bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Akstursskóli á Nurburgring https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=26860 |
Page 1 of 1 |
Author: | ValliFudd [ Thu 17. Jan 2008 16:53 ] |
Post subject: | Akstursskóli á Nurburgring |
Buddy á kvartmila.is wrote: Komið þið sæl,
Ef mönnum langar að læra keyra hratt þá er þetta málið! Það er fyrirhuguð ferð í júlí í sumar á námskeið á formúla bílum á Núrburgring. Áhugasamir hafið samband við http://www.isafoldtravel.is Kv. Buddy PS. Aðeins 18 heppnar sálir komast í þennan hóp sem um ræðir. hmmm...... bara vildi skjóta þessu hingað.. ![]() EDIT: http://www.isafoldtravel.is/istourpage2.asp?ID=258 |
Author: | Húni [ Thu 17. Jan 2008 19:28 ] |
Post subject: | |
fæ maður þá bara að keyra í 1 dag ? ég væri til í að keyra alla og sleppa öllu hinu |
Author: | bimmer [ Fri 18. Jan 2008 15:50 ] |
Post subject: | |
Spurðist fyrir um þetta. Ferðin er á 200.000 og svo námskeiðið 200.000 í viðbót. Námskeiðið er "Formula intensive course" í þessum link. http://www.zakspeed.de/the-motorsport-c ... php?id=375 |
Author: | Húni [ Fri 18. Jan 2008 17:49 ] |
Post subject: | |
bimmer wrote: Spurðist fyrir um þetta. Ferðin er á 200.000 og svo námskeiðið 200.000 í viðbót.
Námskeiðið er "Formula intensive course" í þessum link. http://www.zakspeed.de/the-motorsport-c ... php?id=375 jæjja bara gefins |
Author: | Alpina [ Fri 18. Jan 2008 18:02 ] |
Post subject: | |
bimmer wrote: Spurðist fyrir um þetta. Ferðin er á 200.000 og svo námskeiðið 200.000 í viðbót.
Námskeiðið er "Formula intensive course" í þessum link. http://www.zakspeed.de/the-motorsport-c ... php?id=375 Wwwwwwwáááá.. er þetta dýrt eða hvað.. Snýti þeim á SNORRA------------- ![]() |
Author: | bimmer [ Fri 18. Jan 2008 18:05 ] |
Post subject: | |
Það er reyndar eitthvað stuff innifalið í ferðinni - koma víst detail upplýsingar á http://www.isafoldtravel.is innan fárra daga. |
Author: | bimmer [ Sun 20. Jan 2008 15:35 ] |
Post subject: | |
Komið info: http://www.isafoldtravel.is/istourpage2.asp?ID=276 Mótorsportveisla 10. – 21. Júlí, Nürburgring, Suður-Þýskaland og Hockenheim. Fi. 10. júlí: Flogið með Flugleiðum til Frankfurt og ekið til hotel Eifelstern við Bitburg með hefðbundinni vínsmökkun í Móseldal í leiðinni. Gist á Eifelstern í þrjár nætur (http://www.eifelstern.com/). Fö. 11. júlí: Bitburg skoðuð, og bjórverksmiðjurnar einnig. Farið út á braut um hádegisbilið og dvalið þar það sem eftir lifir dags. Tímanlega til baka á hótelið. Lau. 12. júlí: Allur dagurinn á brautinni og fram á kvöld. Su. 13. júlí: Pakkað saman og farið snemma út á braut og fylgst með keppninni. Ekið niður í Rínardal eftir að úrslit liggja fyrir, farið í Rínarsiglingu í kvöldhúminu til að ná sér niður eftir keppnina og endað á hóteli í bænum Boppard eða Bacharach rétt við ána, eða jafnvel í kastalahótelinu Schönburg ofan við Rín (http://www.burghotel-schoenburg.de/) og gist eina nótt þar. Má. 14. júlí: Ekið til Frankfurt um morguninn og skipt um áhöfn. Þeir sem ekki geta verið með allan tímann, hreinir trukkarar, taka vélina heim og hreinir múlu-menn koma um borð. Ekið til Stuttgart með viðkomu í tæknisafninu í Sinsheim eða Speyer. Gist í tvær nætur í Stuttgart. Þri. 15. júlí: Mercedes-Benz safnið í Mercedesstrasse 100 í Stuttgart skoðað, og borgin að auki (http://www.mercedes-benz.com/). Sama gisting. Mi. 16. júlí: Farið í heimsókn í Porsche-verksmiðjurnar í Zuffenhausen í úthverfi Stuttgart. Ekið í eftirmiðdaginn til Allgäu í Suður–Þýskalandi, gist í tvær nætur í námunda við Kempten. Fi. 17. Júlí: Audi-tjúnararnir “Abt” í Kempten heimsóttir fyrir hádegi (http://www.abt-sportsline.de/) og BMW-Alpina í Buchlohe í eftirmiðdag (http://www.alpina-automobiles.com/) . Til baka á sama hótel. Fö. 18. júlí: Lagt upp snemma og ekið til Hockenheim. Komið á brautina um hádegisbilið. Fylgst með æfingum og sérkeppnum. Gist í Heidelberg, einni fallegustu borg Þýskalands, í þrjár nætur. Lau. 19. júlí: Verið á brautinni allan daginn og fram á kvöld. Su. 20 júlí: Stund sannleikans: Hver vinnur F1 á Hockenheim 2008? Það er nóg af góðum vínum úr hlíðum Odenwald til að gleðja sig við eða drekkja sorgum á skemmtilegum knæpum í Heidelberg á eftir, þetta síðasta kvöld ferðarinnar. Má. 21. Júlí: Ekið til Frankfurt, flogið heim. Mögulegur viðbótarpakki, sérsniðið Zakspeed-námskeið á Nürburgring (“Formula Intensive Training”): Má. 14. júlí: Ekið til Frankfurt um morguninn og þeir sem koma frá Íslandi til að fara beint á námskeiðið aka ásamt hinum í hópnum með sér rútu til baka á Nürburgring og byrja fræðilega hluta nnámskeiðsins í eftirmiðdag. Kvöldverður á veitingahúsinu “Pistenklause” í Nürburg og gist á Dorint-keppnishótelinu við Nürburgring-brautina. Þri. 15. júlí: Allur dagurinn við æfingar á brautinni. Eftir að námskeiðinu lýkur með viðurkenningarskjali fer hópuninn undir kvöldið með rútu til Stuttgart, innritar sig á hótelið og hittir fyrir hinn hluta hópsins. Sjá nánar á http://www.zakspeed.de/the-motorsport-c ... php?id=375. Áætluð verð (með fyrirvara um gengisþróun og hópastærðir): Flug, gistingar (að hluta til með kvöldverði), rúta og fararstjórn, aðgöngu- og brautarmiðar innifalið: Mótorsportveisla í Þýskalandi: ISK 200.000 – 220.000,- á mann í tvíbýli. - Þar af einungis trukkakeppnin: ISK 110.000 - 115.000,-. Aukakostnaður í einbýli: ISK 10.000,- - Þar af einungis heimsóknir og F1 (seinni hlutinn): ISK 150.000 – 170.000,- - Akstursnámskeið hjá Zakspeed á Nürburgring að auki: ISK 160.000 – 180.000,- með rútuferðum, gistingu og fullu fæði, miðað við 18 manns (hámarksfjöldi). |
Author: | Jón Ragnar [ Sun 20. Jan 2008 15:47 ] |
Post subject: | |
Þetta er frekar dýrt ![]() |
Author: | bimmer [ Sun 20. Jan 2008 17:10 ] |
Post subject: | |
Jón Ragnar wrote: Þetta er frekar dýrt
![]() Já en það verður að taka með að miðar á keppnirnar eru inni í verðinu. |
Author: | Jón Ragnar [ Sun 20. Jan 2008 19:21 ] |
Post subject: | |
bimmer wrote: Jón Ragnar wrote: Þetta er frekar dýrt ![]() Já en það verður að taka með að miðar á keppnirnar eru inni í verðinu. Satt satt ![]() |
Author: | Arnarf [ Sun 20. Jan 2008 21:32 ] |
Post subject: | |
bimmer wrote: Jón Ragnar wrote: Þetta er frekar dýrt ![]() Já en það verður að taka með að miðar á keppnirnar eru inni í verðinu. Hvað kosta slíkir miðar? |
Author: | bimmer [ Sun 20. Jan 2008 22:50 ] |
Post subject: | |
Arnarf wrote: bimmer wrote: Jón Ragnar wrote: Þetta er frekar dýrt ![]() Já en það verður að taka með að miðar á keppnirnar eru inni í verðinu. Hvað kosta slíkir miðar? Tugi þúsunda - amk. á F1. |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |