bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Ársfundur,,
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=27975
Page 1 of 3

Author:  Alpina [ Sun 09. Mar 2008 19:22 ]
Post subject:  Ársfundur,,

Mig langaði að varpa fram spurningu til ALLRA sem á þessu spjalli eru

Afhverju er þetta svona hjá okkur ,, hér á kraftinum

afhverju er alltaf sama fólkið við stjórnvölinn..

Ekki er ég að lasta störf þeirra .. og ekki myndi ég gefa kost á mér
En það er eflaust fjöldinn allur af einstaklingum hérna sem hefðu áhuga á að leggja eitthvað til málanna,,
Eitt ber einnig að nefna,, til að menn séu gildir meðlimir í kraftinum þurfa þeir að samþykkja,, meðal annars þetta

6. gr.
Stjórn félagsins skal skipuð sex stofnmeðlimum skv. 4. gr. Formaður er
Gunnar Þorvarðarson. Ef upp kemur að atkvæði falla jöfn gildir atkvæði
formanns sem tvö atkvæði. Stjórnarmenn eru æviráðnir, en geta þeir sagt sig
úr embætti. Það þarf að gera skriflega til formanns félagsins. Ef til þess
kemur að stjórnarmaður segir sig úr embætti skal stjórnin kjósa nýjan
stjórnarmann í hans stað, ef þurfa þykir. Ef kemur til afsagnar er ekki
nauðsynlegt að stjórnin sé skipuð sex manns. Daglega umsjón annast stjórn
félagsins. Firmaritun er í höndum meirihluta stjórnar. Stjórnendur hafa
heimild til að hafna aðild að félaginu ef þurfa þykir.

Ég þekki ekki skilyrði L2C en gruna að slíkt sé sambærilegt..

Mikil kynslóðaskipti eru að verða hér á spjallinu,, hellingur af nýjum meðlimum og er óhætt hægt að segja að margir eru í yngri kantinum
((ekkert að því ))

mig langaði að sýna hvernig þetta er hjá stjörnunni og heyra álit ykkar ef þið hafið áhuga á að tjá ykkur um þetta

Vil endurtaka það að ég er ekki að rýra störf stjórnar heldur eingöngu að benda á að til að menn séu samþykkir því að ganga í áhugamannfélagið bmwkraftur.is þá þurfa aðilar að ganga að þessum skilyrðum..
sem mér finnst alveg vera á mörkum þess að geta talist siðferðilega rétt
En það stenst lög,, ég hef kannað það..

Nóg um það,,

hér fyrir neðan er svo fundarboðun stjörnunnar

Aðalfundur Mercedes-Benz klúbbs Íslands

Aðalfundur félagsins verður haldinn þann 10. apríl 2008, kl. 20:30 á Hótel Loftleiðum í þingsal 8.

Dagskrá fundarins:

• Setning
...Formaður setur fundinn og leggur fram tillögu um fundarstjóra sem borin er upp til samþykktar fundarmanna.
...Fundastjóri tekur við stjórn, og skipar fundarritara að tillögu stjórnar. Borið upp til samþykktar.
• Skýrsla formanns.
• Skýrsla gjaldkera, gjaldkeri leggur fram reikninga.
• Umræður um skýrslu og reikninga.
• Reikningar bornir upp til samþykktar. (kaffihlé)
• Kosning stjórnar og varamanna.
...Kosning formans.
...Kosning fjögurra meðstjórnanda
...Kosning í varastjórn (1-2 menn).
• Kosning í nefndir.
...Vefnefnd/stjórn
...Ferða og skemmtinefnd.
• Umræður um önnur mál.
• Fundi slitið af fundastjóra.

Stórn mmmmmmmm klúbbs Íslands.

Author:  ///MR HUNG [ Sun 09. Mar 2008 19:34 ]
Post subject: 

Vá hvað ég held að það sé gaman á svona stjörnusamkomum :lol:

Author:  gstuning [ Sun 09. Mar 2008 20:09 ]
Post subject: 

Það er ekki lýðræði á L2C
Palli og villý standa í sjálfu sér fyrir klúbbnum.

Ég sé enga ástæðu til að breyta til hjá okkur.
Það eru góðir menn komnir í skemmtinefnd.
Og á ég von á ýmsu góðu af þeirra hálfu

Author:  saemi [ Sun 09. Mar 2008 20:12 ]
Post subject: 

Ég skil vel þessa gagnrýni hjá Alpina.

Ég væri algjörlega fylgjandi því að hafa þetta opnara.

Ég er ekki að gagnrýna núverandi stjórnendur nota bene! (enda sjálfur í henni.. ehehee, frekar aulalegt kannski á blaði).

En finnst það sjálfsagt og í raun nauðsynlegt til að svona starfsemi geti blómstrað að hafa aðila með sem meðlimir kjósa og eru með ferskt blóð og eldmóð í hjarta.

Kannski spurning um að fara allavega millileið í þessu til að byrja með. Það þarf líka að passa upp á að ekki sé hægt að gera hallarbyltingu á röngum forsendum, það er mikið af pappakössum á sveimi finnst mér. Myndi ekki vilja sjá suma hér á spjallinu við stjórnvölin. Afsakið hreinskilnina :oops:

Author:  Alpina [ Sun 09. Mar 2008 20:16 ]
Post subject: 

gstuning wrote:
Það er ekki lýðræði á L2C
Palli og villý standa í sjálfu sér fyrir klúbbnum.

Ég sé enga ástæðu til að breyta til hjá okkur.
Það eru góðir menn komnir í skemmtinefnd.
Og á ég von á ýmsu góðu af þeirra hálfu

Mikið rétt.. enda er alls ekki verið að kasta rýrð á störf neinna hérna

Author:  gstuning [ Sun 09. Mar 2008 20:19 ]
Post subject: 

Lýðræði er ekki alltaf lykillinn.
því þar gilda engar reglur um gæði þeirra sem eru kosnir heldur bara
fjöldi sem kýs þá, semsagt það er ekkert mál að koma sér fyrir ef maður er með nóg stuðning. Hefur ekkert að gera með hversu hæfur maður er.

Author:  fart [ Sun 09. Mar 2008 20:22 ]
Post subject: 

Það er hægt að hafa t.d. 5 manna stjórn, þar sem að 3 eru fastamenn (æviráðnir eða valdir af stofnmeðlimum) og síðan 2 sem eru kosnir.

Author:  saemi [ Sun 09. Mar 2008 20:55 ]
Post subject: 

fart wrote:
Það er hægt að hafa t.d. 5 manna stjórn, þar sem að 3 eru fastamenn (æviráðnir eða valdir af stofnmeðlimum) og síðan 2 sem eru kosnir.

Nákvæmlega, það er fyrirkomulag sem mér líst t.d. vel á.

Author:  Danni [ Sun 09. Mar 2008 21:13 ]
Post subject: 

Er haldinn aðalfundur BMW Krafts árlega?

Og eitt sem mér finnst vanta og það eru tilkynningar um breytingar í stjórn eða álíka.

Author:  Gunni [ Sun 09. Mar 2008 21:37 ]
Post subject: 

Já ég er sammála því að þetta er góð og heilbrigð umræða.
Upprunalega er krafturinn nú settur saman af ungum drengjum (fyrir utan Sæma :lol: )
og því kannski stofnsamþykktirnar frekar óþroskaðar o.þ.h. (t.d. með þetta
æviráðningardæmi :lol: )
Þessar samþykktir voru gerðar fyrir löngu síðan og áður en að þetta meðlima fyrirkomulag komst
á koppinn. Það verður auðvitað að taka það með í reikninginn að krafturinn
hefur breytst og þróast gríðarlega mikið síðan hann byrjaði.

En ég held að þessi setning geti verið dálítið lykilatriði í umræðunni:

Quote:
afhverju er alltaf sama fólkið við stjórnvölinn..

Ekki er ég að lasta störf þeirra .. og ekki myndi ég gefa kost á mér

Af hverju ertu að velta þessu fyrir þér ef þú sjálfur mundir ekki einusinni
nenna að taka þátt í að stjórna þessu :roll:

Eru margir hérna sem væru tilbúnir að taka þátt að alvöru í að stjórna þessu
apparati, að alvöru ekki með hálfum hug ??

Síðustu misseri hef ég einmitt verið að pæla í því hvort það sé ekki að verða
tímabært að kosið verði til stjórnar eins og eðlilegt er að gera í slíkum áhugamannafélögum.
Ég er ekki alveg búinn að komast að niðurstöðu um það hvort að það sé tímabært,
en þó er ég mjög sammála orðum Sæma hér að ofan.

Aðal spurningin er núna hvort að mönnum finnist tímabært að krafturinn haldi
kosningar næsta haust og ný kosin stjórn tæki við í janúar 2009.
Einnig er spurning hvort þetta sé ekki fyrir meðlimi að ráða frekar en alla
sem hafa internetaðgang ?

Author:  Alpina [ Sun 09. Mar 2008 22:31 ]
Post subject: 

Gunni wrote:

Er það í umræðunni að menn fái smá hlunnindi við stjórnarstörf,, eins og eðlilegt getur talist,, ekki alltaf hvetjandi að gefa allt og fá ekkert!!

Umræðan´um það... til í að vera í stjórn eða ekki, er ekki það sem er aðalatriðið..

Hverjir eru HÆFIR,, hverjir gefa kost á sér,, hverjir eru kosnir ,, hverjir nenna,, hverjir ÆTLA ,, hverjir geta
hverjir eru traustsins verðir osfrv..

Þar sem ég er alger risa-eðla með AFAR takmarkaða tölvukunnáttu tel ég útilokað að ég nenni að starfa við svona,, enda leiðist mér að starfa við eitthvað sem ég kann ekki að gera..
Orðstór get ég verið,, og EKKI varfærinn alltaf,, þar afleiðandi útilokar það mig einnig..

Er ekki að sækjast eftir slíku,, og ef svo færi .. mundi það ÖRUGGLEGA HEYRAST

Author:  Aron Andrew [ Sun 09. Mar 2008 22:34 ]
Post subject: 

Þetta snýst samt alls ekki bara um að vera gulur á spjallinu.

Þó svo að þú sért svoldið oldschool Sveinbjörn þá er alveg hellingur að gera utan við internetið :wink:

Author:  Gunni [ Sun 09. Mar 2008 22:38 ]
Post subject: 

Alpina wrote:
Er það í umræðunni að menn fái smá hlunnindi við stjórnarstörf,, eins og eðlilegt getur talist,, ekki alltaf hvetjandi að gefa allt og fá ekkert!!

Mér þætti gríðarlega óeðlilegt að áhugamannafélag eins og þetta færi að greiða
aðilum þóknun fyrir að halda því gangandi. Ég mundi aldrei greiða því mitt
atkvæði, það er á hreinu. Það væri álíka gáfulegt eins og að greiða
nemendafélagastjórnum :lol:

Ef menn eru strax farnir að tala um að það þurfi að greiða fólki fyrir að bjóða
sig fram til stjórnar í áhugamannaklúbbi þá er ekki verið að gera þetta á réttum
forsendum.

Segðu mér Sveinbjörn, hvernig gera félagar þínir þetta í stjörnunni ????

Author:  Alpina [ Sun 09. Mar 2008 22:41 ]
Post subject: 

Gunni wrote:
Alpina wrote:
Er það í umræðunni að menn fái smá hlunnindi við stjórnarstörf,, eins og eðlilegt getur talist,, ekki alltaf hvetjandi að gefa allt og fá ekkert!!

Mér þætti gríðarlega óeðlilegt að áhugamannafélag eins og þetta færi að greiða
aðilum þóknun fyrir að halda því gangandi. Ég mundi aldrei greiða því mitt
atkvæði, það er á hreinu. Það væri álíka gáfulegt eins og að greiða
nemendafélagastjórnum :lol:

Ef menn eru strax farnir að tala um að það þurfi að greiða fólki fyrir að bjóða
sig fram til stjórnar í áhugamannaklúbbi þá er ekki verið að gera þetta á réttum
forsendum.

Segðu mér Sveinbjörn, hvernig gera félagar þínir þetta í stjörnunni
????

veit ekki .. er ekki í þeim klúbbi

Author:  Steini B [ Sun 09. Mar 2008 22:46 ]
Post subject: 

Vááá, hvað ég mundi ekki hafa tíma í að vera í einhverri svona stjórn... :lol:

Page 1 of 3 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/