BG MOA
Efnið er efst á þessari síðu
Þekkir einhver þetta efni? Og þá hvar ég get fengið það hérna heima og það helst strax núna.
Svo auðvitað ef einhver hefur prófað þetta efni, mæla menn með því.
Og svo hafið þið einhverja reynslu af engine flush efnum?
Ef svo er getið þið mælt með einhverju, og þá hvar ég fæ það efni.
--
Málið er að þetta er fyrir pajeroinn hjá mér. Við héldum fyrst að þetta væri heddpakkning farinn, svo ég er búinn að fjárfesta í slípisetti, nýrri tímareim, viftureim, vökvastýrisreim, þreföldum vatnskassa, fullt af spes verkfærum og miklu, miklu meira af stuffi.
Jæja, allavega vorum loksins að klára ganga frá öllu í morgun og störtuðum, heyrðu, bíllinn var alveg eins og þegar við byrjuðum - BÖMMER.
En allavega, við erum búin að finna út að þetta er einn eitthvað sem heitir valve lash adjuster. Svo það þarf að fara rífa aftur upp, voða gaman eða þannig.
Er einhver sem kannast við þetta valve lash adjuster og hefur skipt um þetta, er það nokkuð mikið mál? Þetta er reyndar í heddinu sem er betra að komast að (farþegamegin) sem betur fer.
Svo er ég bara búinn að vera lesa á netinu og menn mæla með því að nota þetta BG MOA á þessa vélar.