bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Klikkaðir þessir Toyotaeigendur...
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=26915
Page 1 of 2

Author:  zazou [ Sun 20. Jan 2008 12:01 ]
Post subject:  Klikkaðir þessir Toyotaeigendur...

Quote:
Héraðsdómur Reykjaness hefur sýknað karlmann, sem ákærður var fyrir að ráðast á 12 ára gamlan dreng eftir að snjóbolti lenti á nýlegum og dýrum bíl mannsins.

Þetta gerðist í Sandgerði í nóvember 2006. Maðurinn sagðist í yfirheyrslu hafa verið að aka draumabifreið sinni af Lexus-gerð, sem hann hafi verið búinn að leggja mikið á sig til að eignast, þegar högg kom á bílinn. Hann hafi grunað stráka, sem þarna voru, um að hafa hent snjókögglum í bílinn. Hann sagðist hafa misst stjórn á sér, orðið snöggreiður og hlaupið á eftir einum strákanna í þeim tilgangi að fara með hann heim til foreldra hans og tilkynna þeim um þetta.

Drengurinn sagðist hafa reynt að flýja undan manninum en dottið í snjóinn og maðurinn hafi sest á hann og byrjað að kýla hann aftan á hausinn. Hann hafi sett höndina fyrir og höggin hafi lent á handarbakinu. Maðurinn hafi síðan gripið aftan í úlpu hans og byrjað að ganga með hann í átt að bílnum. Þegar þeir voru komnir hálfa leið að bílnum hafi maðurinn slegið hann í magann, líklega þrjú högg, ekki mjög föst.

Maðurinn sagðist hafa tekið í öxl drengsins og hugsanlega hafi komið högg við það en hann neitaði því að hafa slegið drenginn eða kýlt hann.

Drengurinn meiddist á öðru handarbakinu og segir í ákæru að hann hafi fengið áverkana þegar hann bar hönd fyrir höfuð sér. Dómurinn segir sannað að maðurinn hafi elt drenginn uppi, tekið hann með valdi og dregið hann með sér í átt að bíl sínum. Ekki sé hins vegar fullsannað að maðurinn hafi slegið drenginn í höfuðið og ekki sé útilokað að drengurinn hafi meitt sig á hendinni við að falla í jörðina þegar hann reyndi að komast undan manninum.

http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/0 ... _i_bilinn/

Author:  Mazi! [ Sun 20. Jan 2008 12:03 ]
Post subject: 

aumingja strákurinn! :evil:

Author:  IvanAnders [ Sun 20. Jan 2008 13:31 ]
Post subject: 

fjórir 14 ára strákar köstuðu snjóboltum í bílinn hjá félaga mínum, og hann tók einn þeirra alveg hrikalega í snjóinn :lol: :lol: :lol:

Finnst það ógeðslega fyndið

Author:  jon mar [ Sun 20. Jan 2008 13:56 ]
Post subject: 

það veitir ekki afþví taka í þessa gutta. Virðist alveg dottið uppfyrir að rassskella börn þegar þau óhlíðnast, þetta þótti ekkert nema eðlilegt þegar ég var barn.

Nokkrir guttar hér í bæ voru að leika sér að kasta eggjum, og þeim þótti þvílíkt snjallræði að kasta eggjum í 7milljóna 2007 Ford Explorerinn hjá föður mínum. NB bíllinn var á ferð.

Nú situr hann uppi með 3-400þ kr tjón á bílnum vegna þess að skurnin fór í gegnum lakkið á nærri allri bílstjórahliðinni.

En svona dæmi er náttúrlega soldið extream. Ég man samt aldrei nokkurtíman eftir að hafa gert mér svona að leik sem krakki, enda betur upp alinn en svo.

Author:  Bjarkih [ Sun 20. Jan 2008 14:05 ]
Post subject: 

Svo má náttúrulega ekki gleyma því að þetta er stórhættulegt ef bíllinn er á ferð. Ef manni bregður nógu harkalega þá getur þetta alveg valdið árekstri.

Author:  srr [ Sun 20. Jan 2008 14:45 ]
Post subject: 

jon mar wrote:
Nú situr hann uppi með 3-400þ kr tjón á bílnum vegna þess að skurnin fór í gegnum lakkið á nærri allri bílstjórahliðinni.

Er þetta ekki fullt lélegt lakk ef þunn brothætt eggjaskurn getur "farið í gegnum lakkið" ? :shock:

Author:  jon mar [ Sun 20. Jan 2008 14:55 ]
Post subject: 

srr wrote:
jon mar wrote:
Nú situr hann uppi með 3-400þ kr tjón á bílnum vegna þess að skurnin fór í gegnum lakkið á nærri allri bílstjórahliðinni.

Er þetta ekki fullt lélegt lakk ef þunn brothætt eggjaskurn getur "farið í gegnum lakkið" ? :shock:

Nú veit ég ekki, ekki þótti þeim sem gerði tjónamatið á verkstæði.

En hvort sem er, þá þarf að aga þessa krakka aðeins sem standa í svona djöfuls vitleysu, ég veit að guttarnir hefðu ekki átt sjö dagana sæla ef þetta hefði verið minn bíll, gamli er bara orðinn of lúinn til að standa í svona vitleysu.

Author:  krullih [ Sun 20. Jan 2008 15:06 ]
Post subject: 

Ég hefði nú forðast það að lemja drenginn, þ.e ef saga stráksins sé rétt.

En auðvitað hefði maður kaffært honum duglega, dregið hann heim til sín á eyrnasneplunum og krafist bóta á tjóni og góðra skamma á drenginn.

Mikið verra fyrir krakkann að fara með hann heim eftir svona heldur en að kaffæra honum bara. Bæði betra :)

En þetta er hættulegt sport sem getur orðið dýrt, bæði í eignum og heilsu ef slys gerast.

Author:  maxel [ Sun 20. Jan 2008 15:11 ]
Post subject: 

bimma_frík wrote:
aumingja strákurinn! :evil:

Minnkaðu sig

Author:  Mazi! [ Sun 20. Jan 2008 17:33 ]
Post subject: 

maxel wrote:
bimma_frík wrote:
aumingja strákurinn! :evil:

Minnkaðu sig

Komið :wink:

_________________________

ég yrði nú alveg brjálaður ef einhver myndi kasta snjóbolta í bílinn minn, mindi samt ekki lemja krakkann í spað fyrir það en eflaust stoppa og reyna ná honum, pínan kanski eitthvað :lol:

Author:  Thrullerinn [ Sun 20. Jan 2008 18:44 ]
Post subject: 

jon mar wrote:
srr wrote:
jon mar wrote:
Nú situr hann uppi með 3-400þ kr tjón á bílnum vegna þess að skurnin fór í gegnum lakkið á nærri allri bílstjórahliðinni.

Er þetta ekki fullt lélegt lakk ef þunn brothætt eggjaskurn getur "farið í gegnum lakkið" ? :shock:

Nú veit ég ekki, ekki þótti þeim sem gerði tjónamatið á verkstæði.

En hvort sem er, þá þarf að aga þessa krakka aðeins sem standa í svona djöfuls vitleysu, ég veit að guttarnir hefðu ekki átt sjö dagana sæla ef þetta hefði verið minn bíll, gamli er bara orðinn of lúinn til að standa í svona vitleysu.

Ég fékk egg einu sinni á Z4, það þurfti að sprauta eftir það..
Lakk á nýlegum bílum er einfaldlega drasl.

En vá hvað það var gaman að henda snjóboltum í bíla á yngri árum :twisted: :twisted: :twisted:

Author:  Mánisnær [ Sun 20. Jan 2008 19:10 ]
Post subject: 

Thrullerinn wrote:

Hehe það er geggjað, og að stoppa strætó og hlaupa 10 strákar framhjá og drivebya aumingja bílstjórann í klessu þegar hann opnar hurðina til þess að hleypa þér inn.

En egg í bíl hef ég aldrei gert og fynnst mér full langt gengið, vissi ekki að krakkar stunduðu það

Author:  Kwóti [ Sun 20. Jan 2008 19:38 ]
Post subject: 

Máni wrote:

en þér finnst egg of langt gengið?

Author:  Mánisnær [ Sun 20. Jan 2008 20:02 ]
Post subject: 

Kwóti wrote:

Núna, en gerði það ekki fyrir 4-5 árum

Author:  Misdo [ Mon 21. Jan 2008 13:06 ]
Post subject: 

ekki eins og maður gerði þetta ekki sjálfur þegar maður var yngri maður beið stundum á stoppustöð eftir strætó og þegar bílstjórinn opnaði hurðina köstuðum við inn :lol:

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/