Jæja, seldi jeppann og fékk þennan bráðfína Benz í staðinn.
Og já vill bara koma því fram að ég ELSKA þennann bíl.
Mig langar bara ekki til að fara úr honum, þetta er unaðslegur bíll.
En já þetta er 1993/1994 árgerð af E280.
Er skráður 197 HP en það er víst eitthvað búið að eiga við vélina í bílnum og hann virkar ágætlega.
Sjálfskiptur, eitthvað sem ég var skeptískur með í byrjun og sé svo að það hentar þessum bíl bara vel.
Grátt leður klæðir bílinn að innann ásamt viðarinnréttingu.
Topplúga sér svo um að halda manni svölum á heitum sumardögum.
Nú veit ég ekki hvort þetta sé sérstök útgáfa eður ei en eftir því sem ég best veit að þá er hann með Avantagarde grilli.
Smá ryð er í bílnum, þarf að láta gera við það við tækifæri. Og svo er framsvuntan brotin.
Hef ekki komið mér í það að taka almennilegar myndir en hendi inn einni eða tveim myndum núna.

_________________
Geysir Golf - Kíktu í Golf'98 W210 E240
'90 GSX750F - The Ugly Bastard