bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Wed 25. Jun 2025 12:40

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 17 posts ]  Go to page 1, 2  Next
Author Message
 Post subject: Þegar konur eldast
PostPosted: Wed 20. Feb 2008 17:14 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Fri 18. Feb 2005 22:18
Posts: 657
Það má vera að einhver af ykkur hafi séð þetta áður ef svo er þá biðst ég afsökunar á því. :wink:


*****************************************

Þegar konur eldast

Grein eftir Jón Jónsson

Það er mikilvægt fyrir karlmenn að muna, að eftir því sem konur eldast verður erfiðara fyrir þær að halda sömu gæðum í húsverkunum og þegar þær voru ungar. Þegar þú tekur eftir þessu, reyndu ekki að æpa á hana. Sumar konur eru ofurviðkvæmar, og það er ekkert verra til en ofurviðkvæm kona.

Ég heiti Jón. Ég ætla að segja ykkur hvernig ég tókst á við þetta ástand varðandi konuna mína - hana Siggu. Þegar ég settist í helgan stein fyrir nokkrum árum, þurfti Sigga auðvitað að fá sér heildagsvinnu meðfram hlutastarfinu, bæði til þess að auka tekjur heimilisins og halda sparnaði okkar hjóna gangandi. Fljótlega eftir að hún fór að vinna tók ég þó eftir að aldurinn fór að sjást á henni.

Ég kem venjulega heim úr golfi á sama tíma og hún kemur heim úr vinnunni. Þó hún viti hvað ég er svangur, þá þarf hún næstum alltaf að hvíla sig í hálftíma áður en hún fer að elda matinn. Ég æpi þó ekki á hana. Í staðinn segi ég henni að taka þann tíma sem hún þarf og vekja mig bara þegar maturinn er kominn á borðið. Ég borða venjulega hádegismat í "Heiðursmannagrillinu" í klúbbhúsinu þannig að það er auðvitað ekkert á dagskránni að fara út að borða.

Áður fyrr var Sigga vön að vaska upp um leið og við vorum búin að borða. Nú er hinsvegar ekkert óvenjulegt að það bíði jafnvel í nokkra tíma. Ég geri það sem ég get með því að minna hana á það á nærgætinn hátt að diskarnir þvoi sig ekki sjálfir. Ég veit að hún kann að meta þetta, þar sem það virðist hvetja hana til að klára uppvaskið áður en hún fer að sofa.

Annað einkenni öldrunar er kvörtunaráráttan held ég. Til dæmis heldur hún því fram að það sé erfitt að finna tíma til að greiða reikningana í matartímanum. En strákar, við lofuðum að standa með þeim í blíðu og stríðu, svo ég brosi bara og býð fram hvatningu. Ég segi henni bara að dreifa þessu á tvo til þrjá daga. Þannig þarf hún ekki að flýta sér eins mikið. Ég minni hana líka á að þótt hún missi af matartímanum af og til sé það allt í lagi ( þið vitið hvað ég meina ). Mér finnst reyndar nærgætni einn af mínum betri kostum.

Þegar hún vinnur einfaldari verkefni, virðist hún halda að hún þurfi fleiri hvíldarstundir. Hún varð til dæmis að taka pásu þegar hún var einungis hálfnuð með að slá blettinn. Ég reyni að vera ekki með uppistand. Ég er sanngjarn maður. Ég segi henni að útbúa sér stórt glas af nýpressuðum köldum appelsínusafa og setjast í smástund. Og þar sem hún er að gera þetta, bið ég hana að blanda einn fyrir mig í leiðinni.

Ég veit að væntanlega lít ég út eins og dýrlingur vegna þess hvernig ég styð hana Siggu mína. Það er ekkert auðvelt að sýna svona mikla tillitssemi. Mörgum karlmönnum finnst það erfitt. Og mörgum finnst það alveg ómögulegt ! Það veit enginn betur en ég hversu pirrandi konur verða þegar þær eldast.

En strákar, ef þið hafið lært það af þessarri grein að vera nærgætnari og minna gagnrýnir á konurnar ykkar sem eru að eldast - lít ég svo á að þetta hafi verið þess virði að setja á blað. Við megum ekki gleyma því að við fæddumst á þessa jörð til hjálpa hver öðrum.

Kveðja,
Jón Jónsson
***************************************************************

Athugasemd ritstjóra:

Jón Jónsson lést skyndilega þann 17. febrúar sl. af blæðingum í endaþarmi. Samkvæmt lögregluskýrslu fannst Calloway extra löng 50 tommu Big Bertha golfkylfa á kafi í rassgatinu á honum, þannig að aðeins stóðu tíu cm af handfanginu út, og við hliðina var sleggja.

Sigríður konan hans var handtekin og ákærð fyrir morðið. Kviðdómurinn sem eingöngu var skipaður konum var 15 mínútur að komast að niðurstöðu sem var þessi: Við föllumst á það sem fram kemur í vörn Sigríðar að Jón hafi einhvern veginn, án þess að gera sér grein fyrir því, sest ofan á eigin golfkylfu.

*********************************************** :lol: :lol: :lol:

_________________
gaui1969@gmail.com
e36 coupe 318is. Seldur
e36 convertible 325i
e21 1982 323i
e30 top chop
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 20. Feb 2008 17:28 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Posts: 7764
Location: Kópavogur
Góður þessi!

Greyið kallinn :lol:

_________________
BMW E46 318i Touring


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 20. Feb 2008 17:39 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Posts: 15561
Location: Keflavík
haha.... ég veit um allavega einn sem að hefur fengið golfkylfu á kaf í óæðri endann :!:

Og svo hafnarboltakylfu.....

_________________
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 20. Feb 2008 17:42 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Posts: 7764
Location: Kópavogur
Angelic0- wrote:
haha.... ég veit um allavega einn sem að hefur fengið golfkylfu á kaf í óæðri endann :!:

Og svo hafnarboltakylfu.....


Eitthvað sem skeði í fangelsinu þá? :lol:

_________________
BMW E46 318i Touring


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 20. Feb 2008 17:43 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Posts: 15561
Location: Keflavík
Aron Andrew wrote:
Angelic0- wrote:
haha.... ég veit um allavega einn sem að hefur fengið golfkylfu á kaf í óæðri endann :!:

Og svo hafnarboltakylfu.....


Eitthvað sem skeði í fangelsinu þá? :lol:


Neibb... en sá sem að tróð kylfunum þangað sem að þær fóru er að fara í fangelsi núna :lol:

_________________
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 20. Feb 2008 19:17 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Fri 29. Sep 2006 12:08
Posts: 431
Location: Norðlingaholtið
Angelic0- wrote:
haha.... ég veit um allavega einn sem að hefur fengið golfkylfu á kaf í óæðri endann :!:

Og svo hafnarboltakylfu.....



gerðist það kannski í ólafsvík ??'

_________________
Image

Seldir:

e39 520 2003
e46 318 2000


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 20. Feb 2008 20:33 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 04. Feb 2004 16:29
Posts: 2466
Location: Playboy Mansion, Hafnarfjörður
Strákar... þið vitið líka að...

Karlmenn eldast eins og Viskí... konur eins og mjólk!!



:lol: 8)

_________________
Rúnar P
662 5272

Druslusafnið núna:
BMW e46
Suzuki Baleno
Honda CRF250R
Pocket Bike og fleira misgáfulegt dót...


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 20. Feb 2008 20:41 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Posts: 15561
Location: Keflavík
skaripuki wrote:
Angelic0- wrote:
haha.... ég veit um allavega einn sem að hefur fengið golfkylfu á kaf í óæðri endann :!:

Og svo hafnarboltakylfu.....



gerðist það kannski í ólafsvík ??'


Nei, þetta gerðist í bílskúr í keflavík......

Bíræfinn náungi fór að spjalla við lögguna....

_________________
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 20. Feb 2008 23:46 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 04. Mar 2005 16:35
Posts: 2042
Angelic0- wrote:
skaripuki wrote:
Angelic0- wrote:
haha.... ég veit um allavega einn sem að hefur fengið golfkylfu á kaf í óæðri endann :!:

Og svo hafnarboltakylfu.....



gerðist það kannski í ólafsvík ??'


Nei, þetta gerðist í bílskúr í keflavík......

Bíræfinn náungi fór að spjalla við lögguna....



Þú ert held ég of harður fyrir þennan heim :lol: eini gæinn sem ég veit um sem er stoltur af hafa setið inni.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 21. Feb 2008 16:13 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Posts: 15561
Location: Keflavík
Nd2Spd wrote:
Angelic0- wrote:
skaripuki wrote:
Angelic0- wrote:
haha.... ég veit um allavega einn sem að hefur fengið golfkylfu á kaf í óæðri endann :!:

Og svo hafnarboltakylfu.....



gerðist það kannski í ólafsvík ??'


Nei, þetta gerðist í bílskúr í keflavík......

Bíræfinn náungi fór að spjalla við lögguna....



Þú ert held ég of harður fyrir þennan heim :lol: eini gæinn sem ég veit um sem er stoltur af hafa setið inni.


Hvenær hef ég sagst vera stoltur af því að hafa setið inni :?:

Það geta allir lent í því að þurfa að sitja af sér syndir... nefni t.d. mann sem að sat með mér inni.... fyrir það eitt að trassa skattskýrsluna sína og með því fór allt í klessu hjá honum...

Hér er ég hinsvegar að tala um mann nokkurn sem að var tekinn í bakarí-ið af nokkrum hrottum Njarðvíkur/Keflavíkur fyrir að upplýsa lögregluna um glæpastarfsemi sem að þeir áttu aðild að..

Þeir sem að búa í Keflavík vita eflaust um hvern ég er að ræða..

Hinsvegar var það lífsreynsla út af fyrir sig að sitja inni. Ég sá þarna fjöldann allan af fólki sem að á við mjög bág kjör að lifa og því er ég þakklátur með það sem að ég á og hef.

Til að mynda Contalgen fíkill sem að var vistaður á skólavörðustíg og var BÓKSTAFLEGA út úr kortinu. Mikið fannst mér ég vera heilbrigður í samanburði við þann tappa :!:

Ég er alls ekki að reyna að vera neitt harður... ég kem bara fram á mínum eigin forsendum... Ég framdi glæpi, viðurkenndi þá og tók út mína refsingu :!:

_________________
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 21. Feb 2008 16:17 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Sun 18. Apr 2004 14:05
Posts: 3213
Location: Akureyri
Veistu eitt Viktor.......



























Þú átt skilið Thule, og jafnvel smá klapp :clap:

_________________
Jón M
S: 693-9796
WET Motorsport - Vara og aukahlutir í bíla, vélar og tæki

Ford Bronco '66

Bara station bílar, enginn BMW.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 21. Feb 2008 16:17 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Posts: 15561
Location: Keflavík
jon mar wrote:
Veistu eitt Viktor.......



























Þú átt skilið Thule, og jafnvel smá klapp :clap:


Hví :?:

_________________
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 21. Feb 2008 16:29 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Sun 18. Apr 2004 14:05
Posts: 3213
Location: Akureyri
Angelic0- wrote:
jon mar wrote:
Veistu eitt Viktor...

Þú átt skilið Thule, og jafnvel smá klapp :clap:


Hví :?:


Nú viltu ekki thule??? OK ÞÁ!! :wink:

Bara fyrir að vera meiri maður en sumir hérna halda, þó svo á köflum komi hlutirnir sem þú skrifar út sem kaos sem auðvelt er að misskilja eða túlka sem steypu.

_________________
Jón M
S: 693-9796
WET Motorsport - Vara og aukahlutir í bíla, vélar og tæki

Ford Bronco '66

Bara station bílar, enginn BMW.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 21. Feb 2008 16:32 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Posts: 15561
Location: Keflavík
jon mar wrote:
Angelic0- wrote:
jon mar wrote:
Veistu eitt Viktor...

Þú átt skilið Thule, og jafnvel smá klapp :clap:


Hví :?:


Nú viltu ekki thule??? OK ÞÁ!! :wink:

Bara fyrir að vera meiri maður en sumir hérna halda, þó svo á köflum komi hlutirnir sem þú skrifar út sem kaos sem auðvelt er að misskilja eða túlka sem steypu.


Ég skal alveg fá THULE.... hvar sæki ég hann :?:

En já, þakka þér fyrir það... ég skynjaði bara ögn af kaldhæðni í svarinu þínu hér að ofan... ég á það til að aula einhverju út úr mér í flýti.. og þá virðist vera að margir misskilji það sem að ég er að reyna að koma frá mér :!:

_________________
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 21. Feb 2008 16:35 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Sun 18. Apr 2004 14:05
Posts: 3213
Location: Akureyri
Getur sótt Thule í öllum helstu útsölustöðum ÁTVR held ég.

Ef ég ætti til 1 stk mættiru alveg fá hann, þar sem mér finnst bjór með öllu skelfilega vondur :lol:

_________________
Jón M
S: 693-9796
WET Motorsport - Vara og aukahlutir í bíla, vélar og tæki

Ford Bronco '66

Bara station bílar, enginn BMW.


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 17 posts ]  Go to page 1, 2  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 2 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group