bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Vangaveltur um 540i sölu
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=26061
Page 1 of 1

Author:  jens [ Fri 30. Nov 2007 10:44 ]
Post subject: 

Til hamingju með bílinn, en ég hélt að þessi bíll hefði selst í fyrradag. Hvernig kemur þú inn í þetta með bílinn.

Author:  Þórólfur [ Fri 30. Nov 2007 10:50 ]
Post subject: 

Til hamingju með bílinn.

Ég stóð reyndar í þeirri meiningu að ég væri búinn að semja um kaup á honum, en svona fer þetta stundum. Var búinn að ganga frá tilboði í bílinn og það átti bara eftir að ganga frá nokkrum smáatriðum.

Hefði svosem mátt eiga von á því að svona færi eftir það sem á undan var gengið og ég skrifaði um hér:
http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=25826

Author:  jens [ Fri 30. Nov 2007 10:58 ]
Post subject: 

Mér finst svona bílasalar alveg það ömurlegasta sem maður rekst á, búin að láta Þórólf bíða í rúma viku eftir að leyfa honum að skoða bílinn og svo selur hann bílinn þó svo að hann sé með tilboð frá Þórólfi sem hann var búin að samþykkja. Væri gaman að fá sögunna frá þér Íbbi hvernig þessi bíll kom upp í hendurnar á þér, lofaði salinn að laga allt rafmagnsvesenið á bílnum.

Author:  zazou [ Fri 30. Nov 2007 11:22 ]
Post subject: 

Image

Flottur bíll, til lukku. Kanntu skýringu á þesum mun á yngri og eldri konum nei ég meina E39?

Author:  íbbi_ [ Fri 30. Nov 2007 12:16 ]
Post subject: 

nú veit ég ekki hvað fór á milli þeirra, ég eignaðist bílin voðalega óvænt í raun,
þórólfi er hinsvegar velkomið að ræða við mig ef hann hefur áhuga á bílnum,

sætið og stýrið eru stopp.. ég tek það á mig, líklegast öryggi eða relay hélt bjarki í B&L

Author:  Benzari [ Fri 30. Nov 2007 12:39 ]
Post subject: 

Þórólfur wrote:
Til hamingju með bílinn.

Ég stóð reyndar í þeirri meiningu að ég væri búinn að semja um kaup á honum, en svona fer þetta stundum. Var búinn að ganga frá tilboði í bílinn og það átti bara eftir að ganga frá nokkrum smáatriðum.

Hefði svosem mátt eiga von á því að svona færi eftir það sem á undan var gengið og ég skrifaði um hér:
http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=25826


Færð þér bara Sæmalega-rauðan í staðinn, miklu flottari :twisted: http://www.mobile.de/SIDdO1vYth8MNp2mBh ... 284308594&

Author:  jens [ Fri 30. Nov 2007 13:37 ]
Post subject: 

Ekkert illa meint íbbi en ég var bara svolítið svekktur að Þórólfur hefði ekki fengið bílinn það sem ég hef fengið að fylgjast með ferlinu, en ég er að verða rólegur núna. Klárlega einn fallegasti E39 540i og aftur til hamingju með bílinn.

Author:  íbbi_ [ Fri 30. Nov 2007 14:21 ]
Post subject: 

já takk, eins og ég segi ég veit ekki hvað skeði áður en eg fæ bílin. enda í raunini ekki mitt mál, ég sé bara bílin á bílasölu og keyri heim á honum.

já bíllin er gífurlega smekklegur finnst mér.. mjög ánægður með hann

Author:  amg [ Fri 30. Nov 2007 19:05 ]
Post subject: 

Þórólfur wrote:
Bjorgvin wrote:
Svona rauður er nú bara klám.... held ég fallegasti litur sem hægt er að fá á E39


Image


Þegar ég sel minn skal ég kaupa einn svona og bjóða þér í bíltúr Björgvin :)


þórólfur, ég get bent þér á gríðarlegt eintak a 540mtech uppa bílalind. 2003 árg ek einhvað i kringum 50þkm

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/