bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Nýr Meirihluti í Borgarstjórn
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=26950
Page 1 of 5

Author:  Gunnar Hnefill [ Mon 21. Jan 2008 20:56 ]
Post subject:  Nýr Meirihluti í Borgarstjórn

Jæja hvernig legst nýr meirhluti borgarstjórnar í ykkur ?

Persónulega er ég mjögsáttur, og líst vel á stefnu nýja meirihlutans auk þess er ég hæst ánægður með það að Sjálfstæðisflokkurinn sé að ganga aftur í meirhluta
þar sem að ég er mikill sjálfstæðismaður enda er ég Formaður ungra Sjálfstæðismanna í Þingeyjarsýslum

En endilega látið í ljós skoðanir ykkar á þessu máli

Author:  saemi [ Mon 21. Jan 2008 21:53 ]
Post subject: 

Þetta er frábært.

Ég gæti ekki verið ánægðari með þróun mála!

Author:  Viggóhelgi [ Mon 21. Jan 2008 22:05 ]
Post subject: 

Mjög ánægður "þessi stjórn er komin til að vera" haha, þetta er eitthvað bara að virka fyrir mig! :)

Author:  Alpina [ Mon 21. Jan 2008 22:06 ]
Post subject: 

Lýðskrum,,,

þetta er til háborinnar skammar,,
stjórnmálamenn eru reiðubúnir að gera flest til að vera við völd

Author:  Jónas [ Mon 21. Jan 2008 22:06 ]
Post subject: 

Mér lýst vel á þetta..

En mér finnst mjög sorglegt hversu mikið er hraunað yfir Ólaf, eins og aumingja maðurinn er að biðja fólk um að hafa umræðuna málefnalega, og ég get ekki séð hvernig fréttamenn voru að gera það á fundinum :roll:

Maðurinn er mannlegur.

Author:  Steini B [ Mon 21. Jan 2008 22:15 ]
Post subject: 

Ég segi að þessi verði max 2 mánuði....

Annars fannst mér meira vit í því sem hafragrauturinn minn hafði að segja heldur en þetta skrítna fólk....



:lol:

Author:  srr [ Mon 21. Jan 2008 23:00 ]
Post subject: 

Til hamingju Reykvíkingar...

Núna hafi þið fleiri manns til að greiða borgarstjórabiðlaun :lol:

Author:  KFC [ Tue 22. Jan 2008 00:47 ]
Post subject: 

Það er gott að búa í kópavogi........ :lol:

Author:  Aron Andrew [ Tue 22. Jan 2008 00:50 ]
Post subject: 

KFC wrote:
Það er gott að búa í kópavogi........ :lol:


Nákvæmlega 8)

Author:  ValliFudd [ Tue 22. Jan 2008 08:24 ]
Post subject: 

Aron Andrew wrote:
KFC wrote:
Það er gott að búa í kópavogi........ :lol:


Nákvæmlega 8)

Okkar menn hanga bara á Goldfinger og chilla :lol:

Author:  ValliFudd [ Tue 22. Jan 2008 08:32 ]
Post subject: 

Eins gott að Ólafur taki sér ekki veikindadag á næstunni :lol:

Quote:
Mikilvægt að Ólafur F sé við fulla heilsu

Margrét Sverrisdóttir sagði í viðtali í sjónvarpsfréttum að hún myndi slíta meirihlutanum ef Ólafur F. forfallaðist.
Margrét verður að hugsa málið aðeins lengra, ef svo óheppilega vildi til að Ólafur forfallaðist í stuttan tíma, þá getur hún ekki leyft sér að gera valdarán með gamla meirihlutanum eins og hún hefur hótað, hún veit sem er að Ólafur kemur alltaf aftur og ekki er hægt að fremja valdarán á tveggja vikna fresti. Fólk í pólitík eins og hún verður að sýna smá ábyrgð og átta sig á að maður stofnar ekki til meirihluta í hálfan mánuð.
Það er nú ekkert lítið sem þetta kostar Reykvíkinga.
Ég skora á Margréti að styðja þennan nýja meirihluta og fá áhrif til að koma sínum málum á framfæri.


http://blogg.visir.is/leikur/?vi=92#post-92

Author:  Jónas [ Tue 22. Jan 2008 12:24 ]
Post subject: 

Það er greinilegt að ef manni langar að upplifa það að vera ungur á ný og komast í sandkassaleik ætti maður að skella sér í stjórnmál.

Margrét Sverris :roll:

Author:  basten [ Tue 22. Jan 2008 12:59 ]
Post subject: 

Líka stórmerkilegt að Margrét Sverris ætli sér að slíta þessum meirihluta sem heftur á stefnuskrá sinni flest þau málefni sem Frjálslyndi flokkurinn lagði upp með í kosningabaráttunni.
Með því er hún í raun að svíkja það fólk sem greiddi Frjálslynda flokknum atkvæði í kosningunum og kom henni þar með í þá stöðu sem hún er í dag, varaborgarfulltrúi.
Fólk þarf að vera verulega siðblint og sjálfhverft ef það er tilbúið að sitja áfram á þeim forsendum.

Ekki langt síðan hún kvartaði undan Gunnari Örlygssyni, þingmanni Frjálslyndra, þegar hann skipti um flokk á sl. kjörtímabili og sagði að hann ætti að sjá sóma sinn í að víkja sæti. Fór meira að segja með það til umboðsmann Alþingis.
Greinilega auðvelt að vera með sterka siðgæðiskennd þegar aðrir eiga í hlut.

Það þarf samt klárlega að setja það í lög að ef kjörnir menn hlaupast undan merkjum flokks þá eigi þeir að víkja af þingi/bæjarstjórn, því kjósendur eru að kjósa málefni en ekki menn persónulega. Allavega hugsa ég það þannig þegar ég kýs. Það er enginn maður stærri en flokkurinn sem hann er í.

Vona bara að það verði ekki meira hringl í borgarstjórn þar sem það lamar alla stjórnsýslu borgarinnar og millistjórnendur þurfa alltaf að byrja upp á nýtt og vita í raun ekki eftir hverju á að vinna og hversu lengi það stendur.

Í mínum augum er Margrét Sverrisdóttir ekki merkilegur pappír og er farin að líkjast föður sínum meir og meir sem var einn mesti eiginhagsmunaseggur seinni tíma.

Author:  fart [ Tue 22. Jan 2008 14:04 ]
Post subject: 

What goes around, comes around.

Author:  IvanAnders [ Tue 22. Jan 2008 17:46 ]
Post subject: 

Alpina wrote:
Lýðskrum,,,

þetta er til háborinnar skammar,,
stjórnmálamenn eru reiðubúnir að gera flest til að vera við völd


ALgjörlega sammála þér, maður hefur EKKI á tilfinningunni að þetta snúist um nein málefni borgarinnar yfir höfuð!

Algjörlega eiginhagsmunir þessara manna og kvenna sem að ráða för!

pólítík er farin að fara virkilega í mig, mönnum virðist vera nákvæmlega sama um málefni og loforð, bara halda með sínum flokki, sama hvað!
alltaf eins og þetta sé bara enn ein íþróttin!
búinn að vera að hlusta á sjálfstæðisstuðningsmenn nöldra í allan dag um það hvað þetta sé sæt hefnd á Björn Inga, finnst mönnum eðlilegt að borgarstjórn snúist um persónulegar hefndir???

Þetta fær mann til þess að missa álit á öllu þessu hyski, og maður ber nákvæmlega EKKERT traust til neinna!!!!

(ég er að tala um allt pakkið!, ekki bara sjálfstæðisflokkinn og frjálslynda)

Í næstu kosningum fer ég með tip-ex og kýs sjálfan mig!

Page 1 of 5 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/