bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Flugeldar!
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=26468
Page 1 of 3

Author:  IngóJP [ Fri 28. Dec 2007 21:17 ]
Post subject:  Flugeldar!

Þar sem það er mikið skemmtilegra að sprengja en að metast um jólagjafir.

Hvað segja menn

Hvað eruði að áætla í að sprengja marga bláa?

Author:  srr [ Fri 28. Dec 2007 21:20 ]
Post subject: 

Eina sem ég segi...

Kaupið af björgunarsveitunum!

Author:  IngóJP [ Fri 28. Dec 2007 21:21 ]
Post subject: 

Já verð að taka undir það um að gera að versla af þeim

Fæ reyndar fullt af þessu gefins þetta árið en ætli maður fari nú ekki samt og hendi nokkrum bláum í þá

Author:  KFC [ Fri 28. Dec 2007 21:34 ]
Post subject: 

Ég versla hjá Hjálparsveit skáta Kópavogi.

Author:  basten [ Fri 28. Dec 2007 21:37 ]
Post subject: 

Mér myndi aldrei detta í hug að versla flugelda af einkaaðilum!!!

Author:  Misdo [ Fri 28. Dec 2007 21:40 ]
Post subject: 

held ég kaupi ekki neitt enn ef ég geri það þá verður það af björgunarsveitinni

Author:  gunnar [ Fri 28. Dec 2007 21:53 ]
Post subject: 

Ætli ég fari ekki bara og rétti björgunarsveitinni smá pening í staðinn fyrir að kaupa flugelda ,,,, nágranni minn sprengir svo mikið að það er ekkert hægt að komast að :lol:

Author:  Astijons [ Fri 28. Dec 2007 22:51 ]
Post subject: 

SPRENGJA SPRENGJA SPRENGJA!

Author:  Steini B [ Fri 28. Dec 2007 23:25 ]
Post subject: 

srr wrote:
Eina sem ég segi...

Kaupið af björgunarsveitunum!

Ég kaupi alltaf af þeim, og aðalega til að styrkja.... :D

Author:  HPH [ Sat 29. Dec 2007 04:16 ]
Post subject: 

10.000 til 15.000,-. pabbi er búinn að redda mér 2x RISA sýningar tertum.
hef alltaf verið með flugelda fíkn.

Author:  finnbogi [ Sat 29. Dec 2007 17:02 ]
Post subject: 

HPH wrote:
10.000 til 15.000,-. pabbi er búinn að redda mér 2x RISA sýningar tertum.

ég hef alltaf verið með heróín fíkn.


:shock: :D

Author:  ValliFudd [ Sat 29. Dec 2007 18:19 ]
Post subject: 

Góð auglýsing frá einhverri björgunarsveitinni..

"Þú treystir á okkur allan ársins hring, nú treystum við á þig!" 8)

En ég er ekki mikið fyrir sprengingar annars, læt aðra sjá um það :)

Author:  arnibjorn [ Sat 29. Dec 2007 18:29 ]
Post subject: 

Ég ætla ekki að eyða krónu í flugelda á þessu ári.

En ég hvet alla sem ætla að kaupa sér að kaupa af björgunarsveitunum :)

Author:  Einsii [ Sat 29. Dec 2007 18:31 ]
Post subject: 

Úff fór og eyddi fullt af pening áðan..
En það var þó á réttum stað, hjá björgunarsveitinni :D

Author:  Danni [ Sat 29. Dec 2007 20:35 ]
Post subject: 

Verður eitthvað skotið upp á suðvesturhorninu á gamlárskvöld ef að spáin stenst? Það á að vera alveg kreisí veður :shock:

Page 1 of 3 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/