleg farið með mína bíla á þvottastöðvarnar og ekkert fundið að þær rispi bílinn. Einn veturinn var ég með Landcruiser sem þurfti að sprauta húdd og framenda á vegna tjóns, allan veturinn þvoði ég bílinn reglulega á þvottastöð og varð ekki var við að lakkið færi illa á því. Á sumrin þvæ ég með kústi en ekki ef kústarnir eru fullir af drullu.
Ég get ekki séð að lakkið á bílunum mínum hafi farið illa á þessum þrifum og sé eiginlega ekki munin á því og að nudda sandinum inn í lakkið með svampi. Þarna hittir þú naglann á höfuðið. Svampurinn getur einmitt valdið eins miklu skaða og kústurinn. Flatur flötur svampsins á það einmitt til að festa óhreinindin á milli og svo er svampurinn dreginn eftir lakkinu og óhreinindin mynda þar af leiðandi örrispur svipað og kústurinn getur gert. Það er hins vegar spurning um hvernig verknaðurinn er framinn, þ.e.a.s. hvort svampurinn er hreinsaður vel á milli fleta, hvort óhreinindin og tjaran eru þvegin af bílnum fyrir lokaþvott þar sem svampurinn er loks borinn á lakkflötinn. Einnig ber að varast hvernig bíllinn er þurrkaður eftir þvott. Er handklæðið/vaskaskinnið öruggt um að mynda engar örrispur/"marring"? Góð leið til að sjá hvort það sé þvotturinn eða þurrkurinn er að þvo langsum en þurrka þversum. Þá má sjá hvort verkferlið er að framkvæma örrispurnar. Einnig er gott fyrir ykkur að venja ykkur á tveggja fötu þvott þar sem í einni fötunni er sápuvatnið og í hinni er skolvatnið. Endilega skoðið þetta myndband sem sýnir mjög vel aðferðina skoða Eitt gott ráð handa ykkur kraftsmönnum. Þegar þið eruð búnir að þvo alla sápuna af bílnum með háþrýsisprautunni eða vatnsbyssunni þá skulu þið skola aftur bílinn eingöngu með vatnsslöngunni (taka festingarnar af) eða vatnskönnu. Við þetta þá rennur vatnið betur af flötunum og mikklu minna vatn er til staðar sem þarf að þurrka. |
Author: | Lindemann [ Thu 20. Mar 2008 23:03 ] |
Post subject: | |
eitt sem ég var að pæla í.................eru menn ennþá að nota rándýran og gagnslausan tjöruhreinsi í lítratali á bílana sína??? ég er farinn að nota olíuhreinsir eingöngu...hann kostar ekki nema rúmlega 1/3 af því sem tjöruhreinsir kostar og virkar miklu betur. Hann er náttúrulega það sterkur að það verður að fara varlega með hann og alls ekki leyfa honum að standa lengi á lakkinu, en ég hef ekki orðið var við að hann eyðileggi lakkið, maður verður náttúrulega alltaf að bóna eftir að hafa notað hann. |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |