Stolið frá Sumarliða
Það er ekkert grín að vera stödd á samkomu hjá kraftinum með vinkonunum þegar einhver löðrandi hasarkroppur kemur. Þá vill ég auðvitað tilkynna stelpunum um fundinn án þess að verða mér til skammar. Því höfum við komið okkur upp dulmáli:
E36 = Dæmigerðir ungir folar, misgáfaðir eins og karlmenn flestir, 4 cylindra eða 6, hver veit.
E39 = 20-25 ára gaurar, með stærra heilabú en þó hægt að leiða þá niður laugaveginn án þess að skammast sín. Þeir eyða meiru og eru dýrir á fóðrum, jafnvel allskonar aukabúnaður sem þú veist ekkert um fyrr en þú ert búin að kaupa, jafnvel snargalnar fyrrverandi eiginkonur og chihuahua hvolpar.
E34 = Karlar á fertugsaldri, mjög tignarlegir margir hverjir (Clint Eastwood í Dirty Harry) en margir orðnir lúnir og fjósalegir.
E32 = Ja segir það sig ekki sjálft, kannski slatti undir húddinu, en samt SPIKFEITT og gamalt og étur á við 10 hross. Kannski fínt að keyra þegar maður er kominn inn og búinn að fylla á með Viagra ... Aldrei prófað svoleiðis
E36 compact = ég þori nú varla að láta þetta út úr mér en jæja. Þegar hann kemur keyrandi á móti mér kemst ég ekki hjá því að horfa, fullkomin hönnun, langar að keyra hann, langar í hann. Svo þegar hann að þýtur hjá þá sé ég, ó er þetta compact. Alltof lítill fyrir mig, sbr. litlar slöngur/pulsur/rör ...
Þetta er svona gróf hugmynd að þessu dulmáli. Hægt væri að henda inn í þessa jöfnu:
felgustærðir = fætur, brjóstkassi
aðalljós = augu
widebody = hliðarspik
slammaður = undirhaka (hökur), jafnvel fellingar á baki
shadowline = tanaður í drasl
Gírstöng = slanga/pulsa/rör
Áklæði = líkamshár
Of stórt púst = Talar út um rassgatið á sér
... og svona mætti lengi telja. Þetta er nú meira eitthvað svona sem verður hugsað á staðnum um hvert eintak fyrir sig. En þetta er svona gróft uppkast af því sem ég hef að segja um þetta mál.
p.s.
E30 - Hinn fullkomni maður 
..
