bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Að kaupa bíl út í Germaníu
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=27171
Page 1 of 1

Author:  Chrome [ Thu 31. Jan 2008 19:22 ]
Post subject:  Að kaupa bíl út í Germaníu

Góðan dag, þetta er nátturulega að verða þreytt topic en...
ég er að fara til DK í byrjun sumars og verð líklegast í bústað rétt við landamæri þýskalands, pælingin var að kaupa bíl þarna úti og vera á honum þar í 2-3 vikur og taka svo norrænu til baka, kann einhver hér á það hvernig þetta virkar? þarf ég að fá tollnúmer eða get ég verið á erlendu númerunum? :)

Author:  gunnar [ Thu 31. Jan 2008 19:23 ]
Post subject: 

Byrjaðu á því að leita hér á spjallinu að "innflutningur" og öðrum svipuðum leitarskilyrðum og lestu, lestu svo örlítið meira. Og svo meira og þangað til þú skilur þetta orðið eiginlega alveg... spurðu svo að því sem þú skilur ekki.

Virkar best þannig ;)

Author:  Chrome [ Thu 31. Jan 2008 19:25 ]
Post subject: 

I'm lazy :lol:

Author:  birkire [ Thu 31. Jan 2008 19:31 ]
Post subject: 

Væri ekki sniðugt ef einhver myndi taka saman allar þessar upplýsingar og búa til einskonar "Innflutnings FAQ og info" ?
Títt að fólk sé að spurja um eitthvað þessu tengt.

Author:  Benzari [ Thu 31. Jan 2008 19:32 ]
Post subject: 

Nóg til af bílum hérna heima, grasið er ekki alltaf græ... . . . . .. . .

Author:  Chrome [ Thu 31. Jan 2008 19:40 ]
Post subject: 

jú ég veit að það er alveg nóg til hérna en mér langar bara að prufa þetta :) annars er ég aðalega að velta fyrir mér hvernig það er með bílinn þarna úti hvort ég geti keypt hann á þýskum númerum og keyrt á honum þarna í Evrópu eða hvort ég yrði að taka tollnúmer á hann... :)

Author:  Benzari [ Thu 31. Jan 2008 19:44 ]
Post subject: 

Voru ekki flestir á DE-nr. í þessari bílaröð sem Concept gaurarnir "keyrðu" hingað með Norrænu !?!

Author:  jon mar [ Thu 31. Jan 2008 19:49 ]
Post subject: 

þeir voru að ég held á þýskum tollaplötum, eins og allir bílar sem eru fluttir út frá DE að ég held.

Author:  bimmer [ Thu 31. Jan 2008 19:51 ]
Post subject: 

Spyrjið herra Alpina... hann er með doktorspróf í þýskum númeraplötufræðum.

Author:  gunnar [ Thu 31. Jan 2008 20:19 ]
Post subject: 

Chrome wrote:
I'm lazy :lol:


Það er nú bara þannig oftast að ef menn eru of latir að leita þá býr engin alvara á bakvið spurninguna.. Mitt álit hvort sem þú vilt heyra það eða ekki.

Ef maður er í alvarlegum pælingum að vílar maður ekki fyrir sér að leita að upplýsingum.

Author:  JOGA [ Thu 31. Jan 2008 20:26 ]
Post subject: 

Ég hef keypt bíl tvisvar í Bæverjalandi og bæði skiptin keyrt hann í skip.
Þetta virkar þannig (í mjög grófum dráttum):

1. Finnur bíl sem þú ætlar að kaupa
2. Ferð á skráningarstofuna úti með eigandanum og færir bílinn á þitt nafn. Þeir klippa á skráningarskírteinið og skrá bílinn "úr landi".
3. Ferð og kaupir tryggingu. Ég keypti hjá þýska FÍB þ.e. ADAC. Þú getur fengið tryggingu í nokkrar vikur og jafnvel lengur minnir mig.
4. Ferð í "verslun" sem selur númeraplötur, oft nálægt skráningarstofunni og færð bráðabirgðanúmer á bílinnþ Þarna er oft hægt að kaupa tryggingar líka.
5. Keyrir bílinn í flestum Evrópulöndum þar til tryggingin rennur út.

(Það er orðið svolítið síðan ég gerði þetta seinast svo ég gæti verið að ruglast á röðinni aðeins en þetta er það sem þarf að gera í grófum dráttum).

Svo mannstu bara að panta flutning heim og halda vel utan um öll skjöl sem þú færð í hendurnar til að flytja fyrir skráningu hér heima.

Author:  saemi [ Thu 31. Jan 2008 21:09 ]
Post subject: 

Chrome wrote:
jú ég veit að það er alveg nóg til hérna en mér langar bara að prufa þetta :) annars er ég aðalega að velta fyrir mér hvernig það er með bílinn þarna úti hvort ég geti keypt hann á þýskum númerum og keyrt á honum þarna í Evrópu eða hvort ég yrði að taka tollnúmer á hann... :)


Tímabundin númer í Þýskalandi, kurzzeitkennzeichen gilda bara innan Þýskalands. Ef þú ætlar að kaupa númer með tryggingum til að nota í öðrum löndum verður þú að kaupa tollanúmer og þá afskráist bíllinn úr landi við það.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/