bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Dulmál - litlir/stórir strákar
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=27638
Page 1 of 3

Author:  Lilja [ Wed 20. Feb 2008 11:43 ]
Post subject:  Dulmál - litlir/stórir strákar

Stolið frá Sumarliða :wink:

Það er ekkert grín að vera stödd á samkomu hjá kraftinum með vinkonunum þegar einhver löðrandi hasarkroppur kemur. Þá vill ég auðvitað tilkynna stelpunum um fundinn án þess að verða mér til skammar. Því höfum við komið okkur upp dulmáli:

E36 = Dæmigerðir ungir folar, misgáfaðir eins og karlmenn flestir, 4 cylindra eða 6, hver veit.

E39 = 20-25 ára gaurar, með stærra heilabú en þó hægt að leiða þá niður laugaveginn án þess að skammast sín. Þeir eyða meiru og eru dýrir á fóðrum, jafnvel allskonar aukabúnaður sem þú veist ekkert um fyrr en þú ert búin að kaupa, jafnvel snargalnar fyrrverandi eiginkonur og chihuahua hvolpar.

E34 = Karlar á fertugsaldri, mjög tignarlegir margir hverjir (Clint Eastwood í Dirty Harry) en margir orðnir lúnir og fjósalegir.

E32 = Ja segir það sig ekki sjálft, kannski slatti undir húddinu, en samt SPIKFEITT og gamalt og étur á við 10 hross. Kannski fínt að keyra þegar maður er kominn inn og búinn að fylla á með Viagra ... Aldrei prófað svoleiðis

E36 compact = ég þori nú varla að láta þetta út úr mér en jæja. Þegar hann kemur keyrandi á móti mér kemst ég ekki hjá því að horfa, fullkomin hönnun, langar að keyra hann, langar í hann. Svo þegar hann að þýtur hjá þá sé ég, ó er þetta compact. Alltof lítill fyrir mig, sbr. litlar slöngur/pulsur/rör ...


Þetta er svona gróf hugmynd að þessu dulmáli. Hægt væri að henda inn í þessa jöfnu:

felgustærðir = fætur, brjóstkassi
aðalljós = augu
widebody = hliðarspik
slammaður = undirhaka (hökur), jafnvel fellingar á baki
shadowline = tanaður í drasl
Gírstöng = slanga/pulsa/rör
Áklæði = líkamshár
Of stórt púst = Talar út um rassgatið á sér


... og svona mætti lengi telja. Þetta er nú meira eitthvað svona sem verður hugsað á staðnum um hvert eintak fyrir sig. En þetta er svona gróft uppkast af því sem ég hef að segja um þetta mál.

p.s.

E30 - Hinn fullkomni maður :loveit: .. :lol:

Author:  arnibjorn [ Wed 20. Feb 2008 11:45 ]
Post subject: 

Quote:
Gírstöng = slanga/pulsa/rör


:lol:

Author:  jon mar [ Wed 20. Feb 2008 11:59 ]
Post subject: 

:lol:

Verst að E30 er oft illa haldinn af sliti í gírstöng :lol:

Author:  ///M [ Wed 20. Feb 2008 12:08 ]
Post subject: 

jon mar wrote:
:lol:

Verst að E30 er oft illa haldinn af sliti í gírstöng :lol:


sem getur leitt af sér að neglt sé í vitlausa "gíra" :roll:

Author:  maxel [ Wed 20. Feb 2008 12:10 ]
Post subject: 

E30 hefur reynsluna

Author:  Aron Andrew [ Wed 20. Feb 2008 12:34 ]
Post subject: 

En e30 með shortshifter? Er hann ennþá fullkominn? :lol: :lol:

Author:  jon mar [ Wed 20. Feb 2008 12:46 ]
Post subject: 

Aron Andrew wrote:
En e30 með shortshifter? Er hann ennþá fullkominn? :lol: :lol:


nei, verður að vera með gírstöng eins og í gamalli benz rútu, ss floormounted, og hnúðurinn samt upp á miðju mælaborði.

Author:  Lilja [ Wed 20. Feb 2008 12:58 ]
Post subject: 

Aron Andrew wrote:
En e30 með shortshifter? Er hann ennþá fullkominn? :lol: :lol:


:lol: Ég þarf greinilega eitthvað að endurskoða þetta.

Author:  bjahja [ Wed 20. Feb 2008 13:03 ]
Post subject: 

:lol: :lol: :lol: :lol: :lol: :lol: :lol:

Author:  Kristjan [ Wed 20. Feb 2008 14:37 ]
Post subject: 

Góður póstur hahaha

Author:  Xavant [ Wed 20. Feb 2008 14:43 ]
Post subject: 

Vantar e46 :D

Author:  Ingsie [ Wed 20. Feb 2008 16:30 ]
Post subject: 

ahahahaha Lilja snillingur!! :lol:

Author:  jon mar [ Wed 20. Feb 2008 16:35 ]
Post subject: 

Xavant wrote:
Vantar e46 :D


perhaps its a girls car :tease:

Author:  Hannsi [ Wed 20. Feb 2008 17:09 ]
Post subject:  Re: Dulmál - litlir/stórir strákar

Lilja wrote:
E39 = 20-25 ára gaurar, með stærra heilabú en þó hægt að leiða þá niður laugaveginn án þess að skammast sín. Þeir eyða meiru og eru dýrir á fóðrum, jafnvel allskonar aukabúnaður sem þú veist ekkert um fyrr en þú ert búin að kaupa, jafnvel snargalnar fyrrverandi eiginkonur og chihuahua hvolpar.


haha ég er 21 árs og á einmitt e39 :lol:

Annars er þetta snilld :D

Author:  Stebbimj [ Wed 20. Feb 2008 18:39 ]
Post subject: 

hehe það er nokkuð til í þessu, á einmitt E36 og er 18 ára gutti og bróðir minn sem er 20 ára á E39 :lol:

Page 1 of 3 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/