bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Fjallgöngugarpar athugið.. https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=27325 |
Page 1 of 1 |
Author: | ValliFudd [ Wed 06. Feb 2008 19:29 ] |
Post subject: | Fjallgöngugarpar athugið.. |
http://www.66north.is/toppadu-med-66-n Ég er að spá í að skella mér, vildi bara láta fólk vita af þessu ef einhver hefur áhuga, heldur seint ég veit en samt ![]() Quote: Toppaðu með 66°Norður
Hvannadalshnjúkur66°Norður og Íslenskir Fjallaleiðsögumenn bjóða upp á heildstæða og raunhæfa æfingaáætlun sem ætti að gera flestum kleift að standa á hæsta tindi Íslands, Hvannadalshnúki. Dagskrá áætlunarinnar byggist ekki eingöngu á göngum heldur er líka í boði fræðsla um hina ýmsu þætti sem hafa verður í huga þegar tekist er á við fjöll og firnindi. Íslenskir Fjallaleiðsögumenn hafa í áranna rás verið leiðandi í því að bjóða upp á ferðir á Hvannadalshnúk og önnur fjöll landsins og búa yfir áralangri reynslu og þekkingu á því hvernig best sé að ná takmarkinu – toppnum – hverju sinni. 66°Norður hafa verið leiðandi fyrirtæki í þróun og framleiðslu alvöru útivistarfatnaðar sem nauðsynlegur er hverjum þeim sem hyggur á fjallgöngur og útivist. Þáttakendur fá þáttökukort sem gefur 25% afslátt af útivistafatnaði í verslunum 66°Noður á meðan æfingaáætlunin stendur yfir (eingöngu vörur framleiddar af 66° Norður). Að neðan má kynna sér dagskrána sem er sérstaklega hugsuð með það fyrir augum að sem flestir hafi tök á því að vera með. Verð á heildarpakkanum er 29.900 krónur. Fyrir þá sem langar að vera með en telja sig ekki þurfa á þéttu æfingaprógrammi að halda er upplagt að skella sér á fjöllin sem hægt er að kaupa hvert fyrir sig. Verð fyrir hvert fjall er 4.900 kr nema fyrir Hvannadalshnúk sem kostar 12.500 kr. Til þess að fá Hnúkinn á þessi verði þarf að hafa farið amk á tvö af hinum fjöllunum. Kíktu á kynningarfundinn 6. febrúar kl. 20:00 í húsakynnum 66°Norður í Faxafeni 12. Dagsetning Viðburður 6. febrúar Kynningarfyrirlestur, dagskráin, þjálfun. Ferðakynning 9. febrúar Esja (upp að steini) 13. febrúar Miðvikudagsþjálfun með 66°Norður innanbæjar 20. febrúar Miðvikudagsþjálfun með 66°Norður innanbæjar 27. febrúar Fræðsla, fatnaður og næring Ferðakynning 1. mars Skarðsheiði 5. mars Miðvikudagsþjálfun með 66°Norður Esjan 12. mars Miðvikudagsþjálfun með 66°Norður innanbæjar 26. mars Miðvikudagsþjálfun með 66°Norður innanbæjar 29. mars Hekla 2. apríl Miðvikudagsþjálfun með 66°Norður Vífilsfell 9. apríl Fræðsla, jöklaferðir, búnaður og tækni. Ferðakynning 12. apríl Eyjafjallajökull 16. apríl Miðvikudagsþjálfun með 66°Norður Esjan 23. apríl Miðvikudagsþjálfun með 66°Norður Esjan 30. apríl Miðvikudagsþjálfun með 66°Norður Esjan 3. maí Snæfellsjökull 7. maí Miðvikudagsþjálfun með 66°Norður Móskarðshnúkar 14. maí Miðvikudagsþjálfun með 66°Norður Esjan 21. maí Miðvikudagsþjálfun með 66°Norður Hengill 28. maí Miðvikudagsþjálfun með 66°Norður Esjan 31. maí Hvannadalshnúkur fyrri hópur 4. júní Miðvikudagsþjálfun með 66°Norður Esjan 7. júní Hvannadalshnúkur seinni hópur |
Author: | ValliFudd [ Wed 06. Feb 2008 21:12 ] |
Post subject: | |
ok, stuttur fyrirvari ![]() En DEM, það var ekkert smááá mikið af fólki ![]() ![]() |
Author: | Þórir [ Wed 06. Feb 2008 21:28 ] |
Post subject: | |
Been there done that. Gott framtak, það er gaman að hafa klárað þenna tind. Fullt skemmtilegt að gerast í fjallamennsku um þessar mundir. Kv. Þórir |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |