bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Hvað á maður að fá sér næst?
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=26751
Page 1 of 2

Author:  IceDev [ Sat 12. Jan 2008 21:34 ]
Post subject:  Hvað á maður að fá sér næst?

Jamm, staðan versnandi fer

Núna er ég búinn að skrölta á Skoda Felicia sem ég keypti á 30k frá því að ég seldi Zuna....

og ég vil helst keyra fram af kletti.

Ég er staðráðinn í að vera kominn með "nýjan" bíl innan við 3-4 mánaða en þá er vandamálið að velja sér bíl

Ég er kominn á bragðið með blæjuna, það er fátt skemmtilegra en að krúsa með hana niðri þannig að það er kostur sem að ég fúlsa ekki við

Hingað til hef ég verið að skoða bíla inn í 3 millu budget, ekki meira og auðvitað ákjósanlegt að fá mesta bíl fyrir þann pening. Helst er ég að leita mér að 2003 og nýrra

Uppi standa eftirfarandi bílar

Nissan 350z
Image

Ford Mustang
Image

BMW Z4 :oops:
Image

BMW E46 325 - 330 convertible
Image

BMW X5
Image

Dodge Charger
Image

Chrysler 300
Image

Mazda Miata
Image

Já, margir af þessum eru víst algerir haugar þ.e.a.s þessi bandarísku en þeir eru bara með eitthvað appeal sem að laðar að sér, ég get ekki útskýrt hvað það er

Allavega, það sem að ég er að spá hvort að einhver hérna hafi prufað eitthvað af þessum bílum og hefur samanburð eða þá hafi aðrar tillögur um bílakaup sem ég hef ekki skoðað

Takk fyrir
Óskar

Author:  Benzari [ Sat 12. Jan 2008 21:37 ]
Post subject: 

'02 745 sem var auglýstur á 1990.k í dag. (örugglega steggjagrín)

Author:  arnibjorn [ Sat 12. Jan 2008 21:38 ]
Post subject: 

E46 M3.

Hægt að fá þá á góðu verði frá USA. :)

T.d.
http://cgi.ebay.com/ebaymotors/BMW-3-Se ... dZViewItem

Kominn heim samkvæmt shopusa á ~3.2

Author:  IngóJP [ Sat 12. Jan 2008 21:43 ]
Post subject: 

Z4 klæðir þig vel annars er ég alveg að heillast af 350z 8)

Author:  IceDev [ Sat 12. Jan 2008 21:43 ]
Post subject: 

Ég er ekki til í "M" viðhald, þannig að það er eiginlega út úr myndini

Takk samt fyrir góða tillögu

Til að mynda þá er kraftmesti bíllinn sem ég hef átt Z4 2.5l, þannig að það þarf ekkert últrasegamegadrive 2 kraftmikinn bíl, bara sprækann

Author:  IceDev [ Sat 12. Jan 2008 21:44 ]
Post subject: 

IngóJP wrote:
Z4 klæðir þig vel annars er ég alveg að heillast af 350z 8)


Hah, ég hef bara heyrt andstæðuna, að þessi bíll sé ekki "ég"

Enda kannski algengt að sjá digran, skeggjaðann og sveittan kauða í svona blæjubíl

Ætti kannski bara að fá mér pikkupp :P

Author:  JOGA [ Sat 12. Jan 2008 21:53 ]
Post subject: 

Það er 350z hérna fyrir utan stofugluggan hjá mér. Finnst það lúmskt aðlaðandi bílar og þeir eru með mjög gott orð á sér, sérstaklega þegar verð er haft í huga.

Ég myndi hætta að hugsa um þessa þrjá neðstu. MX-5 reyndar ágætur bíll hef ég heyrt en skortur á afli myndi valda því að ég misti áhugan fljótlega.

X5 færðu þér þegar þú ert kominn með fjölskyldu :wink:

Bílarnir sem ég myndi setja á listan í fljótu bragði (ekki í sérstakri röð)

Nissan 350z
Honda S2000
BMW 330ci
BMW Z4

Good luck!

Author:  krullih [ Sat 12. Jan 2008 22:07 ]
Post subject: 

Finnst BMW E46 Convertible -lítið- smekklegir nema með topdown eða HardTop þegar kemur að Top-Up.

Z350 eru smekklegir bílar einnig, alger leiktæki en örugglega ekki besta fjárfestingin fyrir "all-year" car.

300c og Charger eru hrikalega flottir í >>> HEMI útgáfu.

Author:  Aron Fridrik [ Sat 12. Jan 2008 22:25 ]
Post subject: 

ég hef bara keyrt einn af þessum bílum og hann er einmitt sá sem ég myndi vilja mest..


350Z 8)

Author:  Steini B [ Sat 12. Jan 2008 23:20 ]
Post subject: 

Ég hef bara prufað Mustanginn af þessum, og hann kom mér ótrúlega á óvart....
Mjög gott að keyra þetta...

Og svo hef ég sitið í Mustang sem einn hérna á og er með blásara
og djöfull virkar það kvikindi.......... :shock:
SHIIIIIII.........


Annars ef þú ert að pæla í drift tæki þá er 350z klárlega málið....

Author:  HPH [ Sat 12. Jan 2008 23:31 ]
Post subject: 

Þar sem þú ert ekki/ekki mikill svona trakkari en fílar það að keira cool bíla og taka stundum Run þá held ég að Z4 sé þinn bíll((((HVÍTAN)))).
En mitt vote er X5 8)

Author:  bjornvil [ Sun 13. Jan 2008 00:15 ]
Post subject: 

350Z fær mitt atkvæði, no doubt.

Allir þessu amerísku eru hallærislegir, nema 300C SRT8, eitthvað sem ég fíla við hann. Miata er bara :gay: þótt hann sé örugglega snilld að keyra.

BMWarnir eru náttúrulega bara safe, can't go wrong there.

En eins og ég sagði, 350Z fær mitt atkvæði. Alvöru sportbíll, með afturdrif, LSD (flestir held ég) og nokkuð solid lúkk. ;)

Author:  burgerking [ Sun 13. Jan 2008 00:17 ]
Post subject: 

Ef þú vilt mikil þægindi og ekki hráan race bíl... þá er 350z ekki fyrir þig, ég átti svona og fýlaði hann í tætlur því mér finnst einmitt gaman að drifta og leika mér :D En málið er að upp á móti færðu bíl sem er gjörsamlega límdur við götuna og þú finnur hvort þú ert að keyra yfir tíkall eða hundraðkall.. :lol:

Author:  ///MR HUNG [ Sun 13. Jan 2008 00:25 ]
Post subject: 

Corvette C5 8)

Author:  Spiderman [ Sun 13. Jan 2008 00:45 ]
Post subject: 

///MR HUNG wrote:
Corvette C5 8)


X2

Image

4,9 sek í 100 km, hægt að taka toppinn af og fellur nánast undir budgetið :lol:

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/