bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

hvar...eða réttara sagt..hvernig...
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=27588
Page 1 of 1

Author:  Dohc [ Mon 18. Feb 2008 00:50 ]
Post subject:  hvar...eða réttara sagt..hvernig...

..er hægt að fá svona myndasvæði einsog margir hérna á kraftinum eru með?

Author:  bjahja [ Mon 18. Feb 2008 00:51 ]
Post subject: 

Gerist meðlimur :wink:

Author:  Aron Andrew [ Mon 18. Feb 2008 00:51 ]
Post subject: 

Árgjaldið í BMWKraft er kr. 2.000,- og gildir meðlimaskírteinið frá 1. janúar til 31. desember óháð hvenær fólk skráir sig.

Athugið að ekki þarf nauðsynlega að skrá sig í klúbbinn til að taka þátt í spjallinu. Betra er að fólk skrái sig á spjallið áður en það skráir sig í klúbbinn svo hægt sé að tengja saman notandanafn á spjallinu og gilda meðlimi.

Hægt er að greiða árgjaldið á tvo vegu: millifæra beint inn á reikning BMWKrafts eða fá greiðsluseðil sendan. Afhendingartími á meðlimaskírteininu er ca. 2-3 vikur frá því að greiðsla berst. Athugið að kr. 75,- greiðslugjald bætist við árgjaldið ef sendur er greiðsluseðill.

Reikningsnúmer BMWKrafts er: 0322-26-2244, kennitala 510304-3730.

Athugið að meðlimakort eru ekki send út fyrr en greiðsla hefur borist!

Við mælum eindregið með að lesið sé yfir samþykkt félagsins áður en haldið er áfram með skráninguna.

Fullgildir meðlimir í klúbbnum njóta ýmissa fríðinda. Þeir fá afslátt hjá ýmsum fyrirtækjum, þá ýmist á þjónustu og/eða vörum, og lesa má meira um það hér á síðunni undir fríðindi. Auk þess fá meðlimir afslætti á allar uppákomur á vegum klúbbsins, ss. bjórkvöld, poolmót, dynodaga, árshátíð o.m.fl. Fullgildir meðlimir hafa einnig aðgang að sérstöku meðlimasvæði á spjallinu þar sem þeir geta tekið þátt í að móta starfssemi klúbbsins.

Author:  Dohc [ Mon 18. Feb 2008 02:10 ]
Post subject: 

glæsó spæsó...þá er bara að græja það
en ég vill ekki greiðsluseðil

Author:  Brútus [ Mon 18. Feb 2008 03:08 ]
Post subject: 

Besta myndasvæði sem ég veit um er
http://myndir.ekkert.is/main.php
Þar geymdi ég alveg heilan helling af myndum.
3gb myndapláss frítt. Held að nánast engin önnur siða bjóði upp á slíkt magn af plássi fyrir myndir.

Author:  Svessi [ Mon 18. Feb 2008 09:45 ]
Post subject: 

Fyrirgefið, en er ég að skilja þetta rétt að sem meðlimur í kraftinum hafi ég aðgang að einhverju myndasvæði???

Ef svo er, hvernig kemst ég inn á það?

Author:  Aron Andrew [ Mon 18. Feb 2008 09:49 ]
Post subject: 

Svessi wrote:
Fyrirgefið, en er ég að skilja þetta rétt að sem meðlimur í kraftinum hafi ég aðgang að einhverju myndasvæði???

Ef svo er, hvernig kemst ég inn á það?


Ferð inn á myndasafn.bmwkraftur.is og gerir register :wink:

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/