bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Tónlist.is svindlar á íslendingum https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=27845 |
Page 1 of 1 |
Author: | Bjarkih [ Sat 01. Mar 2008 14:50 ] |
Post subject: | Tónlist.is svindlar á íslendingum |
http://this.is/drgunni/okur.html #355 Það er svo sem ekkert nýtt að tónlist sé dýr á Íslandi, sama hvort það séu erlendir geisladiskar eða íslensk tónlist. Ef maður vill t.d. ná í íslenska tónlist löglega á netinu þá verður maður að borga 149 kr fyrir nýleg lög á tónlist.is á meðan hvert lag kostar oftast 99 cent í erlendum netverslunum. Svo sem ekkert nýtt heldur. Ég var hins vegar að komast að því að enska útgáfan af tónlist.is (tonlist.com) selur sömu íslensku lögin á 99 cent. Sami aðili er semsagt að selja útlendingum sömu vöru á ca 65kr og við eigum að borga fyrir 149kr. Þetta er yfir helmings munur. Og áður en eitthver nefnir virðisaukann þá er hann inni í 99 centunum. Nú veit ég ekki hvort það er hægt að kaupa á tónlist.com þegar maður er staddur á Íslandi, (er staddur í DK) en ég get vel trúað því að þeir loki á Íslendinga. Ef ekki þá ættu íslendingar auðvitað að nota .com endingu, allir sem einn. (nb. Þetta er sama sindrómið og hjá Icelandair. Dýrt fyrir Íslendinga, ódýrari fluggjöld fyrir útlendinga á sömu ferðum...) |
Author: | iar [ Sat 01. Mar 2008 16:26 ] |
Post subject: | Re: Tónlist.is svindlar á íslendingum |
Bjarkih wrote: Ef ekki þá ættu íslendingar auðvitað að nota .com endingu, allir sem einn.
Eða hætta að versla við þá ![]() |
Author: | Brútus [ Sat 01. Mar 2008 23:56 ] |
Post subject: | |
Borgar sig ekki að búa á þessu landi. Ísland, Best í heimi ? (ath: Ég lenti í svipuðu vandamáli fyrir nokkrum árum og var rukkaður um 10 þús fyrir bíllykil. Þetta var subaru impreza og fylgdi honum bara einn lykill. Ég fór ekki í umboðið heldur í Byko og lét smíða 2 lykla fyrir einhverja hundrað kalla. Gat ekki notað þá því það er einhver búnaður í orginal lyklinum sem svissinn skynjar og því drepst á bílnum ef annar lykill er notaður. Líklega er það þetta kóðunardrasl. Ég leysti þetta með því að líma orginal lykilinn utan á svissinn undir klæðninguna sem er í kringum hann. Nota núna hina lyklana og virkar fínt.) Doktorinn sniðugur. |
Author: | Alpina [ Sun 02. Mar 2008 09:24 ] |
Post subject: | |
Brútus wrote: Borgar sig ekki að búa á þessu landi.
Ísland, Best í heimi ? (ath: Ég lenti í svipuðu vandamáli fyrir nokkrum árum og var rukkaður um 10 þús fyrir bíllykil. Þetta var subaru impreza og fylgdi honum bara einn lykill. Ég fór ekki í umboðið heldur í Byko og lét smíða 2 lykla fyrir einhverja hundrað kalla. Gat ekki notað þá því það er einhver búnaður í orginal lyklinum sem svissinn skynjar og því drepst á bílnum ef annar lykill er notaður. Líklega er það þetta kóðunardrasl. Ég leysti þetta með því að líma orginal lykilinn utan á svissinn undir klæðninguna sem er í kringum hann. Nota núna hina lyklana og virkar fínt.) Doktorinn sniðugur. hehe,, þetta er meistara-lausn Brútus,, Bara flott ![]() ![]() ![]() |
Author: | Mazi! [ Sun 02. Mar 2008 14:38 ] |
Post subject: | |
Beeh www.rtorrent.net www.piratebay.org ![]() |
Author: | JonHrafn [ Sun 02. Mar 2008 17:09 ] |
Post subject: | |
Varð að prufa að slá inn www.tonlist.com og viti menn, reroutaður á www.tonlist.is Á líklega við um allar IS IP tölur |
Author: | ValliFudd [ Sun 02. Mar 2008 17:19 ] |
Post subject: | |
http://www.icelandicmusic.com/ Allt fyrir ástina með Páli Óskari kostar 13$ á tonlist.com en 1.299 kr. á .is ![]() |
Author: | Geirinn [ Sun 02. Mar 2008 17:19 ] |
Post subject: | |
http://www.sureproxy.com/nph-index.cgi/011110A/http/www.icelandicmusic.com/ |
Author: | Brútus [ Sun 02. Mar 2008 19:50 ] |
Post subject: | |
Um að gera að nota http://www.sureproxy.com eða www.hidemyass.com En annars þá veit ég ekki hvort að það sé hægt að skrá sig inn á þetta þannig. |
Author: | Stanky [ Sun 02. Mar 2008 20:20 ] |
Post subject: | |
laugardalslaugin á 32$ ..... 1699 á .is |
Author: | Sumarliði M5 [ Sun 02. Mar 2008 22:23 ] |
Post subject: | |
Alpina wrote: Brútus wrote: Borgar sig ekki að búa á þessu landi. Ísland, Best í heimi ? (ath: Ég lenti í svipuðu vandamáli fyrir nokkrum árum og var rukkaður um 10 þús fyrir bíllykil. Þetta var subaru impreza og fylgdi honum bara einn lykill. Ég fór ekki í umboðið heldur í Byko og lét smíða 2 lykla fyrir einhverja hundrað kalla. Gat ekki notað þá því það er einhver búnaður í orginal lyklinum sem svissinn skynjar og því drepst á bílnum ef annar lykill er notaður. Líklega er það þetta kóðunardrasl. Ég leysti þetta með því að líma orginal lykilinn utan á svissinn undir klæðninguna sem er í kringum hann. Nota núna hina lyklana og virkar fínt.) Doktorinn sniðugur. hehe,, þetta er meistara-lausn Brútus,, Bara flott ![]() ![]() ![]() LANGBEST ![]() |
Author: | Brútus [ Sun 02. Mar 2008 22:29 ] |
Post subject: | |
test <object><param></param><param></param><embed></embed></object> Greinilega bannað. :/ |
Author: | Misdo [ Sun 02. Mar 2008 23:21 ] |
Post subject: | |
já eða bara dl þessu frítt á netinu ![]() |
Author: | Axel Jóhann [ Mon 03. Mar 2008 02:05 ] |
Post subject: | |
En afhverju ætti einhver að nenna kaupa/downloada Allt fyrir ástina með Páli Óskari, þetta er svo LEIÐINLEGT lag. |
Author: | Stanky [ Mon 03. Mar 2008 09:57 ] |
Post subject: | |
Axel Jóhann wrote: En afhverju ætti einhver að nenna kaupa/downloada Allt fyrir ástina með Páli Óskari, þetta er svo LEIÐINLEGT lag.
Nú það kaupa þetta margir sem finnst þetta EKKI leiðinlegt lag....... |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |