bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Verðhækkun á dekkjum https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=28095 |
Page 1 of 1 |
Author: | srr [ Sat 15. Mar 2008 12:33 ] |
Post subject: | Verðhækkun á dekkjum |
Langaði bara að koma þessu á framfæri. Ef menn fara að væla út af verði á dekkjum á Íslandi á komandi vortörn. Dekk hjá íslenskum söluaðilum eru að fara að hækka í verði um 15-20%. Meira í fólksbíladekkjum en það hækka líka jeppadekk og vörubíladekk etc.. Mig langaði bara að benda mönnum hér á þetta svo þeir ættu smá séns að ná sér í dekk núna áður en það hækkar allt. Ástæða hækkunarinnar er hærra verð frá birgjum úti, sökum hærra verðs á olíu sem er notað í gúmmíið. Sú veigameiri ástæða er þó gengi evrunnar. Gengi Evrunnar er búið að hækka um 22% frá sama tíma í fyrra. Flest dekk innkeypt til Íslands eru greidd í Evrum. Með kveðju, Skúli Rúnar Aðstoðarlagerstjóri Dekkjalager N1 |
Author: | doddi1 [ Sat 15. Mar 2008 12:36 ] |
Post subject: | |
takk fyrir ábendinguna... ég var að spá, þar sem sennilega flestallir hér þurfa að fá sér ný sumardekk, er ekki hægt að m0öndla góðan group buy afslátt fyrir okkur kraftsmeðlimi? |
Author: | srr [ Sat 15. Mar 2008 12:38 ] |
Post subject: | |
Ef mikill áhugi er á því, gæti ég reynt að redda föstum afslátt fyrir Meðlimi. Væntanlega yrði þá um að ræða afslátt af dekkjum og vinnu á verkstæðum N1. Óþarfi að stofna til group buy, því þetta er svo gríðarlega flókin flóra að eiga við í group buy. Og doddi1, ég sé að þú ert ekki Meðlimur ![]() |
Author: | doddi1 [ Sat 15. Mar 2008 12:45 ] |
Post subject: | |
srr wrote: Ef mikill áhugi er á því, gæti ég reynt að redda föstum afslátt fyrir Meðlimi.
Væntanlega yrði þá um að ræða afslátt af dekkjum og vinnu á verkstæðum N1. Óþarfi að stofna til group buy, því þetta er svo gríðarlega flókin flóra að eiga við í group buy. Og doddi1, ég sé að þú ert ekki Meðlimur ![]() búinn að borga, bara að bíða eftir að það komi í gegn ![]() |
Author: | Steini B [ Sat 15. Mar 2008 13:12 ] |
Post subject: | |
Greinilega komið í gegn núna.... ![]() En hvað ertu að tala um að það sé stutt í þetta? Næstu mánaðarmót? |
Author: | srr [ Sat 15. Mar 2008 13:33 ] |
Post subject: | |
Steini B wrote: Greinilega komið í gegn núna....
![]() En hvað ertu að tala um að það sé stutt í þetta? Næstu mánaðarmót? Sumir eru búnir að hækka og sumir ekki. Er ekki alveg með það á tæru. Best að stökkva bara sem fyrst og kaupa sér dekk. |
Author: | Einarsss [ Sat 15. Mar 2008 14:03 ] |
Post subject: | |
líst vel á afslátt á dekkjum og vinnu fyrir meðlimi ![]() |
Author: | Axel Jóhann [ Sat 15. Mar 2008 14:04 ] |
Post subject: | |
°Já sammála, ég þarf að kaupa mér allavega 2 ganga af 17" í sumar. |
Author: | burgerking [ Sat 15. Mar 2008 17:43 ] |
Post subject: | |
www.tirerack.com og www.shopusa.is ... fann fullt af 17" og 18" allt komið heim á undir 60kall... 4 dekk ![]() |
Author: | Alpina [ Sat 15. Mar 2008 19:22 ] |
Post subject: | Re: Verðhækkun á dekkjum |
srr wrote: Langaði bara að koma þessu á framfæri.
Ef menn fara að væla út af verði á dekkjum á Íslandi á komandi vortörn. Dekk hjá íslenskum söluaðilum eru að fara að hækka í verði um 15-20%. Meira í fólksbíladekkjum en það hækka líka jeppadekk og vörubíladekk etc.. Mig langaði bara að benda mönnum hér á þetta svo þeir ættu smá séns að ná sér í dekk núna áður en það hækkar allt. Ástæða hækkunarinnar er hærra verð frá birgjum úti, sökum hærra verðs á olíu sem er notað í gúmmíið. Sú veigameiri ástæða er þó gengi evrunnar. Gengi Evrunnar er búið að hækka um 22% frá sama tíma í fyrra. Flest dekk innkeypt til Íslands eru greidd í Evrum. Með kveðju, Skúli Rúnar Aðstoðarlagerstjóri Dekkjalager N1 ![]() ![]() |
Author: | Zeus [ Sat 15. Mar 2008 19:37 ] |
Post subject: | |
burgerking wrote: www.tirerack.com og www.shopusa.is ... fann fullt af 17" og 18" allt komið heim á undir 60kall... 4 dekk
![]() Var að versla 2 ný afturdekk 275/30ZR-19 Michelin Pilot Sport PS2. Keypti þegar $ var sirka 68. Kostuðu undir 50.000 kr. úti. Þetta eru reyndar mjög dýr dekk á Tirerack. Og stærðin mikil, kostar samt fáranlega mikið hérna á klakanum! Svo er bara DHL á mánudaginn og vonandi komin undir fyrir páska ![]() Mæli með að kaupa sem fyrst $ kominn í 71 í dag! Er ekki vorið annars komið þegar mótorhjólin koma út úr bílskúrunum eins og í dag ![]() |
Author: | srr [ Sat 15. Mar 2008 19:39 ] |
Post subject: | Re: Verðhækkun á dekkjum |
Alpina wrote: srr wrote: Aðstoðarlagerstjóri Dekkjalager N1 ![]() ![]() Jám? Til tveggja ára núna ![]() |
Author: | srr [ Sat 15. Mar 2008 19:52 ] |
Post subject: | |
Zeus wrote: burgerking wrote: www.tirerack.com og www.shopusa.is ... fann fullt af 17" og 18" allt komið heim á undir 60kall... 4 dekk ![]() Var að versla 2 ný afturdekk 275/30ZR-19 Michelin Pilot Sport PS2. Keypti þegar $ var sirka 68. Kostuðu undir 50.000 kr. úti. Þetta eru reyndar mjög dýr dekk á Tirerack. Og stærðin mikil, kostar samt fáranlega mikið hérna á klakanum! Svo er bara DHL á mánudaginn og vonandi komin undir fyrir páska ![]() Þessi dekk kosta 49.500 kr STK hér á landi. (reyndar verð fyrir hækkun núna) Hvað kostar þetta heimkomið hjá þér? |
Author: | Zeus [ Sun 16. Mar 2008 13:54 ] |
Post subject: | |
srr wrote: Zeus wrote: burgerking wrote: www.tirerack.com og www.shopusa.is ... fann fullt af 17" og 18" allt komið heim á undir 60kall... 4 dekk ![]() Var að versla 2 ný afturdekk 275/30ZR-19 Michelin Pilot Sport PS2. Keypti þegar $ var sirka 68. Kostuðu undir 50.000 kr. úti. Þetta eru reyndar mjög dýr dekk á Tirerack. Og stærðin mikil, kostar samt fáranlega mikið hérna á klakanum! Svo er bara DHL á mánudaginn og vonandi komin undir fyrir páska ![]() Þessi dekk kosta 49.500 kr STK hér á landi. (reyndar verð fyrir hækkun núna) Hvað kostar þetta heimkomið hjá þér? Ég vinn hjá DHL þannig að ég er að fá flutninginn á mjög góðu verði. Var búinn að reikna þetta gróflega út. Þetta kemur í ljós í vikunni. Ég er samt mjög hissa á þessu verði. Manstu 255/30ZR-19 voru á 56.900 kr. stk. Ég hélt að þessi myndu vera dýrari. Þetta ætti samt að vera í lagi ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |