bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Mercedes-Benz AMG ofurbílasýning ÖSKJU á laugardag https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=27805 |
Page 1 of 1 |
Author: | ValliFudd [ Thu 28. Feb 2008 16:15 ] |
Post subject: | Mercedes-Benz AMG ofurbílasýning ÖSKJU á laugardag |
Fékk senda fréttatilkynningu og langaði að koma þessu hingað ![]() Fréttatilkynningin Quote: AMG ofurbílasýning ÖSKJU, Laugavegi, föstudaginn 29. febrúar og laugardaginn 1. mars
- Stórviðburður á Íslandi Í dag, föstudag, og á morgun, laugardag, efnir Bílaumboðið ASKJA, Laugavegi, til stórsýningar á lúxus- og sportbílunum Mercedes-Benz AMG. Á meðal sýningargripa verða nýr C 63 AMG, sem skilar 457 hestöflum og er aðeins 4,57sekúndur í hundraðið og S 63 AMG – 525 hestafla lúxubíll. Einnig verður vinsælasti sportjeppinn í dag kynntur – ML 63 AMG, sem er 510 hestöfl - og tveggja manna sportkerran SLK 55 AMG – 360 hestöfl. Um AMG AMG var stofnað árið 1967 og hefur æ síðan hannað ofurvélar í Mercedes-Benz lúxusbifreiðar. Fyrstu tveir stafirnir í nafninu standa fyrir stofnanda fyrirtækisins, Hans Werner Aufrecht, samstarfsmann hans, Erhard Melcher, og fæðingarbæ Aufrechts, Grossaspach. Á þessum 40 árum hefur mikið vatn runnið til sjávar og starfsumhverfi fyrirtækisins breyst mikið. Árið 1999 yfirtók Daimler-Chrysler rekstur AMG og ber fyrirtækið nú nafnið Mercedes-AMG GmbH. Það byggir á sömu grundvallar gildum og Mercedes-Benz: gæðum, öryggi, þægindum og umhverfisvitund. Sýningin verður í sýningarsal ÖSKJU, Laugavegi 170, og stendur yfir frá kl. 10-18 á föstudag og frá kl. 10-16 á laugardag. EDIT: leiðrétting, hún verður semsagt á föstudag líka ![]() |
Author: | flamatron [ Thu 28. Feb 2008 17:16 ] |
Post subject: | |
Heitar píur og flottir bílar. Klikkar ekki.! ![]() |
Author: | Thrullerinn [ Thu 28. Feb 2008 17:20 ] |
Post subject: | |
ohhh ég sá einn glænýjan G55 í vikunni, sjæzebæze hvað hann var flottur ![]() ... verður gaman að skoða þetta þó svo að hann verði ekki þarna á sýningunni. |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |