bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Mönnunum var sleppt eftir ítarlegar yfirheyrslur...
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=26836
Page 1 of 1

Author:  fart [ Wed 16. Jan 2008 09:38 ]
Post subject:  Mönnunum var sleppt eftir ítarlegar yfirheyrslur...

Fer að fara dálítið í taugarnar á manni!!! Ok þetta er kanski eins og eitthvað moggablogg eða barnaland en COME ON!


Quote:
Vísir, 16. jan. 2008 07:24

Vopnaðir dólgar gengu berserksgang í Breiðholti
Tveir karlmenn í annarlegu ástandi vegna neyslu fíkniefna, og vopnaðir öxum, gengu berserksgang í tveimur stigagöngum fjölbýlishúsa í Bakkahverfi í Breiðholti undir kvöld í fyrrakvöld, og skelfdu þar íbúana.

Þeir ruddust meðal annars inn í íbúð við Blöndubakka, þar sem kona og þrjú ungabörn voru heima, og létu þeir þar dólgslega. Lögrgla sendi fjölmennt lið á mörgum bílum á vettvang þar sem mennirnir voru vopnaðir. Þeir höfðu hinsvegar falið axirnar í trjágróðri þegar þeir voru umkringdir og handteknir í Arnarbakka.

Mönnunum var sleppt eftir ítarlegar yfirheyrslur, en mál þeirra verður rannsakað nánar

Author:  gunnar [ Wed 16. Jan 2008 09:41 ]
Post subject: 

Ísland - Besta krimmabæli í heimi....

Author:  Stanky [ Wed 16. Jan 2008 11:39 ]
Post subject: 

Þetta voru potttþétt útlendingar.







:)

Author:  ValliFudd [ Wed 16. Jan 2008 12:36 ]
Post subject: 

Quote:
Sara Rós var ein heima með börnin sín þrjú, tveggja ára dreng og tveggja mánaða tvíbura, þegar mennirnir réðust inn vopnaðir öxum. „Þeir sögðu bara hvar er fokking Addi eða eitthvað sko. Ég veit ekki hvernig ég má orða þetta," segir Sara. Hún telur að mennirnir hafi verið að leita að einhverjum tilteknum mönnum sem tengjast henni ekki. "Þeir voru mjög reiðir og alveg útúrdópaðir," segir hún.


Quote:
Þetta eru ekki einu skakkaföllin sem Sara Rós og Sverrir Björn, eiginmaður hennar, hafa lent í að undanförnu, því að bílnum þeirra var stolið þann 4. janúar, en fannst gerónýtur daginn eftir. Sara segir að þjófarnir séu ekki fundnir.


Stórhættulegt að búa í gettóinu :shock:

Author:  siggir [ Wed 16. Jan 2008 16:04 ]
Post subject: 

Vísir greinilega að endurskilgreina sannleikann með fréttaflutningi sínum. Það kom fram í hádegisfréttunum á Rúv að þeir hefðu verið svo útúr heiminum að þeir væru ennþá að sofa úr sér og það ætti að yfirheyra þá einhverntíma í dag :roll:

Author:  Alpina [ Wed 16. Jan 2008 18:19 ]
Post subject: 

Eftir ...MJÖG áræðanlegum heimildum ,, var Tommi camaro aka
TÓMAS MAVERIC ,, targetið :roll:

Author:  HPH [ Wed 16. Jan 2008 18:45 ]
Post subject: 

Alpina wrote:
Eftir ...MJÖG áræðanlegum heimildum ,, var Tommi camaro aka
TÓMAS MAVERIC ,, targetið :roll:

Það er ekki skrítið að íbúarnir vissu ekkert hver hann Tommi var því að krimmarnir vöru alltaf að biðja um Adda.

Author:  Vargur [ Wed 16. Jan 2008 20:18 ]
Post subject: 

Þó þessir menn hafi látið ófriðlega þá meiddu þeir þó engan og því engan vegin hægt annað en að sleppa þeim þangað til dómur gengur í málinu.
Það væri nær að tuða yfir því að mönnum sé sleppt strax eftir alvarlegar líkamsárasir og nauðganir.
Það þarf einhverjar lagabreytingar til að hægt sé koma ofbeldismönnum strax í varðhald.

Author:  ValliFudd [ Wed 16. Jan 2008 22:34 ]
Post subject: 

samkvæmt viðtali við stúlkuna í fréttum í kvöld varð mönnum brugðið þegar 2ja ára krakkinn hennar kom labbandi fram.. Þá hættu þeir að hóta barsmíðum.. Kannski smá reality check..

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/