bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Smárahverfi, Lindarhverfi og Dalvegurinn háhýsabyggð? https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=27493 |
Page 1 of 2 |
Author: | ValliFudd [ Thu 14. Feb 2008 11:39 ] |
Post subject: | Smárahverfi, Lindarhverfi og Dalvegurinn háhýsabyggð? |
Þetta rakst ég á, einhver krotaði þetta á bloggið sitt eftir að Gunnar Birgis virtist ekki vera að spá mikið í neinum háhýsum á þessu svæði, einhver hafi bara nefnt það einhverntíman ![]() ![]() Fréttin: Quote: Innlent | Morgunblaðið | 14.2.2008 | 05:30 Smáratorg rifið og háhýsi byggt í staðinn? Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins eru uppi hugmyndir um að rífa verslunarkjarnann við Smáratorg í Kópavogi og reisa háhýsi í hans stað. Ekki er talið líklegt að þetta verði gert í nánustu framtíð. Verslunarkjarninn við Smáratorg hefur verið starfræktur í áratug. Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi segir, spurður um þetta, að manna á millum hafi verið rætt að rífa torgið og byggja háhýsi í nágrenni turnsins sem nýlega er risinn við Smáratorgið. Ekki hafi þó komið fram tillaga frá eiganda um þetta og málið því ekki til meðferðar hjá bæjaryfirvöldum. Og hér er póstur sem á að hafa verið sendur milli manna Samfylkingarinnar.. Quote: Eftirfarandi póstur er af póstlista Samfylkingarinnar í Kópavogi:
„Á fundinum var rætt um skipulagsmál á Glaðheimasvæðinu og raunar í öllum Kópavogsdalnum. Hugmyndir meirihlutans um uppbyggingu þar til viðbótar við það sem þegar er komið eru tröllvaxnar svo ekki sé meira sagt. Meirihlutinn virðist hafa mótað stefnu um háreysta byggð á þessu svæði og sem dæmi má nefna að gert er ráð fyrir allt að 9 turnum eins og þeim sem þegar er risinn við Smáratorg. Sumir þeirra verða jafnvel tvöfalt hærri en sá turn. Byggingamagn mun verða gríðarlegt á Glaðheimasvæðinu og sunnan við Smáralindina og nú er einnig að fara af stað skipulag við Dalveg, frá Málningu og upp úr. Þar er gert ráð fyrir 60 þús fermetrum til viðbótar við Brimborgarhúsið. Já, eins og ein Smáralind. Þetta hefur mikil áhrif á umferð og verður Dalvegur fjórfaldur og Reykjanesbrautin 12 akreinar! Þarna verður mesta umferð á Íslandi. Umferðarhávaði og mengun af völdum bílaumferðar mun stóraukast og þetta allt hefur veruleg áhrif á lífsgæði þúsunda Kópavogsbúa sem búa í Lindum, Smára og suðurhlíðum Kópavogs. Í umræðunum á fundinum lagði bæjarstjóri áherslu á að mikið lægi á að hrinda þessum hugmyndum í framkvæmd. Þau hús sem ekki yrðu byggð þarna risu í öðrum sveitarfélögum! Mengun og hávaða frá umferð taldi hann auðvelt að leysa með því að banna nagladekk, söndun og draga úr umferðarhraða. Á mánudagsfundi Samfylkingarinnar í gærkvöldi voru þessi mál til umræðu og mætti fjölmenni á fundinn og ljóst að bæjarbúar munu ekki taka þessu brjálæðislegu hugmyndum þegjandi og hljóðalaust. Málið er nú að fara fyrir samvinnunefnd um skipulag höfuðborgarsvæðisins og þar mun fulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi mæla gegn þeim. Þess má geta að bæjarstjóri sagði að ef fulltrúi Samfylkingarinnar í samvinnunefndinni greiddi atkvæði gegn tillögu meirihlutans hér í Kópavogi þá væri það ekkert annað en hryðjuverk gegn Kópavogi. Þannig er nú veruleiki hans.“ |
Author: | Jónas [ Thu 14. Feb 2008 15:04 ] |
Post subject: | |
Vonandi fer þetta í gegn. Háhýsi ftw. |
Author: | Thrullerinn [ Thu 14. Feb 2008 15:11 ] |
Post subject: | |
Bjó í Kóp frá 0-18ára... flutti í Reykjavík, ekkert að fara þaðan. Stemmingin að aka upp í Lindir og Sali er bara ömurleg.. svæðið í kringum Smáralindina er ein djúp skita. |
Author: | íbbi_ [ Thu 14. Feb 2008 15:15 ] |
Post subject: | |
ég er að flytja í kópavoginn í næstu viku.. sem flest háhýsi |
Author: | bimmer [ Thu 14. Feb 2008 15:35 ] |
Post subject: | |
Thrullerinn wrote: Bjó í Kóp frá 0-18ára... flutti í Reykjavík, ekkert að fara þaðan.
Stemmingin að aka upp í Lindir og Sali er bara ömurleg.. svæðið í kringum Smáralindina er ein djúp skita. Merkilegt þá hvað fólk sækist í að búa þarna ![]() |
Author: | arnibjorn [ Thu 14. Feb 2008 15:37 ] |
Post subject: | |
Ég bý/bjó í smárahverfinu og mér fannst það bara alveg mega fínt ![]() |
Author: | Aron Andrew [ Thu 14. Feb 2008 15:41 ] |
Post subject: | |
Þetta á eftir að verða virkilega flott þegar að allar þessar vegaframkvæmdir verða búnar, en eins og er þá er þetta vonlaust á álagstímum í umferðinni, maður er stundum fastur þarna í fáranlega langann tíma! |
Author: | demi [ Thu 14. Feb 2008 15:42 ] |
Post subject: | |
Ég bý í digraneshverfinu semsagt rétt hjá HK húsinu og þar og það er mjög fínt |
Author: | Axel Jóhann [ Thu 14. Feb 2008 15:43 ] |
Post subject: | |
Hættiði þessu röfli og komið til eyja. ![]() ![]() |
Author: | bimmer [ Thu 14. Feb 2008 16:20 ] |
Post subject: | |
Axel Jóhann wrote: Hættiði þessu röfli og komið til eyja.
![]() ![]() Eina ástæðan til að fara til eyja ![]() |
Author: | xtract- [ Thu 14. Feb 2008 17:05 ] |
Post subject: | |
fínt að búa í lindarhverfinu er ekki nema 10-15mín uppí borgó ef allt gengur vel ![]() |
Author: | Jón Ragnar [ Thu 14. Feb 2008 17:47 ] |
Post subject: | |
Finnst þetta hljóma eitthvað svo svakalega kjánalega og ótrúlegt e-ð ![]() |
Author: | Turbo- [ Thu 14. Feb 2008 17:57 ] |
Post subject: | |
ég styð þetta ekki alveg er nú næg umferðin hérna upp brekkuna heima hjá mér og það er verið að spá í að byggja háhýsi uppi á hæðinni það eru fullt af krökkum hérna í hverfinu og ef það bætast við þessir 1000bílar sem áttu að koma þá breytist þetta hverfi í umferðarteppu allan daginn og tala nú ekki um þegar nokkuð margir fara að þrusa upp þessa brekku, þetta er 30 gata útaf skólakrökkum og öðrum kökkum en fólk neglir hérna upp á 70-80km/h |
Author: | Gunni [ Thu 14. Feb 2008 17:58 ] |
Post subject: | |
bimmer wrote: Thrullerinn wrote: Bjó í Kóp frá 0-18ára... flutti í Reykjavík, ekkert að fara þaðan. Stemmingin að aka upp í Lindir og Sali er bara ömurleg.. svæðið í kringum Smáralindina er ein djúp skita. Merkilegt þá hvað fólk sækist í að búa þarna ![]() Ég bý í Lindum og vinn í Turninum og ég er bara mega sáttur! ![]() Ég skil ekkert í fólki sem er að setja útá þetta hverfi ![]() |
Author: | IceDev [ Thu 14. Feb 2008 19:49 ] |
Post subject: | |
Axel Jóhann wrote: Hættiði þessu röfli og komið til eyja.
![]() ![]() Það sem ég myndi gera frekar en að fara til eyja væri að bæta D fyrir framan hana |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |