bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Okkar maður í eldlínunni https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=26558 |
Page 1 of 4 |
Author: | fart [ Thu 03. Jan 2008 08:33 ] |
Post subject: | Okkar maður í eldlínunni |
Kristján Einar bætir tíma sinn á æfingum í Nýja-Sjálandi Íþróttir | mbl.is | 3.1.2008 | 08:10 ![]() Quote: Kristján Einar Kristjánsson, Íslandsmeistari í gokarti, hefur staðið sig vel á þeim æfingum sem hann hefur farið á í Nýja-Sjálandi þar sem hann er nú við lokaundirbúning fyrir keppni í Toyota Racing Series International Trophy, TRS-mótaröðinni í kappakstri sem stendur yfir frá 5. til 20. janúar.
TRS markar upphaf kappakstursferils Kristjáns Einars á alþjóðavettvangi. Hann hefur verið í stífum æfingum hjá breska meistaraliðinu Carlin Motorsport frá liðnu sumri. Þangað fór hann upphaflega með það að markmiði að keppa í Formúlu BMW sem er svokölluð byrjunarformúla. Fyrstu prófanir þóttu hins vegar sýna frammistöðu og aksturshæfni sem opnaði honum tækifæri til prófana og æfinga á mun öflugri formúlubílum. Kristján Einar bætti í nótt tíma sinn á Ruapuna brautinni um 2 sekúndur frá því nóttina áður og viðrist lofa góðu fyrir keppnina þar um helgina, sem verður hans fyrsta í alþjóðlegum kappakstri. Besti hringur hans í nótt var á 1.23,3 og var hann þokkalega sáttur með það. „Þetta þykir ágætistími í þessari braut, en ég á samt rúmar tvær sekúndur í bestu menn - og þeir eru nokkuð margir í hópnum! Þetta er öflugur hópur sem keppir hér og má nefna að hér eru til dæmis margfaldir meistarar úr A1GP og Champ Car eins og Matt Halliday og Daniel Gaunt . Brutarmetið frá árinu 2005, sem talið var að myndi standa óhaggað, féll strax á fyrstu æfingu í gær,“ sagði Kristján Einar eftir æfingarnar. Heldur betur að upplifa draum margra hérna á spjallinu. ![]() |
Author: | arnibjorn [ Thu 03. Jan 2008 08:36 ] |
Post subject: | |
Ég vaaaaaaar að fara pósta þessu! Þetta er barílagi ![]() |
Author: | bimmer [ Thu 03. Jan 2008 08:40 ] |
Post subject: | |
Snilld!!! |
Author: | jens [ Thu 03. Jan 2008 09:12 ] |
Post subject: | |
Var sagt frá honum í fréttum í gær, frábært hjá stráknum. |
Author: | Saxi [ Thu 03. Jan 2008 10:09 ] |
Post subject: | |
Living the dream ![]() Hvaða styrktaraðilar (ef nokkrir) eru með honum í þessu? Kveðja |
Author: | ValliFudd [ Thu 03. Jan 2008 10:15 ] |
Post subject: | |
Flottur áðí! ![]() |
Author: | Þórir [ Thu 03. Jan 2008 10:17 ] |
Post subject: | A4 og Eimskip |
Sælir. Ég sé á myndinni að hann er í það minnsta styrktur af Eimskipum og A4, sem er ritfangaverslun. Auk þess sýnist mér vera logo frá Salt Investment, sem er, að mig minnir, fjárfestingafélag Róberts Wessman. Frábært framtak hjá þessum aðilum að styrkja Kristján! Kv. Þórir |
Author: | Jón Ragnar [ Thu 03. Jan 2008 10:53 ] |
Post subject: | |
Frábær árangur hjá íslenska ökuþórnum! ![]() |
Author: | bebecar [ Thu 03. Jan 2008 13:03 ] |
Post subject: | |
Nú fara menn kannski að hlusta betur á hann þegar hann er að tjá sig hér á spjallinu ![]() |
Author: | Eggert [ Thu 03. Jan 2008 13:14 ] |
Post subject: | |
bebecar wrote: Nú fara menn kannski að hlusta betur á hann þegar hann er að tjá sig hér á spjallinu
![]() Why? Hlusta menn eitthvað "illa" á hann? |
Author: | bebecar [ Thu 03. Jan 2008 13:28 ] |
Post subject: | |
Eggert wrote: bebecar wrote: Nú fara menn kannski að hlusta betur á hann þegar hann er að tjá sig hér á spjallinu ![]() Why? Hlusta menn eitthvað "illa" á hann? Mér finnst menn oft hafa tekið heldur fálega innleggjum hans þegar rætt er um tæknilegar hliðar aksturs og bíla, svona eins og hann viti ekki um hvað hann er að tala. Það örlar stundum á öfund þegar menn ná að gera eitthvað spennandi eins og margir spjallverjar hér hafa náð. Hinsvegar má líka horfa til þess að menn eru öðrum mönnum hvatning enda er orðið talsvert um metnaðarfulla einstaklinga hér sem eru að gera góða hluti. |
Author: | fart [ Thu 03. Jan 2008 13:48 ] |
Post subject: | |
bebecar wrote: Mér finnst menn oft hafa tekið heldur fálega innleggjum hans þegar rætt er um tæknilegar hliðar aksturs og bíla, svona eins og hann viti ekki um hvað hann er að tala.
Það örlar stundum á öfund þegar menn ná að gera eitthvað spennandi eins og margir spjallverjar hér hafa náð. Hinsvegar má líka horfa til þess að menn eru öðrum mönnum hvatning enda er orðið talsvert um metnaðarfulla einstaklinga hér sem eru að gera góða hluti. Ég er alveg sammála þessu, menn fóru að efast um hann sem íslandsmeistar í gokarti o.s.frv. En hvar er hann núna, og hvar eru hinir núna. |
Author: | arnibjorn [ Thu 03. Jan 2008 13:55 ] |
Post subject: | |
fart wrote: bebecar wrote: Mér finnst menn oft hafa tekið heldur fálega innleggjum hans þegar rætt er um tæknilegar hliðar aksturs og bíla, svona eins og hann viti ekki um hvað hann er að tala. Það örlar stundum á öfund þegar menn ná að gera eitthvað spennandi eins og margir spjallverjar hér hafa náð. Hinsvegar má líka horfa til þess að menn eru öðrum mönnum hvatning enda er orðið talsvert um metnaðarfulla einstaklinga hér sem eru að gera góða hluti. Ég er alveg sammála þessu, menn fóru að efast um hann sem íslandsmeistar í gokarti o.s.frv. En hvar er hann núna, og hvar eru hinir núna. Var það ekki bara einn maður ![]() Og mér líður eins og að það hafi verið eitthvað persónulegt þar í gangi... ![]() |
Author: | fart [ Thu 03. Jan 2008 14:01 ] |
Post subject: | |
arnibjorn wrote: fart wrote: bebecar wrote: Mér finnst menn oft hafa tekið heldur fálega innleggjum hans þegar rætt er um tæknilegar hliðar aksturs og bíla, svona eins og hann viti ekki um hvað hann er að tala. Það örlar stundum á öfund þegar menn ná að gera eitthvað spennandi eins og margir spjallverjar hér hafa náð. Hinsvegar má líka horfa til þess að menn eru öðrum mönnum hvatning enda er orðið talsvert um metnaðarfulla einstaklinga hér sem eru að gera góða hluti. Ég er alveg sammála þessu, menn fóru að efast um hann sem íslandsmeistar í gokarti o.s.frv. En hvar er hann núna, og hvar eru hinir núna. Var það ekki bara einn maður ![]() Og mér líður eins og að það hafi verið eitthvað persónulegt þar í gangi... ![]() Jú það gæti passað . En fyrir utan Victor Jensen (hálfíslendingurinn) þá er Kristán sá sem er kominn lengst í mótorsportinu. Bara í lagi. |
Author: | Hannsi [ Thu 03. Jan 2008 14:05 ] |
Post subject: | |
ég ætla nú bara að óska honum til hamingju ![]() |
Page 1 of 4 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |