bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Zetor WRX
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=27968
Page 1 of 2

Author:  Lindemann [ Sun 09. Mar 2008 13:49 ]
Post subject:  Zetor WRX

datt í hug að henda inn myndum af landbúnaðartækinu hérna, þó það sé mökkljótt :lol:

Image


er svo mjög stoltur af því að í gær nennti ég að gera eitthvað meira en að setja bensín á hann, framljósin hafa alltaf pirrað mig, svo ég tók þau í sundu og tók appelsínugula draslið úr stefnuljósunum og málaði rammann í ljósunum svartann.

fyrir:
Image

Eftir:
Image

Author:  bimmer [ Sun 09. Mar 2008 13:54 ]
Post subject: 

Mun flottari eftir!

Author:  Leikmaður [ Sun 09. Mar 2008 13:56 ]
Post subject: 

Smábreyting, en breytir þó helling - næst bara taka þessi flennistóru glitaugu á hliðunum og spreyja þau svört!

Hvernig líkar þér annars við bílinn?

Þó að þetta séu ógurlegar ,,dollur", þá hef ég lúmskt gaman af þeim - sérstaklega þegar það er einhver snjór úti - 220 hö sem virka, bsk, 4x4!

Author:  basten [ Sun 09. Mar 2008 14:04 ]
Post subject: 

Held ég sé einn af fáum sem finnst "bug-eye" Imprezurnar flottari en þær sem komu á eftir þeim.

Finnst kringlóttu ljósin gefa flottan svip, svona nokkurskonar "retro" .

Author:  Lindemann [ Sun 09. Mar 2008 14:04 ]
Post subject: 

já ég veit ekki alveg hvað ég geri við glitaugun, er með almálun á dagskrá þannig að ég geri örugglega eitthvað í þessu þá.

Ég keypti bílinn nú bara til að nota sem vetrarbíl, en seldi svo BMW'inn......
Hann hefur allavega reynst mér vel........ fannst hann rosa sprækur fyrst en núna finnst mér aflið bara ekkert spes þannig lagað.
Ætlaði aldrei að fara að eyða neinu í hann nema bara viðhaldi en núna er ég búinn að festa mér fjöðrun, er að leita að nýjum felgum og þarf að heilsprauta hann. :lol:
Hugsa að ég eigi þetta bara þangað til ég hef efni á BMW sem mig langar virkilega í, er ekki spenntur fyrir því í augnablikinu að fá mér BMW nema M bíl.

Author:  Dóri- [ Sun 09. Mar 2008 14:47 ]
Post subject: 

Málaði innan í ljósin á bugeye sem ég átti, málaði einnig glitaugun svört, það kom ekkert svo vel út enda eru þessi glitaugu alveg á hræðilegum stað.

Bara fylla upp í og mála, svona fyrst þú ert að fara að heilmála.

Author:  Kristjan [ Sun 09. Mar 2008 14:48 ]
Post subject: 

er ekki hægt að spartla uppí glitaugun? eða mála þau græn...?

Author:  Lindemann [ Sun 09. Mar 2008 14:55 ]
Post subject: 

jújú, það er ýmsilegt hægt að gera.........veit ekki hvort það sé sniðugt að fylla uppí þetta með sparsli, ætli það væri ekki best að sjóða í þetta. Annars er alltaf hætta á að það fari að brotna uppúr sparslinu.

Author:  Viggóhelgi [ Sun 09. Mar 2008 14:57 ]
Post subject: 

það er hægt að taka glitaugun af, og pússa og mála bara, ég setti samt scoop í staðin fyrir mín.. fannst það flottari kosstur, þar sem að annars verður bara... gagnslaus plata á brettinu... eða já! :D

mynd, fyrir

Image

mynd, eftir

Image


enn hvernig er það, er fólk að pósta myndum af öðru en bara BMW'um hérna?! :D

Author:  Dóri- [ Sun 09. Mar 2008 15:22 ]
Post subject: 

Viggóhelgi wrote:
það er hægt að taka glitaugun af, og pússa og mála bara, ég setti samt scoop í staðin fyrir mín.. fannst það flottari kosstur, þar sem að annars verður bara... gagnslaus plata á brettinu... eða já! :D

mynd, fyrir

Image

mynd, eftir

Image


enn hvernig er það, er fólk að pósta myndum af öðru en bara BMW'um hérna?! :D



Finnst þetta scoop svo out of order, 0% tilgangur með því.


Bara sjóða og spartsla :lol:

Author:  Lindemann [ Sun 09. Mar 2008 15:35 ]
Post subject: 

mér finnst scoopið töluvert flottara en helv. glitaugað....en ég hugsa að ég fari frekar þá leiðina að slétta bara úr þessu og fletja svo út húddið í leiðinni 8)
fá mér bara gx húdd.

Author:  demi [ Sun 09. Mar 2008 15:37 ]
Post subject: 

og fá þér þá front mount intercooler ?

Author:  Viggóhelgi [ Sun 09. Mar 2008 15:46 ]
Post subject: 

Nd2Spd wrote:

Finnst þetta scoop svo out of order, 0% tilgangur með því.


Bara sjóða og spartsla :lol:


tjah, mér finnst þetta nú bara cool samt, :)

Author:  Alpina [ Sun 09. Mar 2008 15:50 ]
Post subject: 

Er hrifinn af þessu hjá þér Viggó.. þeas taka st.ljósið og setja hitt í staðinn

Jakob.. smart ljós .. allt annað

Author:  Lindemann [ Sun 09. Mar 2008 15:57 ]
Post subject: 

demi wrote:
og fá þér þá front mount intercooler ?


já ef ég skipti út húddinu

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/