bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Iðgjöldin að hækka??
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=26108
Page 1 of 1

Author:  valdiþ [ Fri 07. Dec 2007 22:15 ]
Post subject:  Iðgjöldin að hækka??

Quote:
700 miljóna króna tap varð á kaskótryggingum ökutækja hjá tryggingafélögunum á síðasta ári. Fjöldi lúxusbíla hefur margfaldast á fáum árum og tjónakostnaður aukist stórfenglega. Tryggingafélögin skoða nú hvort breyta þurfi reiknilíkönum sínum vegna þessa, og endurskoða iðgjöld.

Tryggingafélögin standa nú frammi fyrir ákveðnum "góðærisvanda". Þau tapa af kaskótryggingum því viðgerðir á svona bílum eru rándýrar og fjöldi glæsikerranna margfaldast með hverju árinu sem líður.

Árið 2004 högnuðust tryggingafélögin um 10 miljónir á frjálsum ökutækjatryggingum, árið 2005 töpuðu félögin hins vegar 334 miljónum á þessum sömu tryggingum og í fyrra nam tapið 721 miljón króna. Þessi tölfræði kemur heim og saman við fjölgun lúxusbílanna. Fjöldi bíla af tegundunum BMW, Range Rover og Mercedes Benz hefur fimmfaldast frá árinu 2001 og þrefalt fleiri Audiar og tvöfalt fleiri Lexusar eru á götunum nú en fyrir 6 árum.

Einar Þorláksson, vörustjóri ökutækjatrygginga hjá TM, segir að iðgjöldin séu til endurskoðunar. Til greina komi að setja lúxusbílana í séráhættuflokk. Pétur Már Jónsson, aðstoðarforstjóri VÍS segir tjónatíðnina hafa aukist um 30% á þremur árum og það skili sér í auknu tapi á kaskótryggingum.


Tekið af ruv.is, 700 m.kr. tap á kaskótryggingum

Það verður fróðlegt að sjá hvað kemur útúr þessu.
Það getur þó ekki verið að iðgjöldin hækki á alla bíla, þeir hljóta að setja mörkin einhversstaðar, ekki bara heilt yfir tegundina.
Finnst ég nú vera að borga andskoti nógu mikið í iðgjöld núþegar.

Author:  Eggert [ Fri 07. Dec 2007 22:20 ]
Post subject: 

...ég bara vona að þeir fari ekki og setji einhvern hestafla þröskuld á kerfið, líkt og er í Þýskalandi. :?

Author:  zazou [ Fri 07. Dec 2007 22:39 ]
Post subject:  Re: Iðgjöldin að hækka??

Quote:
...BMW, Range Rover og Mercedes Benz hefur fimmfaldast frá árinu 2001 og þrefalt fleiri Audiar og tvöfalt fleiri Lexusar eru á götunum nú en fyrir 6 árum....


8)

Author:  iar [ Fri 07. Dec 2007 22:43 ]
Post subject: 

.... og í öðrum fréttum frá TM:

Quote:
Níu mánaða uppgjör TM

1/11/2007
1.873 milljón króna hagnaður á fyrstu 9 mánuðum ársins


( http://www.tryggingamidstodin.is/tm/frettir/nr/2348 )

Author:  Leikmaður [ Fri 07. Dec 2007 22:50 ]
Post subject: 

iar wrote:
.... og í öðrum fréttum frá TM:

Quote:
Níu mánaða uppgjör TM

1/11/2007
1.873 milljón króna hagnaður á fyrstu 9 mánuðum ársins


( http://www.tryggingamidstodin.is/tm/frettir/nr/2348 )


...touché :lol:

En að öðru þessu tengdu......er það rétt sem maður heyrði fyrir allnokkru að t.d. í Svíþjóð þá væru iðgjöld mjög matskennd eftir bílum og m.a. væri farið eftir lit þeirra - gulir bílar væru t.a.m. mun lægri þar sem fólk tæki frekar og fyrr eftir þeim í umferðinni en heldur t.d. svörtum og því færri slys hvað þá varðaði.

Author:  JOGA [ Sat 08. Dec 2007 11:09 ]
Post subject: 

Vona ad thetta verdi ekki eins og i UK. Her eru allir bilar flokkadir allt spennandi er nanast otryggjandi.

Svo ma engu breyta nema tilkynna theim thad serstaklega. Thegar thu tryggir bilinn tharft tu ad segja hvar thu geymir hann. Hvort that er a gotu eda i bilskur, hvort tu sert med "sektaferil" o.s.frv.

Eg hringdi um daginn og spurdi hverju eg thyrfti ad baeta vid ef eg vildi kaupa laekkunargorma i audinn. Thad kostadi meira en gormarnir sjalfir :shock:

Hata thetta pipans kerfi :x

Sumt er svo sem i lagi eins og ad athuga med tjonaferil og akstursogu en thetta er ordid of mikid af hinu goda :?

Author:  bebecar [ Sun 09. Dec 2007 11:02 ]
Post subject: 

Bara sleppa kaskóinu og keyra af ábyrgð :D

En annars á þetta örugglega ekki eftir að enda vel - það er líklega ódýrara að tryggja öflug tæki á Íslandi en eiginlega allsstaðar annarsstaðar.

Author:  Alpina [ Sun 09. Dec 2007 11:47 ]
Post subject: 

bebecar wrote:
Bara sleppa kaskóinu og keyra af ábyrgð :D

En annars á þetta örugglega ekki eftir að enda vel - það er líklega ódýrara að tryggja öflug tæki á Íslandi en eiginlega allsstaðar annarsstaðar.


Ekki spurning

Author:  Steini B [ Sun 09. Dec 2007 15:45 ]
Post subject: 

Miðað við þessa frétt þá er þetta er ekki spurning um aflið heldur hversu dýrt þetta er og hversu dýrt er að gera við þetta....


Svo eru nú einhverjir sem stunda það að klessa "óvart" á til þess að losna við bílinn....

Author:  Geirinn [ Sun 09. Dec 2007 15:59 ]
Post subject: 

Er ekki rangt að segja að "lúxusbílar" eigi að vera í "sérÁHÆTTUflokki" ?

Hvað er lúxusbíll ?

Er BMW E90 320i lúxusbíll ?

Er einhver meiri hætta á slysum á dýrari bílum ?

Hvernig í fjandanum ætla þeir að flokka bíla eftir lúxus eða non lúxus ?

"Hrikalegt bílslys maður!%&$%&" ....... "Já maður, hann var á lúxusbíl".

Þetta er bara fáránlegt.

Author:  Einari [ Sun 09. Dec 2007 19:09 ]
Post subject: 

[quote="Geirinn"]Er ekki rangt að segja að "[b]lúxus[/b]bílar" eigi að vera í "sér[b]ÁHÆTTU[/b]flokki" ?

Hvað er lúxusbíll ?

Er BMW E90 320i lúxusbíll ?

Er einhver meiri hætta á slysum á dýrari bílum ?

Hvernig í fjandanum ætla þeir að flokka bíla eftir lúxus eða non lúxus ?

"Hrikalegt bílslys maður!%&$%&" ....... "Já maður, hann var á lúxusbíl".

Þetta er bara fáránlegt.[/quote]

Það var talað um það í fréttunum að það væri svo mikið dýrara að gera við lúxusbílana, mikið dýrari varahlutir og svo framvegis...

Author:  Geirinn [ Sun 09. Dec 2007 20:10 ]
Post subject: 

Einari wrote:
Geirinn wrote:
Er ekki rangt að segja að "lúxusbílar" eigi að vera í "sérÁHÆTTUflokki" ?

Hvað er lúxusbíll ?

Er BMW E90 320i lúxusbíll ?

Er einhver meiri hætta á slysum á dýrari bílum ?

Hvernig í fjandanum ætla þeir að flokka bíla eftir lúxus eða non lúxus ?

"Hrikalegt bílslys maður!%&$%&" ....... "Já maður, hann var á lúxusbíl".

Þetta er bara fáránlegt.


Það var talað um það í fréttunum að það væri svo mikið dýrara að gera við lúxusbílana, mikið dýrari varahlutir og svo framvegis...


Þú skilur greinilega ekki hvað ég er að fara.

Hvað er lúxusbíll ?

Author:  íbbi_ [ Sun 09. Dec 2007 20:41 ]
Post subject: 

deluxe týpan.. klárlega

Author:  Lindemann [ Sun 09. Dec 2007 23:07 ]
Post subject: 

Trabant Delux

Author:  Einari [ Sun 09. Dec 2007 23:50 ]
Post subject: 

mamma þín er lúxus bíll :wink:

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/