bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Brútus???
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=27933
Page 1 of 1

Author:  Elnino [ Thu 06. Mar 2008 16:15 ]
Post subject:  Brútus???

Er eitthvað sem þú villt ræða í sambandi við bílinn þinn í dag í skólanum :lol:

Author:  Angelic0- [ Thu 06. Mar 2008 16:16 ]
Post subject: 

:lol:

Gossip time :?:

:whip:

Author:  Brútus [ Fri 07. Mar 2008 00:36 ]
Post subject: 

Veit ekki hvað ég get sagt um þetta mál.
:oops: :oops:

En ég náði sektinni smá niður :D


Þetta var samt í grófum dráttum þannig að ég kem í skólann, frekar seinn að vanda og sé að af einhverjum ótrúlegum ástæðum er laust stæði beint fyrir utan skólan. Það voru bílar lagðir sitthvorum megin við þetta stæði og ég ákveð að grípa þetta góða tækifæri. Í fljótfærni minni og svefnleysi hef ég látið það fara framhjá mér að þetta var í raun gangstéttin og eina leiðin fyrir fatlaða til þess að komast út um þennan hluta. Klemman var sett á bílinn vegna þess að ég var að hindra aðgengi fatlaðra og eitthvað.
Sé eftir þessu smá en svona gerist á bestu bæjum. Meirasegja á Selfossi.
Image

Author:  Axel Jóhann [ Fri 07. Mar 2008 02:15 ]
Post subject: 

Heheeh, leiðindi. :lol:

Author:  Aron Andrew [ Fri 07. Mar 2008 08:22 ]
Post subject: 

Og er þetta bara það fyndnasta sem hefur gerst á Selfossi í langann tíma? :lol:

Author:  Brútus [ Fri 07. Mar 2008 08:26 ]
Post subject: 

Alls ekki það var mikið fyndnara þegar að Siggi gleymdi að setja gel í hárið á sér einn morguninn og ég tala nú ekki um þegar að Invar skrópaði í ljós. :roll:

Author:  Aron Andrew [ Fri 07. Mar 2008 08:32 ]
Post subject: 

Brútus wrote:
Alls ekki það var mikið fyndnara þegar að Siggi gleymdi að setja gel í hárið á sér einn morguninn og ég tala nú ekki um þegar að Invar skrópaði í ljós. :roll:


Bara eins og góður dagur í Verzló 8)

Ekkert gel, bíllinn dreginn og kemst ekki í ljós eftir skóla...

Author:  Brútus [ Fri 07. Mar 2008 09:14 ]
Post subject: 

Aron Andrew wrote:
Brútus wrote:
Alls ekki það var mikið fyndnara þegar að Siggi gleymdi að setja gel í hárið á sér einn morguninn og ég tala nú ekki um þegar að Invar skrópaði í ljós. :roll:


Bara eins og góður dagur í Verzló 8)

Ekkert gel, bíllinn dreginn og kemst ekki í ljós eftir skóla...


:lol:
Þannig á þetta að vera.

Author:  Vapor [ Fri 07. Mar 2008 09:26 ]
Post subject: 

Greeeyyyið Bjarni :lol: ... djöfull var fyndið að horfa á kallinn setja klemmuna á bílinn :P ...

Author:  Brútus [ Fri 07. Mar 2008 09:35 ]
Post subject: 

Horfa á hann setja hana á bílinn :twisted:
Ef að ég hefði séð hann setja þetta helvíti á bíl hjá einhverjum sem ég þekkti hefði ég farið beint til hans og reynt að díla eitthvað við hann. Hreinlega sagt að þetta væri minn bíll og ég væri bara alveg að fara, eða álíka afsökun .
:lol:

Author:  Vapor [ Fri 07. Mar 2008 09:40 ]
Post subject: 

hehehe.. ég var í tíma.... :roll: ....

...gekk samt nett illa hjá manninum að setja þetta á dekkið afþví að bíllinn var í beygju :P

Author:  gardara [ Fri 07. Mar 2008 09:41 ]
Post subject: 

þetta virðist vera stórmál á selfossi, talað um þetta á kraftinum og á myspace sé ég.... :lol:


Annars er þetta helvíti góð þýðing yfir á ensku:

Quote:
Mun heita Bjarni sem að á heima á Selfossi og er bara góður sko. Átti áður heima á afskekktum torfbæ Austur á landi sem hét Egilsstaðir. Er með msn sem er btg_4@hotmail.com ef ég man rétt. English: My name is Bjarni and i am a faomus Tv star from Iceland. My show is called Laugardagslögin


:lol:

Author:  Brútus [ Fri 07. Mar 2008 09:49 ]
Post subject: 

Vapor wrote:
hehehe.. ég var í tíma.... :roll: ....

...gekk samt nett illa hjá manninum að setja þetta á dekkið afþví að bíllinn var í beygju :P

Þegar að ég var að ræða við skólastjóran um þetta mál sagði ég við hann að ég hefði verið að velta fyrir mér að ná mér í slípirokk í skúrinn og skera þetta bara. Þá sagði skólastjórinn að ég hefði fengið mjög háa sekt og mér yðri vikið úr skólanum :shock: :shock:

gardara wrote:
þetta virðist vera stórmál á selfossi, talað um þetta á kraftinum og á myspace sé ég.... :lol:


Annars er þetta helvíti góð þýðing yfir á ensku:

Quote:
Mun heita Bjarni sem að á heima á Selfossi og er bara góður sko. Átti áður heima á afskekktum torfbæ Austur á landi sem hét Egilsstaðir. Er með msn sem er btg_4@hotmail.com ef ég man rétt. English: My name is Bjarni and i am a faomus Tv star from Iceland. My show is called Laugardagslögin


:lol:


Haha :D
Ef að ég kommenta á útlenskar myspace síður einhverra hluta vegna þá gef ég mig alltaf út sem eitthvað djöfuls celeb sko. Hehe það er bara fyndið.
Já. Svo sér fólk link á youtube videoið þara undir.
Þetta myspace var bara stofnað í kring um þetta myndband í einhverju flippi eiginlega sko. Átti aldrei myspace og er þannig séð bara nýbyrjaður í því.
Tímaþjófur en skemmtilegt.
Image

Author:  Elnino [ Fri 07. Mar 2008 15:14 ]
Post subject: 

Aron Andrew wrote:
Og er þetta bara það fyndnasta sem hefur gerst á Selfossi í langann tíma? :lol:


Reyndar er þetta nokkuð skondið þar sem að þessi "klemma" er búinn að vera í glerboxi undanfarin tvö ár í skólanum til að hræða fólk við að leggja ólöglega. Nú undanfarið er búið að hertaka ölll grös og gangstéttir af bílum þannig að loksins var þetta drasl notað.

en hvað var sektin há???

Author:  Brútus [ Fri 07. Mar 2008 15:29 ]
Post subject: 

Sko ég ræddi mjög lengi við skólameistara um þetta mál. Hann svona hér um bil stakk upp á 3000 krónum. En mig grunar nú að þetta hafi verið miðað við fimmþúsund allavega hljómaði hræðsluáróðurinn þannig.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/