bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

DHL eða UPS ?
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=28025
Page 1 of 1

Author:  bErio [ Tue 11. Mar 2008 22:53 ]
Post subject:  DHL eða UPS ?

Ég þarf að flytja smáhluti frá USA asap og var að pæla hvaða vegur væri bestur?

Author:  Einarsss [ Tue 11. Mar 2008 23:20 ]
Post subject: 

UPS eru sneggri

það er amk mín reynsla

Author:  viktor [ Tue 11. Mar 2008 23:20 ]
Post subject: 

UPS hefur alltaf hentað mér vel, eins hefur FedEx virkað mjög vel

Author:  ValliFudd [ Tue 11. Mar 2008 23:39 ]
Post subject: 

ups hefur verið minn aðili hingað til.. not by choice heldur hefur ameríkaninn á ebay notað ups fyrir sendingar til mín undanfarið og ég er sáttur..

Author:  Viggóhelgi [ Tue 11. Mar 2008 23:53 ]
Post subject: 

Ég myndi nú Taka fedex, af öllu þessu, en þar sem að þú ert að spyrja um hina,

Klárlega UPS, finnst þeir bara vera mjög áræðanlegir og snöggir.

fyrir utan þessa gæja í lefistöð (dópsmyglmálið) :lol:

Author:  Svessi [ Tue 11. Mar 2008 23:54 ]
Post subject: 

Image WARNING - RITGERÐ Image

Ég hef enga reynslu af UPS og mjög littla af DHL.

Ég pantaði mér samt smá hlut á netinu frá Bretlandi í fyrra, og borgaði extra fyrir að fá það með DHL. Pakkinn þvældist eitthvað til Belgíu og ég fékk hann loksins eftir tvær vikur, þá bankar uppá stelpa á ómerktum bíl í venjulegum fötum og réttir mér pakkann. Ég spurði hvort ég ætti að borga eitthvað, hún segir "held ekki" og ég spyr aftur "ertu viss" og hún segir "já, það er engin rukkun hérna svo það er ekki neitt".

Ég var auðvitað dauðfegin, hafði búist við því að þurfa borga allt að 5000 kr.

Heyrðu, þremur mánuðum seinna þá fæ ég bréf þá DHL sem segir að ég skuldi þeim 3000 og eitthvað krónur og ef ég borga ekki innnan 10 daga frá dagsetningu bréfsins þá færi þetta í innheimtu. Og notabene bréfið hafði verið sent viku eftir stílaða dagsetninu svo ég hafði bara 3 eða 4 daga. (Man ekki nákvæmlega hvað þetta voru margir dagar svoleiðis, en það var liðinn meira en helmingur af frestinum þegar það var sett í póst.

Það var enginn greiðsluseðill eða neitt, bara eitthvað afgreiðslunúmer sem sagði mér ekki neitt, ekki einu sinni hvaða pakki þetta var eða síðan hvenær þetta var. En mig grunaði strax hvað þetta væri.

Ég þurfti að taka mér frí frá vinnu til að geta farið niðureftir og talað við einhverja sem gat staðfest það að þetta væri tollurinn af pakkanum sem ég hafði fengið fyrir þrem mánuðum síðan. Ég bara borgaði þetta, til að vera laus við þetta, en sagði einnig að ég væri ekki ánægður með að þetta hefði verið 2 vikur á leiðinni, hvernig stelpað sem kom með pakkann sagði að ég hefði ekki þurft að borga neitt og svo fá bréfið og það væri sent með pósti viku eftir stílaða dagsetningu og með svona eiginlegri hótun, því maður kærir sig ekki neitt um það að fá rukkun frá Intrum hversu lág sem upphæðin getur verið.

Og eina sem hún sagði var að hún biði mig afsökunar í sambandi við bréfið og það yrði ekkert meira af því. En sagði að ég hefði átt að hafa samband við DHL úti í Bretlandi út af því hversu lengi pakkinn var á leiðinni, og ég var alveg, bíddu er þetta ekki sama fyrirtækið.

Svo var ekkert meira úr því en hvað mér fannst þetta ó-professional.

Author:  jeppakall [ Wed 12. Mar 2008 14:08 ]
Post subject: 

ups er klárlega málið...pantaði einu sinni hluti frá usa og fékk hann 2 dögum seinna :D

Author:  Zeus [ Wed 12. Mar 2008 17:20 ]
Post subject:  Re: DHL eða UPS ?

bErio wrote:
Ég þarf að flytja smáhluti frá USA asap og var að pæla hvaða vegur væri bestur?


Hvað ertu að versla og hvaðan? UPS og FedEx eru stærri en DHL í USA.

Author:  bErio [ Wed 12. Mar 2008 18:35 ]
Post subject: 

Þetta er bara lítið dót, 2stk sem fer neðst í innrabrettið sem tengist í m5 stuðara.
Svo 2 stk loftgöng frá m stuðara að hjólum.

Author:  Jónas [ Wed 12. Mar 2008 22:34 ]
Post subject: 

UPS, enginn spurning!

Author:  drolezi [ Thu 13. Mar 2008 02:36 ]
Post subject: 

Ég hef mikla reynslu af sendingum. Var að vinna hjá stóru fyrirtæki hér á Íslandi og það er alveg klárt mál hvernig þessu var forgangsraðað.

Allar sendingar með DHL... NEMA... þær væru mikilvægar eða þyrftu hraðafhendingu.
Þá færu þær með Fedex.
Ef þær væru mjög mikilvægar og sérstaklega ef um væri að ræða sendingar til USA, þá færu þær með UPS.

Klárt mál.

Author:  elli [ Fri 14. Mar 2008 18:09 ]
Post subject: 

UPS í USA
DHL í EUR
Þetta er reynslan í minni vinnu

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/