bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Saklaus uns sekt er sönnuð? ekki á íslandi..
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=26815
Page 1 of 1

Author:  ValliFudd [ Tue 15. Jan 2008 12:42 ]
Post subject:  Saklaus uns sekt er sönnuð? ekki á íslandi..

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/01/15/tryggingafelag_tharf_ekki_ad_greida_kaskotryggingu/

Quote:
Samkvæmt lögregluskýrslu hafði greinilega verið ekið þvert yfir hringtorgið og einnig ekið á lofttúður, sem standa upp úr jörðinni á miðju torgsins. Á vettvangi fannst skráningarnúmer bíls ásamt braki og bíllinn fannst síðan á bílastæði við hús ekki langt frá.

Þar kom kona til dyra og kannaðist við bílinn og sagði að eiginmaður sinn hefði verið á honum. Konan sagðist ekki vita hvort eiginmaður sinn væri heima en nokkru síðar kom maðurinn til dyra áberandi ölvaður. Hann neitaði að hafa ekið bílnum um kvöldið og neitaði einnig að gefa upp hver hafi verið ökumaður.

Daginn eftir kom konan á lögreglustöðina og sagðist hafa ekið bílnum þessa nótt.

Tryggingafélagið taldi það vægast sagt ótrúverðugt að eiginkonan hefði komið á lögreglustöðina eftir hádegi daginn eftir og sagst sjálf hafa ekið bílnum. Við blasti að um væri að ræða samantekin ráð af hálfu hjónanna til þess að hafa vátryggingabætur af tryggingafélaginu á fölskum forsendum.




Þetta er jú augljóst EN, samkvæmt þessu er ekkert talað um hvort blóðsýni hafi verið tekið úr eiginmanni og vitnisburði konunnar bara hent útúm gluggann.. Því "Tryggingarfélag taldi það vægast sagt ótrúverðugt" og þá þurfa þeir ekki að borga :shock:

Author:  Geirinn [ Tue 15. Jan 2008 13:14 ]
Post subject: 

Já þetta er stórskrítið alveg hreint. En maður veit svosem ekki hvað er að baki, en ef þetta er allur rökstuðningurinn þá ætti nú ekki að vera mikið mál að stefna þeim.

Author:  saemi [ Tue 15. Jan 2008 14:47 ]
Post subject: 

Af hverju á maður að fá þetta bætt við þessar aðstæður????

Ef þetta hefði gerst án þess að eitthvað væri óhreint í pokahorninu, þá hefði viðkomandi ekki ekið af vettvangi heldur fengið lögregluna á staðinn. Gott mál, þá hefði átt að bæta þetta.

En nei, þess í stað var bifreiðinni ekið af vettvangi og heim til viðkomandi! Svo daginn EFTIR þá heldur konan því fram að hún hafi ekið, daginn áður sagði hún allt annað!

Hvað er málið, af hverju vill fólk að tryggingafélagið bæti svona lagað? Þetta er ekkert nema verið að reyna að hylma yfir, maðurinn má teljast sæll með að vera ekki nappaður fyrir akstur undir áhrifum.

Mér finnst bara kjaftæði að vera að tala um að þessi aðili sé saklaus og eigi skilið að fá þetta bætt.

Author:  Geirinn [ Tue 15. Jan 2008 14:51 ]
Post subject: 

saemi wrote:
Af hverju á maður að fá þetta bætt við þessar aðstæður????

Ef þetta hefði gerst án þess að eitthvað væri óhreint í pokahorninu, þá hefði viðkomandi ekki ekið af vettvangi heldur fengið lögregluna á staðinn. Gott mál, þá hefði átt að bæta þetta.

En nei, þess í stað var bifreiðinni ekið af vettvangi og heim til viðkomandi! Svo daginn EFTIR þá heldur konan því fram að hún hafi ekið, daginn áður sagði hún allt annað!

Hvað er málið, af hverju vill fólk að tryggingafélagið bæti svona lagað? Þetta er ekkert nema verið að reyna að hylma yfir, maðurinn má teljast sæll með að vera ekki nappaður fyrir akstur undir áhrifum.

Mér finnst bara kjaftæði að vera að tala um að þessi aðili sé saklaus og eigi skilið að fá þetta bætt.


Það þurfa bara allir að vanda sig þegar svona mál eru annarsvegar. Mér persónulega gæti ekki verið meira sama hvort þau fá þetta bætt eða ekki.

Mér finnst samt skrítni punkturinn í þessu undirgefni konunnar að segjast hafa keyrt bara til þess að karlinn haldi bílprófinu (hann/hún/þau þurfa hvort eð er að borga skemmdirnar).

Author:  ValliFudd [ Tue 15. Jan 2008 20:10 ]
Post subject: 

Málið sem ég er að reyna að benda á er ekki hvort hann er sekur eða ekki, auðvitað er hann sekur og á ekki að fá krónu bætta. Hins vegar virðist réttarkerfið stundum vera svona á íslandi. Ef löggan segir það þá gerðist það og sá sem löggan bendir á er dæmdur. Vitni? Sannanir? oft hundsað..
Ég veit um aðila sem hafa tapað máli með vitni sér til varnar og EKKERT á móti sér nema einn lögreglumann sem "hélt" að hann hefði séð bílnúmerið... Vitni voru hundsuð og þessi eini post-it miði sem löggan var með dugaði þeim til að vinna málið.. :drunk:

Bara svolítið skondið að sjá amerísku þættina (sem er kannski ekki alveg að marka en samt..) og bera það saman við íslensk mál. Þar eru menn saklausir þar til sekt er sönnuð, en í mörgum málum sem ég hef séð eru menn sekir þar til þeir geta sannað að þeir séu það ekki, og þá er "kannski" hlustað á þá en líklega dæmdir samt..

Svo Sæmi jú ég er auðvitað sammála þér, þetta fór eins og það "átti" að fara, en furðulegt að geta unnið svona mál án sannana nema það vanti jú slatta inní fréttina..

Author:  IngóJP [ Tue 15. Jan 2008 20:40 ]
Post subject: 

Afhverju segiði að maðurinn hafi ekið bílnum? hafiði sönnun fyrir því að maðurinn hafi ekið bílnum..

Getur ekki verið að konan hafi ekið bílnum maðurinn með henni og hún ekið á. Maðurinn ölvaður og fer að verja konu sínu vegna ótta á kæru við að aka brott af slysstað?

Getið velt ykkur uppúr þessu en það er ekki hægt að segja að þau eigi ekki að fá þetta bætt fyrr en sannað hefur að hann hafi ekið bílnum ölvaður....

Author:  saemi [ Wed 16. Jan 2008 00:32 ]
Post subject: 

Halló halló.

Mér sýnist það sé einhver misskilningur í gangi hér. Málið er ekki að löggan sé að krossfesta einn né neinn og sakfella. Það er fólkið sem er að krefjast þess að fá bílinn bættan, það er að sækja það til tryggingafélagsins. Löggan er ekki að fá manninn dæmdan fyrir ölvunarakstur eða eitt né neitt!

Hún bankaði upp á jú, en væntanlega ekki með nóg í höndunum til að fá manninn sakfelldan. Er það ekki það sem þið eruð að rugla saman. Maðurinn er ennþá SAKLAUS ... af því að hafa ekið bílnum ölvaður.

Hins vegar getur hann ekki sýnt fram á að tryggingafélagið eigi að bæta tjónið á bifreiðinni. Það er ekkert rökrétt við það að tryggingafélagið eigi að bæta öll tjón á bifreiðum bara af því að þær séu í kaskó!

Ef maður er í rétti til þess að fá tjón bætt þá er það fyrsta sem maður gerir að fá lögregluna á staðinn og búa til skýrslu. Þá er maður með eitthvað í höndunum til að fara með í tryggingarnar.

Er það ekki?

Author:  ValliFudd [ Wed 16. Jan 2008 00:49 ]
Post subject: 

Jújú, rétt er það.. Lenti reyndar í smá dæmi um daginn.. Smá dæmisaga..

Stóðum hér fyrir utan hús að spjalla við fólk sem kíkti aðeins við, á meðan við vorum að spjalla keyrir bíll á fullu slidei og brunar svona 10cm fram hjá endanum á mínum bíl og bombar á annan sem lendir á þriðja bílinn.. Við stóðum ekki nógu nálægt til að sjá númeraplötuna en það var hlaupið af stað til að athuga hvort ekki væri allt í lagi.. en nei, þá var búið að bakka og allt gjörsamlega sett í botn og brunað í burtu.. Við hringdum á lögregluna, sem kom eftir svona 40-50 mínútur og sagði þá, "Þetta er allt í fína, sá sem keyrði á kom beint til okkar og gaf skýrslu"..

Hins vegar var hann 20-30 mínútur á leiðinni á lögreglustöðina sem er í 2ja til 3ja mínútna fjarlægð.. Strikin á bílunum voru mjög greinilega blá en samkvæmt lögreglu sagðist hann hafa verið á svörtum bíl.. Við bentum á strikin á bílunum en þeim virtist sama.. Hann gaf sig fram, sagði bílnúmer og allt og málið dautt..

Var sá gaur fullur? Var skipt um bíl? Var sá gaur með bílpróf? Who knows en í því tilfelli var ekkert spáð í því þar sem einhver kom og gaf skýrslu..

Svo í þessu tilfelli sem talað er um í fréttinni hefði líklega allt gengið upp fínt ef konan hefði hringt á lögguna að fyrra bragði og gefið skýrslu strax..

Author:  saemi [ Wed 16. Jan 2008 01:21 ]
Post subject: 

Já, þetta hefði einmitt sennilega gengið upp ef konan hefði strax sagst hafa ekið.

En mér finnst það rýra mjög mál manns ef maður ekur af vettvangi! Það er greinilega hægt að segja hitt og þetta og fá út úr tryggingunum.

Ég er ekki að segja að maður eigi að þurfa að standa í stappi til að fá bílinn borgaðan, en það er alveg greinilegt að á undanförnum árum hefur stóraukist að bílar eru borgaðir út þó svo að ekkert "óhapp" hafi orðið. Ég vil milliveg í þessu, ég er ekki til í að iðgjöldin mín hækki upp úr öllu valdi til þess að þeir sem eru komnir í vanda með að selja bílinn sinn fyrir láninu bombi honum á næsta stein, upp á næstu umferðareyju eða ljósastaur eða....

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/